15.–21. desember: ‚Fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans‘: Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmáli 2025 (2025)
„Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
15.–21. desember: „Fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans“
Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins
Jafnvel áður en við fæddumst, þá tilheyrðum við fjölskyldu – fjölskyldu okkar himnesku foreldra. Það mynstur heldur áfram á jörðu. Fjölskyldur hér, þegar þær eru upp á sitt besta, eiga að enduróma hið fullkomna mynstur himins.
Að sjálfsögðu er engin trygging fyrir því að jarðneskar fjölskyldur verði að þeirri fyrirmynd eða jafnvel virki. Henry B. Eyring forseti kenndi að fjölskyldur væru „besti kosturinn til að veita börnum Guðs þá elsku á jörðu sem kemst næst himneskri elsku – eða foreldraást“ („Samansöfnun fjölskyldu Guðs,“ aðalráðstefna, apríl 2017). Guð vissi að fjölskyldur væru ófullkomnar og móttækilegar fyrir árásum óvinarins og því sendi hann sinn ástkæra son til að endurleysa okkur og lækna fjölskyldur okkar. Hann sendi síðari daga spámenn með yfirlýsingu til að verja og styrkja fjölskyldur. Ef við fylgjum spámönnunum og setjum traust okkar á frelsarann, þótt jarðneskar fjölskyldur séu ekki að guðlegri fyrirmynd, þá er von fyrir fjölskyldur – á jörðu og á himni.
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
„Fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans“
„Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“ fjallar augljóslega um fjölskyldur. Hún fjallar þó jafnframt um sáluhjálparáætlun Guðs. Ein leið til að læra yfirlýsinguna er að skrifa niður orðin fortilvera, jarðlíf og líf eftir dauða á blað og skrá hvað yfirlýsingin kennir um hvert þessara atriða. Hvað lærið þið þegar þið nálgist yfirlýsinguna á þennan hátt? Hvernig hjálpar þetta ykkur að skilja af hverju hjónabandið og fjölskyldan eru kjarninn í áætlun Guðs? Hvaða áhrif hefur sannleikurinn í yfirlýsingunni á val ykkar?
Það eru margir sem kannski hræðast hjónaband eða uppeldi barna, af ýmsum ástæðum. Hvað mynduð þið segja ef vinur segði við ykkur: „Mig langar aldrei að giftast og eignast fjölskyldu“? Ef til vill gætuð þið leitað í yfirlýsingunni að einhverju sem gæti hjálpað vini ykkar að finna von í áætlun Guðs.
Svo er önnur spurning sem þið gætuð verið spurð – eða þið spurt ykkur sjálf: „Hvað ef fjölskylduaðstæður mínar endurspegla ekki það sem lýst er í fjölskylduyfirlýsingunni?“ Hér eru tveir staðir sem þið gætuð leitað í til að öðlast spámannleg ráð: Hlutinn „Mikil breyting“ í boðskap öldungs Dieter F. Uchtdorf „Jesús Kristur er styrkur foreldra“ (aðalráðstefna, apríl 2023) og fjórar síðustu málsgreinarnar í boðskap öldungs D. Todd Christofferson „Af hverju hjónaband og fjölskylda“ (aðalráðstefna, apríl 2015).
Hvað finnst ykkur þið hvött að gera vegna þess sem þið hafið lært?
Sjá einnig Dallin H. Oaks, „Áætlunin og yfirlýsingin,“ aðalráðstefna, okt. 2017; Topics and Questions „Family,“ Gospel Library.
Sérhver einstaklingur er „ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra.“
Við hugsum oft um fjölskylduyfirlýsinguna sem leiðarvísi að fjölskyldulífi. Hún kennir hins vegar líka mikilvægan sannleika um himneska fjölskyldu okkar og eilíft auðkenni. Af hverju er mikilvægt að þið vitið að við eigum öll hlut að fjölskyldu? Hvernig hefur þetta áhrif á val ykkar?
Sjá einnig „Guðs barnið eitt ég er,“ Sálmar, nr. 112.
„Hamingju í fjölskyldulífi hljótum við fyrst og fremst þegar við byggjum á kenningum Drottins Jesú Krists.“
Hugsið um málsgreinar 6 and 7 í fjölskylduyfirlýsingunni sem fyrirmynd að „hamingju í fjölskyldulífi.“ Þegar þið lesið þessar málsgreinar, auðkennið þá reglur „[farsæls hjónabands og fjölskyldulífs].“ Þið gætuð íhugað dæmi um þessar reglur sem þið hafið séð í ykkar eigin fjölskyldum eða fjölskyldum annarra. Hvernig hjálpa þessar reglur að gera Jesú Krist að þungamiðju fjölskyldulífs?
Þið gætuð síðan hugleitt það fjölskyldusamband sem þið viljið styrkja. Gerið áætlun með hjálp frelsarans um að fylgja eftir þeim hughrifum sem þið hljótið.
