Sögur úr ritningunum
Jesús vitjar fólksins


„Jesús vitjar fólksins,“ Sögur úr Mormónsbók (2023)

3. Nefí 7–11

Jesús vitjar fólksins

Hjálpa öllum að trúa á hann

fjölskylda horfir til himins og aðrir íbúar borgarinnar rífast

Margir meðal fólksins vildu ekki hlusta á spámenn Guðs. Sumir trúðu þó því sem spámennirnir kenndu. Hinir trúuðu biðu táknanna um dauða Jesú Krists.

3. Nefí 7:16–26; 8:1–4

eldingar, stormar, flóð, jarðskjálftar og eldar eyðileggja borg

Táknin hófust eftir að Jesús dó í Jerúsalem. Í Ameríku voru stormar, jarðskjálftar og eldar í þrjár klukkustundir. Borgir eyðilögðust og margir létust. Síðan var niðamyrkur í þrjá daga.

3. Nefí 8:5–19, 23

einhver reynir að kveikja eld, en hann kviknar ekki og allt er dimmt

Það var niðamyrkur svo að fólkið gat ekki séð sólina, tunglið eða stjörnurnar. Það gat ekki einu sinni kveikt eld eða á kertum.

3. Nefí 8:20–23

það er enn myrkur, fólk hjálpar hvert öðru í gegnum brotna byggingu og einhver grætur og biðst fyrir

Mörg þeirra sem enn voru á lífi voru mjög sorgmædd og hrædd. Þau grétu og sáu eftir því að hafa ekki iðrast fyrr.

3. Nefí 8:24–25

það er enn dimmt, fólk horfir til himins og sá sem biðst fyrir er hættur að gráta

Skyndilega heyrðu þau rödd. Jesús var að tala við þau. Hann lofaði að lækna alla sem iðruðust. Jesús sagði þeim að hann hefði dáið og væri risinn aftur til að hjálpa öllu fólki. Fólkið varð svo agndofa, að það hætti að gráta. Það var þögn í landinu í margar stundir.

3. Nefí 9; 10:1–2

fjölskyldur sitja í hring og brosa og það er ekki lengur myrkur

Jesús mælir á ný. Hann sagði fólkinu að hann myndi hjálpa því ef það kysi að fylgja honum. Myrkrið hvarf og jörðin hætti að skjálfa. Fólkið var hamingjusamt og lofaði Jesú.

3 Nefí 10:3–10

stór hópur fólks safnast saman umhverfis musterið og horfir til himins þegar dökk skýin byrja að lýsast upp

Um ári síðar kom margt fólk saman til musterisins í landi Nægtarbrunns. Þau töluðu um Jesú og táknin um dauða hans. Er þau töluðu saman, heyrðu þau hljóða rödd frá himni. Í fyrstu skildu þau hana ekki. Svo heyrðu þau hana aftur.

3. Nefí 8:5; 10:18; 11:1–4

Jesús Kristur stígur af himnum og fólkið gleðst og tekur fagnandi á móti honum

Þegar þau heyrðu röddina í þriðja sinn, litu þau til himins. Það var himneskur faðir sem talaði. Hann sagði fólkinu að sjá og hlusta á son sinn. Þá sá fólkið mann í hvítum kyrtli stíga niður af himni.

3. Nefí 11:5–8

Jesús Kristur stendur meðal fólksins og fólkið kemur til hans og snertir naglaförin í lófum hans

Maðurinn stóð meðal fólksins og sagði: „Ég er Jesús Kristur.“ Fólkið féll til jarðar. Jesús sagði þeim að hann hefði þjáðst og dáið fyrir alla. Hann bauð fólkinu að snerta förin á höndum sínum, fótum og síðu, svo það gæti vitað að hann er frelsari heimsins.

3. Nefí 11:8–14

Jesús Kristur situr á musteriströppunum og fólkið kemur til hans og snertir naglaförin í lófum hans

Mannfjöldinn kom til Jesú einn í einu. Þeir sáu með eigin augum og fundu með eigin höndum förin á höndum hans, fótum og síðu. Allir vissu að hann var sá sem spámennirnir sögðu að myndi koma. Þau vissu að hann er frelsari heimsins. Fólkið féll að fótum Jesú og tilbað hann.

3. Nefí 11:15–17