„6.–12. október: ‚Ég mun haga öllu yður til góðs‘: Kenning og sáttmálar 111–114“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Kenning og sáttmálar 111–114,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
6.–12. október: „Ég mun haga öllu yður til góðs“
Kenning og sáttmálar 111–114
Hafið þið einhvern tíma hlotið andlega reynslu sem veitti ykkur fullvissu í trú á Krist – og síðan koma raunir lífsins þar sem reynt er á þá trú og þið keppist við að endurheimta friðinn sem þið áður funduð? Hinir heilögu í Kirtland upplifðu eitthvað álíka þessu. Innan árs frá hinum andlegu upplifunum í tengslum við vígslu Kirtland-musterisins tóku vandræði að gera vart við sig. Fjárhagsvandi, ágreiningur í Tólfpostulasveitinni og aðrar raunir ollu því að sumir hinna heilögu tóku að veikjast í trúnni, þrátt fyrir fyrri reynslu þeirra.
Hvernig getum við varnað því að raunir ógni trú okkar og vitnisburði úr því við fáum ekki komist hjá þeim? Hluta svarsins er kannski að finna í leiðsögn Drottins í Kenningu og sáttmálum 112, veittri í hinu vaxandi mótlæti í Kirtland. Drottinn sagði: „Hreinsið … hjörtu yðar frammi fyrir mér“ (vers 28), „rísið ekki gegn“ (vers 15), „girðið … lendar … fyrir þetta verk“ (vers 7) og „ver auðmjúkur“ (vers 10). Þegar við fylgjum þessari leiðsögn, mun Drottinn „leiða [okkur] sér við hönd“ í gegnum mótlæti til lækningar og friðar (sjá vers 10, 13).
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
Drottinn megnar að „haga öllu [mér] til góðs.“
Árið 1836 höfðu miklar skuldir hlaðist upp hjá kirkjunni við að framkvæma verk Drottins. Joseph Smith og aðrir höfðu áhyggjur af þessum skuldum og hugleiddu leiðir til að greiða þær (sjá kaflafyrirsögnina að Kenningu og sáttmálum 111).
Er þið lesið kafla 111, íhugið þá hvernig orð Drottins til Josephs gætu átt við ykkur – og það sem þið hafið áhyggjur af. Hvenær hafið þið til dæmis skynjað elsku Guðs „þrátt fyrir heimskupör [ykkar]“ (vers 1)? Hvernig hefur Drottinn hjálpað ykkur að finna óvæntan „fjársjóð“ (vers 10)? Hvað hefur hann hefur gert til að „haga öllu yður til góðs“ (vers 11)? Hvað kenna orðin „jafn óðum og þér eruð færir um að meðtaka það“ ykkur um himneskan föður?
Sjá einnig Matteus 6:19–21, 33; „More Treasures Than One,“ í Revelations in Context, 229–34.
Kenning og sáttmálar 112:3–15, 22.
Drottinn mun leiða mig er ég leita vilja hans af auðmýkt.
Thomas B. Marsh, forseti Tólfpostulasveitarinnar, var ósáttur við að Joseph Smith hafði kallað tvo meðlimi úr sveit hans til að kenna fagnaðarerindið í Englandi, án þess að ráðfæra sig við hann. Hann átti fund með spámanninum, sem meðtók opinberun sem hjálpaði Thomas að leggja særindi sín til hliðar. Sú opinberun er skráð í Kenningu og sáttmálum 112.
Hafið þetta samhengi í huga þegar þið lærið Kenningu og sáttmála 112. Hvað finnið þið sem gæti hafa mildað særðar tilfinningar Thomasar? Í versum 3–15 og 22 gætuð þið leitað svara við spurningum eins og þessari: Hvað er auðmýkt? Hver er merking þess fyrir Drottin að leiða ykkur „sér við hönd“? Hvers vegna haldið þið að það hjálpi ykkur að meðtaka leiðsögn Drottins að vera auðmjúkur? Þið gætuð fundið frekari svör í „Forskrift auðmýktar“ í boðskap öldungs Joseph W. Sitati „Forskrift lærisveinshlutverks“ (aðalráðstefna, okt. 2022).
Hugsið til einhvers sem þið þekkið sem er auðmjúkur. Hvað gerir þessi einstaklingur til að sýna auðmýkt? Hvað lærið þið af frelsaranum um það að vera auðmjúkur? Kannski getið þið fundið myndir af því þegar hann sýndi auðmýkt í lífi sínu.
Hvenær hafið þið skynjað leiðstögn Drottins þegar þið hafið auðmýkt ykkur?
Sjá einnig Ulisses Soares, „Verið hógvær og af hjarta lítillát,“ aðalráðstefna, okt. 2013; „The Faith and Fall of Thomas Marsh,“ í Revelations in Context, 54–60; Topics and Questions, „Humility,“ Gospel Library; „Beygðu kné þín,“ Sálmar, nr. 57.
Virkja nemendur. Hugsið um það hvernig þið getið hjálpað fólkinu sem þið kennið að taka virkan þátt í því að læra sannleika ritninganna. Þið gætuð til dæmis bundið fyrir augu einhvers til þess að hjálpa þeim að skilja hvað Drottinn sagði í Kenningu og sáttmálum 112:10 og leitt hann eða hana varlega um smá hindrunarbraut með stólum og öðrum hlutum. Hvað getum við lært um auðmýkt af þessum gjörningi?
