„3.–9. febrúar: ‚Þetta er andi opinberunar‘: Kenning og sáttmálar 3–9,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Kenning og sáttmálar 6–9,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
3.–9. febrúar: „Þetta er andi opinberunar“
Kenning og sáttmálar 6–9
Haustið 1828 tók ungur kennari að nafni Oliver Cowdery að sér kennslustaf í Manchester, New York, og dvaldi hjá fjölskyldu Lucy og Joseph Smith eldri. Oliver hafði heyrt sagt frá Joseph, syni þeirra og undraverðri upplifun hans og Oliver, sem taldi sig vera sannleiksleitanda, vildi vita meira. Smith-hjónin sögðu frá englavitjunum, fornum heimildum og gjöf til að þýða með krafti Guðs. Oliver varð heillaður. Gæti þetta verið satt? Lucy og Joseph eldri veittu honum leiðsögn, sem á við alla sannleiksleitendur, að biðja og spyrja Drottin.
Oliver gerði það og Drottinn svaraði með því að veita honum „hugarró“ (Kenning og sáttmálar 6:23). Oliver uppgötvaði að opinberun væri ekki bara fyrir spámenn eins og Joseph Smith. Allir geta hlotið hana sem vilja og leita hennar af kostgæfni. Oliver átti þó margt eftir ólært, en hann vissi nógu mikið til að taka næsta skref. Oliver vissi að Drottinn var að koma einhverju mikilvægu til leiðar fyrir milligöngu Josephs og hann vildi taka þátt í því.
Sjá einnig Saints, 1:58–64; „Days of Harmony“ (myndband), Gospel Library.
Days of Harmony
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
Himneskur faðir talar til mín með heilögum anda.
Vorið 1829 bauð Oliver Cowdery sig fram sem ritara Josephs Smith við áframhaldandi þýðingu Mormónsbókar. Hann heillaðist af þeirri upplifun og velti fyrir sér hvort hann gæti líka hlotið opinberun og gjöf þýðingar. Fyrsta tilraun hans gekk þó ekki vel.
Ef þið hafið einhvern tíma átt í erfiðleikum með að taka á móti eða skilja opinberun, gætuð þið ef til vill tengt við upplifun Olivers – og lært af henni. Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 6, 8 og 9, gætið þá að því sem Drottinn kenndi Oliver um persónulega opinberun. Dæmi:
-
Hvað er lagt til í Kenningu og sáttmálum 6:5–7; 8:1; 9:7–8 varðandi það sem Drottinn krefst af ykkur áður en hann opinberar vilja sinn?
-
Hvað lærið þið af Kenningu og sáttmálum 6:14–17, 22–24; 8:2–3; 9:7–9 um hvernig opinberun getur borist á ólíka vegu? Hvernig getið þið borið kennsl á hana?
-
Hvað annað lærið þið um opinberun af þessum hlutum?
Upplifun Olivers gæti hvatt ykkur til þess að „hugleiða“ þær stundir þegar ykkur hefur fundist Drottinn vera að tala til ykkar (Kenning og sáttmálar 6:22). Hafið þið einhvern tíma skráð hugsanir ykkar eða tilfinningar varðandi slíkar upplifanir? Ef svo er, íhugið þá að lesa það sem þið skrifuðuð. Ef svo er ekki, gefið ykkur þá tíma til að skrifa það sem þið munið eftir. Íhugið hvernig þessar upplifanir geta áfram veitt ykkur styrk. Til að fá hugmyndir, sjá þá boðskap öldungs Neil L. Andersen „Andlega auðkennandi minningar“ (aðalráðstefna, apríl 2020.)
Nokkrir kirkjuleiðtogar hafa miðlað reynslu sinni af opinberun í myndbandaröðinni „Hlýð þú á hann.“ Eftir að hafa horft á eitt eða fleiri þessara myndbanda, gætuð þið fundið fyrir innblæstri til að skrá ykkar eigin reynslu og miðlað því hvernig Drottinn hefur talað til ykkar.
Sjá einnig Topics and Questions, „Personal Revelation,“ Gospel Library; „Oliver Cowdery’s Gift,“ í Revelations in Context, 15–19.
Kenning og sáttmálar 6:18–21, 29–37
Beinið öllum hugsunum til Krists.
Drottinn vissi að Joseph Smith myndi verða fyrir „erfiðleikum“ á komandi árum (Kenning og sáttmálar 6:18). Hann veit líka hvaða erfiðleika þið upplifið í framtíðinni. Hvað finnið þið í leiðsögn hans til Josephs og Olivers í Kenningu og sáttmálum 6:18–21, 29–37 sem hjálpar ykkur að treysta honum?
Hver finnst ykkur merking þess vera að „[Beina] öllum hugsunum yðar til [Krists]“? (vers 36). Hvernig getið þið gert þetta af stöðugleika – á góðum tímum og í „erfiðleikum“? Hugleiðið þessa leiðsögn frá Russell M. Nelson forseta: „Það er erfitt fyrir hugann að reyna að einblína á hann í sérhverri hugsun. Þegar við þó gerum það, munu efasemdir og ótti hverfa“ („Að færa kraft Jesú Krists inn í líf okkar,“ aðalráðstefna, apríl 2017).
