Doctrine and Covenants 2025
1.–7. desember: „Sýnin um endurlausn hinna dánu“: Kenning og sáttmálar 137–138


„1.–7. desember: ‚Sýnin um endurlausn hinna dánu‘: Kenning og sáttmálar 137–138,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Kenning og sáttmálar 137–138,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

Jesús Kristur prédikar í andaheiminum

Hluti af Kristur prédikar í andaheiminum, eftir Robert T. Barrett

1.–7. desember: „Sýnin um endurlausn hinna dánu“

Kenning og sáttmálar 137–138

Yfir 80 ár og 2400 kílómetrar skilja að opinberanirnar sem eru skráðar í Kenningu og sáttmálum 137 og 138. Spámaðurinn Joseph Smith hlaut sýnina í kafla 137 árið 1836 í musterinu í Kirtland og Joseph F. Smith, sjötti forseti kirkjunnar, hlaut sýnina í kafla 138 árið 1918 í Salt Lake City. Kenningarlega eru þessar tvær sýnir þó samhliða. Þær svara báðar spurningum sem margt fólk – þar með taldir spámenn Guðs – hafa um lífið eftir dauðann. Joseph Smith velti örlögum Alvins bróður síns fyrir sér, en hann hafði dáið án þess að skírast. Joseph F. Smith, sem hafði misst báða foreldra sína og 13 börn í ótímabæran dauða, hugsaði oft um andaheiminn og velti fyrir sér kennslu fagnaðarerindisins þar.

Kafli 137 varpar nokkru ljósi á örlög barna Guðs í næsta lífi og kafli 138 dregur fortjaldið aðeins betur frá. Saman bera þeir vitni um „þá miklu og undursamlegu ást föðurins og sonarins sem ásannaðist“ (Kenning og sáttmálar 138:3).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju

Kenning og sáttmálar 137; 138:30–37, 57–60

trúarskólatákn
Öll börn himnesks föður munu fá tækifæri til að velja eilíft líf.

Alvin Smith, ástkær bróðir spámannsins Joseph, lést sex árum áður en Guð endurreisti valdsumboðið til að skíra. Árið 1836 taldi sumt kristið fólk almennt að ef einhver dæi án þess að hafa látið skírast, þá gæti sá einstaklingur ekki komist til himnaríkis. Joseph velti eilífri sáluhjálp Alvins fyrir sér í mörg ár – þar til að hann hlaut opinberunina í Kenningu og sáttmálum 137.

Margir í dag eru með álíka spurningar. Hvers vegna myndi Guð krefjast helgiathafna og sáttmála þegar svo margir fá aldrei tækifæri til að meðtaka þá? Hvað mynduð þið segja við einhvern sem hugleiðir þetta? Hvernig mynduð þið byggja upp trú þeirra á Guð og skilyrði hans fyrir sáluhjálp? Leitið sannleika sem þið gætuð miðlað í kafla 137 og í kafla 138:30–37, 57–60. Þið gætuð einnig leitað þessa sannleika sem tjáður er í sálminum „The Glorious Gospel Light Has Shone,“ (Hymns, nr. 283) og í boðskap Henry B. Eyring forseta „Samansöfnun fjölskyldu Guðs“ (aðaráðstefna, apríl 2017).

Þegar þið lærið og hugleiðið, gætuð þið skráð hughrif ykkar með því að ljúka álíka setningum:

  • Vegna þessara opinberana, veit ég að himneskur faðir .

  • Vegna þessara opinberana, veit ég að sáluhjálparáætlun föðurins .

  • Vegna þessara opinberana, langar mig að .

Sjá einnig Heilagir, 1:232–35.

Kenning og sáttmálar 138:1–11, 25–30

Lestur og ígrundun ritninganna býr mig undir að meðtaka opinberun.

Stundum hlýst opinberun, jafnvel þótt við leitum hennar ekki. Oftar hlýst hún því við leitum hennar og búum okkur undir hana af kostgæfni. Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 138:1–11, 25–30, takið þá eftir hvað Joseph F. Smith var að hugleiða þegar „augu skilnings [hans] lukust upp.“. Þið gætuð einnig borið reynslu hans saman við 1. Nefí 11:1–6; Joseph Smith – Sögu 1:12–19. Íhugið síðan hvernig þið getið fylgt fordæmi Smith forseta. Dæmi: Hvaða breytingar finnst ykkur þið innblásin að gera á ritningarnámi ykkar til að hljóta frekari persónulegar opinberanir?

Í boðskap sínum „Sýnin um endurlausn hinna dánu“ (aðalráðstefna, október 2019) benti M. Russell Ballard forseti á annan undirbúning Smith forseta til að meðtaka þessa opinberun. Hvað lærið þið af upplifunum hans? Hugleiðið hvernig Drottinn hafi búið ykkur undir þá reynslu sem þið gangið í gegnum – og hvernig hann gæti verið að búa ykkur undir framtíð ykkar.

Sjá einnig Heilagir, 3:202–5; „Ministry of Joseph F. Smith: A Vision of the Redemption of the Dead“ (myndband), Gospel Library.

