„Spámaðurinn Mormón,“ Sögur úr Mormónsbók (2023)
Spámaðurinn Mormón
Skrifar Mormónsbók
Mormón var Nefíti sem trúði á Jesú Krist. Hann ólst upp á tíma þar sem margir hlýddu ekki boðorðum Guðs. Fólkið rændi og drap hvert annað fyrir peninga og völd. Það voru mörg stríð.
3. Nefí 5:12–13; 4. Nefí 1:27–49; Mormón 1:1–3, 15, 18–19
Þegar Mormón var 10 ára, kom til hans maður að nafni Ammaron. Ammaron sá um heimildirnar um sögu Nefítanna. Ammaron treysti Mormón og sagði honum að heimildirnar væru faldar í hæð. Ammaron sagði að þegar Mormón væri 24 ára gamall ætti hann að rita það sem hann hafði séð um fólk þeirra og bæta því við heimildirnar.
Þegar Mormón óx úr grasi mundi hann eftir því sem Ammaron hafði beðið hann að gera. Þegar Mormón var 15 ára gamall vitjaði Drottinn hans. Mormón lærði um gæsku Jesú.
Mormón var sterkur þótt hann væri ungur. Nefítarnir völdu hann til að stjórna herjum sínum. Mormón elskaði fólkið af öllu hjarta. Hann vildi að það hlýddi Guði og væri hamingjusamt.
Mormón 2:1–2, 12, 15, 19; 3:12
Mormón reyndi að hjálpa fólkinu. Hann bað fyrir þeim hvern dag. Fólkið vissi að það væri að gera slæma hluti, en það vildi ekki iðrast. Það hafði ekki lengur kraft Guðs til að hjálpa þeim. Kraftaverkum linnti, vegna þess að það hafði enga trú. Það hélt áfram að berjast og margt þeirra lést. Mormón var dapur.
Mormón 1:13–14, 16–19; 2:23–27; 3:1–12; 4:5, 9–12; 5:1–7
Þegar Mormón var um 24 ára, fór hann til hæðarinnar þar sem heimildirnar voru faldar. Hann byrjaði að skrifa sögur og kenningar fólksins á málmplötur. Guð hjálpaði honum að vita hvað hann ætti að skrifa. Mormón vann að heimildinni í mörg ár. Á okkar tíma er heimildin kölluð Mormónsbók.
Orð Mormóns 1:3–9; Mormón 1:3–4; 2:17–18
Eftir margar styrjaldir höfðu Lamanítar drepið næstum alla Nefítana. Mormón vissi að fólkið hans yrði brátt horfið. Hann var sorgmæddur vegna þess að það hafði ekki iðrast og beðið Guð um hjálp. Hann baðst samt fyrir og bað Guð að vernda töflurnar. Hann vissi að töflurnar yrðu öruggar, því á þeim voru orð Guðs.
Orð Mormóns 1:11; Mormón 5:11; 6:6, 16–22
Hann vildi að fólkið tryði á Jesú. Hann vonaðist til að margir myndu lesa bókina í framtíðinni. Hann langaði sérstaklega til þess að fjölskyldur Lamanítanna læsu hana einhvern daginn. Ef þær gerðu það, myndu þær læra um Jesú. Áður en Mormón dó, afhenti hann syni sínum Moróní heimildirnar, svo þær væru öruggar.