Sjá einnig Neil L. Andersen, „Hugur minn náði tökum á þessari hugsun um Jesú Krist,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
Hluti af Sjá, hönd mína, eftir Jeffrey Ward
„Óttist ei að gjöra gott.“
Af hverju „[óttumst við stundum] að gjöra gott“? (vers 33). Hvað finnið þið í Kenningu og sáttmálum 6:29–37 sem veitir ykkur hugrekki til að gjöra gott? Íhugið að syngja eða hlusta á sálm sem innblæs hugrekki í Kristi, t.d. „Fylkjum liði“ (Sálmar, nr. 93).
Kenning og sáttmálar 6–7; 9:3, 7–14
„Hvað sem þér þráið af mér, það mun yður veitast.“
Gætið að því hversu oft orð eins og „þrá“ eða „þrár“ koma fyrir í kafla 6 og 7. Hvað lærið þið af þessum köflum um þá áherslu sem Guð leggur á þrár ykkar? Spyrjið ykkur spurningar Drottins í Kenningu og sáttmálum 7:1: „Hvað þráir þú?“
Ein af réttlátum þrám Olivers Cowdery – að þýða eins og Joseph Smith gerði – uppfylltist ekki. Hvaða hughrif hljótið þið við lestur Kenningar og sáttmála 9:3, 7–14, sem gæti hjálpað ykkur þegar réttlátar þrár ykkar uppfyllast ekki að sinni?
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 11:8; Dallin H. Oaks, „Þrá,“ aðalráðstefna, apríl 2011.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Kenning og sáttmálar 6:5, 15–16, 22–23; 8:2; 9:7–9
Himneskur faðir talar til mín með heilögum anda.
-
Sannleikurinn sem Oliver Cowdery lærði um persónulega opinberun getur hjálpað börnum ykkar þegar þau þróa hæfni til að bera kennsl á heilagan anda. Þið gætuð notað „5. kafla: Joseph Smith og Oliver Cowdery“ (í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 22–25, eða samsvarandi myndband í Gospel Library) til að kenna þeim um Oliver og það sem hann lærði. Miðlið hvert öðru ykkar eftirlætis hlutum frásagnarinnar. Þegar þið gerið það, skuluð þið leggja áherslu á það sem Drottinn kenndi Oliver um hvernig heyra á rödd Guðs og lesið viðeigandi vers, eins og Kenningu og sáttmála 6:23 eða 9:7–9.
3:11The Lord Sends Oliver Cowdery: Learning about how God speaks to us
Oliver Cowdery lærði um opinberun meðan hann hjálpaði Joseph Smith að þýða Mormónsbók.
-
Þið gætuð líka boðið börnum ykkar að snerta höfuð sitt og brjóst þegar þið lesið orðin „hugur“ og „hjarta“ í Kenningu og sáttmálum 8:2. Segið börnum ykkar af eigin reynslu hvernig það er þegar heilagur andi talar í huga ykkar og hjarta. Hjálpið þeim að finna svör við spurningunni: „Hvernig talar heilagur andi til okkar?“ í þessum versum: Kenning og sáttmálar 6:15–16, 22–23; 8:2; 9:7–9.
Notið frásagnir. Sögur hjálpa börnum að skilja reglur fagnaðarerindisins, vegna þess að þær sýna hvernig annað fólk lifir eftir þeim reglum. Þegar þið kennið, finnið þá leiðir til að hafa með sögur – úr ritningunum, úr kirkjusögunni eða úr ykkar eigin lífi – sem sýna reglurnar í ritningunum.
Vegna Jesú Krists þarf ég ekkert að óttast.
-
Drottinn sagði við Joseph og Oliver: „Óttast … ekki, litla hjörð“ (Kenning og sáttmálar 6:34). Þið gætuð boðið börnum ykkar að endurtaka þetta orðtak með ykkur nokkrum sinnum. Þau gætu líka haft gaman af því að þykjast vera hjörð hræddra sauða. Hvað gæti sauður óttast? Þið og börn ykkar gætuð síðan horft á mynd af frelsaranum sem hirði (það er ein slík aftast í þessum lexíudrögum) og rætt hvernig hann vakir yfir okkur eins og hirðir vakir yfir sauðum sínum.
-
Íhugið að leika eða syngja söng um að finna hugrekki í Kristi, t.d. „Gjör allt þitt rétt“ (Barnasöngbókin, 80) eða „Fylkjum liði“ (Sálmar, nr. 93). Hvað kennir söngurinn okkur um það hvernig frelsarinn hjálpar okkur að óttast ekki?
Ég get beint öllum hugsunum til Krists.
-
Eftir að hafa lesið saman Kenningu og sáttmála 6:36, gætuð þið og börnin ykkar teiknað myndir til að hjálpa ykkur að muna að „[beina] öllum hugsunum … til [Jesú Krists].“ Miðlið hvert öðru teikningum ykkar og hjálpið börnum ykkar að hugsa hvar þau gætu sett þær svo þau sjái þær oft.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.