Kenning og sáttmálar 112:12–26, 28, 33–34
Þeir sem sannlega hafa snúist til trúar þekkja Jesú Krist.
Sú staðreynd að sumir postular snerust gegn spámanninum árið 1837 er góð áminning um að burt séð frá kirkjuköllunum okkar eða hversu mikið við vitum um fagnaðarerindið, þá verðum við að sjá til þess sjálf að næra okkur til trúarumbreytingar á Jesú Krist. Ef til vill gætuð þið lesið Kenningu og sáttmála 112:12–26, 28, 33–34 og leitað sannleika sem gæti hjálpað ykkur að sigrast á trúaráskorunum eða til verða enn sannfærðari í trú ykkar á Drottinn. Þið gætuð fundið fyrir innblæstri til að miðla því sem þið finnið til að hjálpa einhverjum öðrum að styrkjast í trú sinni á Drottin.
Joseph Smith var „þjónn í hendi Krists.“
Spámaðurinn Jesaja vísaði til eins af niðjum Ísaí sem „kvist og „rótarkvist“ (Jesaja 11:1, 10). Í kafla 113, útskýrir Drottinn að þessi niðji, þjónn Krists, yrði verkfæri við samansöfnun fólks Drottins á síðari dögum (sjá Kenning og sáttmálar 113:4, 6). Þessi spádómur lýsir spámanninum Joseph Smith nokkuð vel. Hvernig gæti þessi og annar sannleikur í kafla 113 hafa hvatt hina heilögu á þeim erfiða tíma sem þeir upplifðu í Kirtland? Hvað finnið þið í þessari opinberun sem hvetur ykkur til vera sterk og halda áfram að taka þátt í verki Drottins á okkar tíma?
Sjá einnig Leiðarvísir að ritningunum, „Ísaí,“ Gospel Library; 2. Nefí 21:10–12; Joseph Smith – Saga 1:40.
Jesaja skrifaði um „[kvist]“ og „[sprota]“ sem koma af „stofni Ísaí“ (Jesaja 11:1).
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Kenning og sáttmálar 111:2, 10–11.
Það sem Guðs er getur verið mér fjársjóður.
-
Þið og börn ykkar gætu teiknað það sem kemur í hugann er þið heyrið orðin fjársjóður. Síðan gætuð þið lesið saman í Kenningu og sáttmálum 111:2, 10–11 og borið jarðneska fjársjóði saman við það sem Drottinn metur sem fjársjóð. (Sjá verkefnasíðu þessarar viku.) Hvernig getum við metið meira það sem Guðs er?
Drottinn mun leiða mig sér við hönd og svara bænum mínum.
-
Eftir að hafa lesið saman í Kenningu og sáttmála 112:10 gætuð þið og börn ykkar sungið saman „Beygðu kné þín“ (Sálmar, nr. 57). Þið gætuð einnig leikið leik sem felst í því að leiða hvort annað „við hönd“ (eins og á hindrunarbraut). Hvernig leiðir Drottinn okkur „við hönd“ þó hann sé ekki áþreifanlega með okkur? Hvers vegna þörfnumst við þess að Drottinn leiði okkur? Hvenær höfum við skynjað það að Drottinn sé að leiða okkur?
-
Þið eða börn ykkar gætuð skrifað niður orðin í Kenningu og sáttmálum 112:10 og strikað undir þær blessanir sem Drottinn veitir okkur þegar við snúum til hans í auðmýkt. Hvetjið börn ykkar til að miðla því þegar þau hafa auðmjúklega beðið um aðstoð Drottins og fengið svör við bænum sínum eða voru leidd til að gera eitthvað gott (sjá Moróní 7:13, 16).
Hluti af Rís upp og gakk, eftir Simon Dewey
Jesú Kristur vill að ég elski alla.
-
Þið og börn ykkar gætuð skipst á við að lesa úr „Kafla 41: Trouble in Kirtland“ (í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 158–60). Í sögunni, hver var það sem gerði vandamálin verri í Kirtland? Hver var að reyna að bæta hlutina? Því næst gætuð þið lesið Kenningu og sáttmála 112:11 og rætt um það hvers vegna frelsarinn vill að við elskum alla. Hvenær sýndi hann fólki kærleika, sem kom illa fram við hann? (sjá t.d. Lúkas: 23:343). Þið gætuð líka sungið söng um að elska aðra, eins og „Ég geng með þér“ (Barnasöngbókin, 78).
Chapter 41: Trouble in Kirtland: 1837–1838
Kenning og sáttmálar 112:11–14, 24–26
Þeir sem sannlega hafa snúist til trúar þekkja Jesú Krist.
-
Eftir að hafa lesið Kenningu og sáttmála 112:24–26, gætuð þið og börn ykkar rætt um muninn á milli þess að þekkja nafn einhvers og að þekkja hann eða hana. Hvaða kenningar úr versum 11–14 hálpa okkur að vita hvað það merkir að þekkja Drottin?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.