2025
Minnumst Nelsons forseta
Nóvember 2025


„Minnumst Nelsons forseta,“ Líahóna, nóv. 2025.

Kirkjutíðindi

Minnumst Nelsons forseta

Fjölskylda, vinir og leiðtogar heiðra 17. forseta kirkjunnar fyrir kærleika hans, þjónustu og hollustu við Jesú Krist.

Tveimur dögum eftir lok aðalráðstefnunnar lofuðu leiðtogar kirkjunnar og fjölskylda Russell M. Nelson forseta sem ástríkan föður og eiginmann, kæran vin, tryggan lærisvein Drottins Jesú Krists og innblásinn spámann Guðs.

Líf Nelsons forseta „bar vitni um trúfastan vitnisburð hans sem spámanns og þjóns Drottins Jesú Krists,“ sagði Dallin H. Oaks forseti við útför Nelsons forseta, 7. október 2025, í Ráðstefnuhöllinni. Oaks forseti kallaði Nelson forseta, sem lést á friðsælan hátt á heimili sínu þann 27. september 2025, „minn besta vin og minn áhrifaríkasta kennara“.

Oaks forseti kallaði Nelson forseta einnig „einn öflugasta trúboða Ísraels í verki.“ Hann sagði: „Bros hans, hlý rödd hans og kraftur nærveru hans bræddi hjörtu“ þjóða og trúarleiðtoga.

Oaks forseti og fimm aðrir ræðumenn heiðruðu Nelson forseta fyrir kærleika hans, þjónustu og hollustu við Drottin Jesú Krist og börn Guðs um allan heim.

Ásamt öðrum ræðumönnum þakkaði hann systur Wendy Watson Nelson fyrir að annast og styðja Nelson forseta í 19 ára hjónabandi þeirra. Hann þakkaði einnig Dantzel White Nelson, látinni eiginkonu Nelsons forseta, og 10 börnum þeirra fyrir trúfesti þeirra við „það sem hann prédikaði og lifði fyrir.“

Öldungur Henry B. Eyring, sem þjónaði með Oaks forseta og Nelson forseta í Æðsta forsætisráðinu, bar vitni um spámannlega köllun Nelsons forseta og getu hans og þrá til að blessa aðra.

„Þegar ég þjónaði við hlið hans í Æðsta forsætisráðinu, frá byrjun janúar 2018, varð ég persónulegt vitni að þeirri staðreynd að Drottinn innblæs spámanni sínum,“ sagði öldungur Eyring. „Ég er þakklátur fyrir að hafa þekkt Russell M. Nelson forseta.“

Öldungur Jeffrey R. Holland í Tólfpostulasveitinni og Camille N. Johnson forseti, aðalforseti Líknarfélagsins, hrósuðu Nelson forseta fyrir óbrigðula góðvild hans í garð fólks, bæði innan og utan kirkjunnar.

„Að fá tækifæri til að sjá hann elska fólkið og fólkið elska hann, skapaði fegurstu minningarnar,“ sagði öldungur Holland. Hann minntist Nelsons forseta sem „þess sem hélt í hendur og græddi hjörtu.“

Johnson forseti bætti við: „Nelson forseti hefur bókstaflega breytt heiminum, einni persónu í einu og með einum samskiptum í einu og hann hefur boðið okkur að gera slíkt hið sama, með því að beita krafti Guðs sem sáttmálskonur og karlar.“

Tvö barna Nelsons forseta, Laurie N. Marsh og Russell M. Nelson yngri, sögðu föður sinn hafa lifað í gleði vegna þess að hann hafði frelsarann Jesú Krist að þungamiðju lífs síns og hafði hirðisþjónustu í fyrirrúmi.

„Við ólumst upp á heimili sem hafði frelsarann að þungamiðju og var fullt gleði,“ sagði systir Marsh. Hún sagði markmið fjölskyldunnar hafi verið að verða eilíf fjölskylda.

Bróðir Nelson bætti því við að faðir hans hefði verið óþreytandi í þjónustu sinni. „Nelson forseti sýndi okkur frá fyrstu hendi að það er engin hvíld í hans útgáfu af endurreisninni.“ Hann sagði að þegar hann var kallaður til að leiða kirkjuna hafi faðir hans lofað að þjóna föðurnum og syninum allt til dauðadags. „Hann gerði einmitt það.“

Marjorie N. Lowder og Gloria N. Irion, dætur Nelsons forseta, fluttu bænir við athöfnina. Tabernacle Choir at Temple Square sá um tónlistarflutning.

Útför Nelsons forseta fór fram eftir lofgjörðarathöfn, sem haldin var honum til heiðurs, 1. október og var útvarpað frá Laufskálanum á Musteristorginu. Oaks forseti, öldungar Holland og Eyring, Yfirbiskup Gérald Caussé, öldungur Carl B. Cook í forsætisráði hinna Sjötíu og Susan H. Porter forseti Barnafélagsins vottuðu virðingu sína og deildu ljúfri persónulegri reynslu af þjónustu með Nelson forseta og tilfinningum sínum um fyrirmyndarlíf hans, kristilega þjónustu og innblásnar kenningar.

Í ávarpi sínu kallaði Oaks forseti Nelson forseta „spámann kærleikans,“ sem „prédikaði fagnaðarerindi kærleikans.“

Til að læra meira um líf og þjónustu Nelsons forseta, sjá In Memoriam: President Russell M. Nelson, 1924–2025, birt sem viðbót við nóvember 2025 útgáfu tímarita kirkjunnar.