Doctrine and Covenants 2025
Raddir endurreisnarinnar: Vitni Mormónsbókar


„Raddir endurreisnarinnar: Vitni Mormónsbókar,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Vitni Mormónsbókar,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

Táknmynd radda endurreisnarinnar

Raddir endurreisnarinnar

Vitni Mormónsbókar

Engillinn Moróní sýndi Joseph Smith, Oliver Cowdery, David Whitmer og Martin Harris gulltöflurnar í skóginum nærri heimili Whitmer–fjölskyldunnar í Fayette, New York. Foreldrar Josephs voru í heimsókn hjá Whitmer–hjónunum á þeim tíma. Lucy Mack Smith, móðir Josephs, lýsti þeim áhrifum sem þessi undursamlega upplifun hafði á vitnin:

„Þetta var á milli þrjú og fjögur. Frú Whitmer og herra Smith og ég sjálf sátum í svefnherbergi. Ég sat á rúmstokknum. Þegar Joseph kom inn, hlammaði hann sér niður við hlið mér. ‚Faðir! Móðir!‘ sagði hann. ,Þið vitið ekki hve glaður ég er. Drottinn sá til þess að töflurnar voru sýndar þremur öðrum, auk mín, sem líka hafa séð engil og verða að bera vitni um sannleika þess sem ég hef sagt. Því þeir vita sjálfir að ég fer ekki um og blekki fólk. Mér líður sem þungri byrði hafi verið af mér létt, sem mér var næstum um megn að bera. Þeir verða nú að bera hluta hennar og það gleður sál mína að ég þarf ekki lengur að vera algjörlega einn hér í heimi.‘ Martin Harris kom síðan inn fyrir. Hann virtist næstum yfirkominn af mikilli gleði. Hann bar síðan vitni um það sem hann hafði séð og heyrt og það gerðu hinir líka, Oliver og David. Vitnisburðir þeirra voru í aðalatriðum þeir sömu og eru í Mormónsbók. …

Martin Harris virtist einkum allsendis ómögulegt að tjá tilfinningar sínar með orðum. Hann sagði: ,Ég hef nú séð engil frá himni, sem vissulega vitnaði um sannleika alls þess sem ég hef heyrt um heimildina og ég leit hann eigin augum. Ég hef líka séð gulltöflurnar og þreifað á þeim eigin höndum og um það get ég borið öllum heiminum vitni. Ég hef sjálfur hlotið vitni sem orð fá ekki lýst, sem engin tunga fær tjáð, og ég vegsama Guð af einlægni sálar minnar, yfir að hann hefur gert mig, já jafnvel mig sjálfan, að vitni að mikilleika verks hans og fyrirætlan í þágu mannanna barna.‘ Oliver og David sameinuðust honum líka í hátíðlegri lofgjörð til Guðs, fyrir gæsku hans og miskunn. Við fórum aftur heim [til Palmyra, New York,] daginn eftir, glaðvær og kátur lítill hópur.“

Oliver Cowdery, David Whitmer og Martin Harris

Oliver Cowdery, David Whitmer og Martin Harris

Lucy Mack Smith var líka viðstödd þegar vitnin átta komu aftur eftir upplifun sína:

A painting depicting Lucy Mack Smith, mother of Joseph Smith.

„Eftir að þessi vitni komu aftur í húsið, birtist engillinn Joseph aftur; á þeirri stundu fól Joseph töflurnar í hans hendur. Um kvöldið höfðum við samkomu, þar sem öll vitnin báru vitni um ofangreindar staðreyndir; og allir í fjölskyldu okkar, jafnvel Don Carlos [Smith], sem aðeins var 14 ára gamall, báru vitni um sannleika síðari daga ráðstöfunar – að hún hefði þegar verið innleidd til fulls.“

lágmyndarskurður af Joseph Smith og vitnunum átta

Lágmyndarskurður af Joseph Smith og vitnunum átta

Auk vitnanna þriggja og vitnanna átta var Mary Whitmer, móðir Davids Whitmer, líka blessuð til að vera vitni að gulltöflunum. Engillinn Moróní sýndi henni þær sem viðurkenningu fyrir þær fórnir sem hún færði meðan Joseph, Emma og Oliver dvöldu á heimili hennar. Moróní sagði við hana: „Þú hefur verið afar trúföst og kostgæfin í starfi þínu. Það er því viðeigandi að þú skulir hljóta vitni, svo trú þín megi styrkjast.“