3:6

Ministry of Joseph F. Smith: A Vision of the Redemption of the Dead

Joseph F. Smith, forseti

Joseph F. Smith, eftir Albert Salzbrenner

Bjóðið andanum. „Hvað hefur þú séð sem stuðlar að andlegu umhverfi fyrir lærdóm á fagnaðarerindinu? Hvað dregur úr því?“ (Kenna að hætti frelsarans18). Þegar þið lesið um reynslu Josephs F. Smith forseta í Kenningu og sáttmálum 138:1–11, hugleiðið þá hvernig þið getið hvatt til ígrundunar og boðið andlegum hughrifum heim og, ef þið eruð kennarar, til þeirra sem þið kennið.

Kenning og sáttmálar 138:25–60

Verk frelsarans heldur áfram hinum megin hulunnar.

Russell M. Nelson forseti kenndi: „Boðskapur okkar til heimsins er einfaldur og einlægur: Við bjóðum öllum börnum Guðs, báðumegin hulunnar, að taka á móti blessunum hins heilaga musteris, njóta varanlegrar gleði og vera hæf fyrir eilíft líf“ („Fylkjum liði,“ aðalráðstefna, apríl 2018). Hugleiðið þessa fullyrðingu við lestur Kenningar og sáttmála 138:25–60. Þið gætuð líka haft þessar spurningar í huga:

  • Hvað lærið þið af þessum versum um hvernig starf frelsarans er unnið í andaheiminum? Af hverju er mikilvægt að þið vitið að þetta starf eigi sér stað?

  • Hvað vekur athygli ykkar varðandi sendiboða Drottins í andaheiminum?

  • Hvernig styrkir þessi opinberun trú ykkar á endurlausnaráætlun Guðs?

Ef ykkur langar að læra meira um andaheiminn, gætuð þið lesið boðskap Dallins H. Oaks forseta „Treysta á Drottin“ (aðalráðstefna, okt. 2019).

Sjá einnig „Susa Young Gates and the Vision of the Redemption of the Dead,“ í Revelations in Context, 315–22; „A Visit from Father“ (myndband), Gospel Library.

3:20

A Visit from Father

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

barnahluti tákn 03

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Kenning og sáttmálar 137:5–10; 138:18–35

Öll börn himnesks föður munu fá tækifæri til að hlýða á fagnaðarerindið.

  • Til að læra hvað það hefði þýtt fyrir Joseph Smith að sjá nokkra fjölskyldumeðlimi sína í himneska ríkinu, gætu börn ykkar horft á myndbandið „Ministry og Joseph Smith: Temples“ (Gospel Library), eða þið gætuð miðlað Sögum úr Kenningu og sáttmálum, 152–53 (eða samsvarandi myndbandi á Gospel Library). Kannski gætuð þið einnig rætt um einhvern sem þið vitið að dó án þess að fá tækifæri til að skírast. Hvað kennir Kenning og sáttmálar 137:5–10 okkur um slíkan einstakling?

    2:20

    Ministry of Joseph Smith: Temples

    2:17

    Chapter 39: The Kirtland Temple Is Dedicated: January–March 1836

  • Hugleiðið að nota mynd af gröf frelsarans (sjá Trúarmyndabók, nr. 58, eða Biblíumyndir, nr. 14) og ljósmyndina aftast í þessum lexíudrögum til að kenna börnum ykkar hvert andi Jesú fór þegar líkami hans var í gröfinni. Síðan gætuð þið lesið Kenningu og sáttmála 138:18–19, 23–24, 27–30 saman til að læra hvað Jesús gerði þegar hann var þar. Hverja heimsótti hann? Hvað bað hann þau að gera? Hvers vegna gerði hann þetta?

    The body of the crucified Christ being wrapped in white burial cloth (presumably by Joseph of Arimathaea and Nicodemus) in preparation for entombment. Several men and women are gathered around the crucified body. They are mourning the crucifixion.
  • Þið gætuð einnig notað verkefnasíðu þessarar viku til að hjálpa börnum ykkar að bera saman það sem trúboðarnir kenna hérna megin hulunnar (sjá til dæmis Trúaratriðin 1:4) við það sem trúboðarnir kenna í andaheiminum (sjá Kenning og sáttmálar 138:33). Hvað er líkt með þessum versum og hvað er ólíkt? Hvað kennir þetta okkur um himneskan föður og áætlun hans?

barn að lesa ritningarnar

Að rannsaka ritningarnar býður heilögum anda heim.

Kenning og sáttmálar 138:1–11

Þegar ég ígrunda ritningarnar, getur heilagur andi hjálpað mér að skilja þær.

  • Þegar þið og börn ykkar lesið í Kenningu og sáttmálum 138:1–11 gætuð þið boðið þeim að látast vera Joseph F. Smith forseti og gera hreyfingar sem fylgja orðunum í versum 6 og 11. Þið gætuð einnig sýnt þeim mynd af Smith forseta (það er ein í þessum lexíudrögum) og útskýrt að hann var sjötti forseti kirkjunnar. Þið gætuð einnig talað um það þegar þið ígrunduðuð eitthvað í ritningunum og heilagur andi hjálpaði ykkur að skilja það.

  • Íhugið að syngja saman söng um ritninganám, eins og „Rannsaka og biðja“ (Barnasöngbókin, 66). Hvað segir þessi söngur að við ættum að gera til að skilja ritningarnar?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Jesús Kristur í andaheiminum

Umboðsmaðurinn, eftir Harold I. Hopkinson.

verkefnasíða fyrir börn