Sjá einnig L. Whitney Clayton, „Bestu heimilin,“ aðalráðstefna, apríl 2020.
Foreldrum ber að ala upp börn sín í kærleika og réttlæti.
„Við biðjum alla ábyrga þegna … að efla, … varðveita og styrkja fjölskylduna.“
Þessi síðasta málsgrein í fjölskylduyfirlýsingunni kallar á framkvæmdir. Þegar þið hugleiðið hvernig þið munið bregðast við því kalli, gæti það hjálpað að athuga fyrirsögn yfirlýsingarinnar. Hvað er yfirlýsing til að mynda? Hvað gefur það orð í skyn varðandi boðskap skjalsins. Hvað gerði Æðsta forsætisráðið og Tólfpostularáðið hæf til að gefa út yfirlýsingu til heimsins um fjölskyldur? Þið gætuð einnig gert lista yfir það sem þið teljið vera megin boðskap yfirlýsingarinnar. Hvernig getið þið komið þessum boðskap á framfæri í lífi ykkar, heimili og samfélagi?
Sjá einnig Bonnie L. Oscarson, „Verjendur fjölskyldu-yfirlýsingarinnar,“ aðalráðstefna, apríl 2015; „Defenders og the Faith“ (myndband), Gospel Library.
Defenders of the Faith
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Fjölskyldur eru mikilvægar í áætlun himnesks föður.
-
Hjálpið börnum ykkar að hugsa um eitthvað sem er svo mikilvægt að þau myndu vilja segja öllum frá því. Sýnið börnum ykkar eintak af „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“ og útskýrið að spámenn og postular skrifuðu hana til að segja okkur hve mikilvægar fjölskyldur eru himneskum föður. Hvers vegna eru fjölskyldur svona mikilvægar fyrir hann? (Sjá einnig myndbandið „What is the Purpose of Family?, [ChurchofJesusChrist.org])
1:19What Is the Purpose of Family?
-
Miðlið börnum ykkar einhverju úr yfirlýsingunni sem ykkur finnst að við þurfum öll að vita. Bjóðið börnunum að deila tilfinningum sínum um þennan sannleika. Hvernig væri líf okkar öðruvísi, ef við vissum ekki þessa hluti? Þið gætuð sungið saman söng sem tengist sannleika sem finna má í yfirlýsingunni, eins og „Ég fylgi áformi Guðs“ (Barnasöngbókin, nr. 86).
-
Í kafla IV í boðskap sínum „Áætlunin og yfirlýsingin“ (aðalráðstefna, okt. 2017), lýsir Dallin H. Oaks forseti því hvernig fjölskylduyfirlýsingin var skrifuð. Ef til vill gætuð þið og börn ykkar farið yfir lýsingu hans saman og rætt um það hvers vegna þið eruð þakklát fyrir að Drottinn innblés þjónum sínum að kenna okkur þennan sannleika varðandi fjölskyldur.
-
Þið gætuð einnig sýnt börnum ykkar myndir (eða boðið þeim að teikna) sem sýna þann sannleika sem má finna í fjölskylduyfirlýsingunni. Þetta gætu verið myndir af musterum, fjölskyldu á bæn eða að leika saman eða af pari að giftast. Síðan gætu börn ykkar fundið setningar í fjölskylduyfirlýsingunni sem tengjast myndunum. Hvað kennir Drottinn okkur um þessa hluti í yfirlýsingunni?
Himneskur faðir vill að fjölskyldur séu hamingjusamar.
Verið tillitsöm. Þegar þið kennið sannleikann sem kenndur er í fjölskylduyfirlýsingunni, verið þá meðvituð um að mörg börn eiga fjölskyldur sem endurspegla ekki þá fyrirmynd sem lýst er í yfirlýsingunni. Hugleiðið hvernig þið getið hvatt þau og innblásið.
Ég er „ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra.“
-
Er þið syngið saman „Guðs barnið eitt ég er“ (Barnasöngbókin, nr. 2), gætuð þið hent bolta til barns er þið segið „Ég þekki barn Guðs sem heitir [nafn barns].“ Þá gæti það barn kastað hlutnum til annars barns og sagt sömu orðin og bætt nafni þeirra við. Hjálpið börnum ykkar að finna setninguna „ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra“ í fjölskylduyfirlýsingunni og gefið vitnisburð um þennan sannleik.
Fjölskyldur eru hamingjusamastar þegar þær fylgja Jesú Kristi.
-
Til að hefja samræður um að styrkja fjölskyldur ykkar, gætuð þið og börn ykkar talað um það hvað við gerum til að gera aðra hluti sterka – eins og tennur okkar, líkama eða byggingu. Þið gætuð síðan borið þetta saman við að byggja sterka fjölskyldu. Hjálpið börnum ykkar að finna kristilega eiginleika sem leiða að hamingju innan fjölskyldulífs, sem finna má í málsgrein 7 í fjölskylduyfirlýsingunni (sjá einnig verkefnasíðu þessarar viku).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.