2007
Spurningar og svör
Apríl 2007


Spurningar og svör

„Einn vina minna í kirkjunni lifir ekki eftir sumum reglum kirkjunnar. Ég hef áhyggjur af honum. Hvernig get ég komið til hjálpar?“

  • Ekki lækka staðal þinn í þeim tilgangi að hjálpa vini þínum.

  • Þú skalt biðjast fyrir um að heilagur andi veiti þér vitneskju um hvað gera skal og gakktu svo til verks!

  • Treystu því að himneskur faðir starfi í gegnum þig við að hafa áhrif á líf vinar þíns.

  • Bjóddu vini þínum að vera með í hollum athöfnum, svo hann finni fyrir andanum og vilji breyta rétt.

  • Það veitir þér hamingju að sýna gott fordæmi við að halda boðorðin.

Líahóna

Þú getur hjálpað með því að vera honum vinur. Vinur þinn gæti verið að finna sjálfan sig og sinn stað. Hann þarf einhvern til að ræða við, fara með á hollar skemmtanir og líta til sem fyrirmyndar. Finndu tækifæri til þess að ræða við hann um þau skipti sem þú hefur notið blessana af því að lifa eftir lífsreglum þínum, en þó án þess að vera gagnrýninn eða sýna sjálfumgleði.

Hafðu staðal þinn háan. Hvernig sem þú bregst við þessu, þá skaltu ekki lækka staðal þinn í þeim tilgangi að hjálpa vini þínum. Forðastu allar þær aðstæður þar sem heilagur andi mun ekki geta veitt þér innblástur í. Vinur þinn kann að halda áfram að breyta ranglega þrátt fyrir vinskap þinn og áhyggjur. Þú getur hugsanlega þurft að finna þér aðra vini svo þú fallir ekki í sama far og vinur þinn.

Gefðu þér tíma til að biðjast fyrir. Þú skalt biðja fyrir vini þínum og einnig fyrir sjálfum þér. Í bænum þínum skaltu biðja þess að þér gefist tækifæri til að koma honum til hjálpar og að þú munir vita þegar þau gefast og njóta leiðsagnar við hjálpina. Þú skalt biðja þess að viðbrögð þín megi einkennast af kristilegum kærleika, en ekki aðeins löngun til að breyta honum. Gakktu svo til verks!

Ekki gefast upp. Vinur þinn mun líklega ekki breytast í einu vetfangi. Slíkt krefst stöðugrar og einlægrar áreynslu. Í raun kann svo að fara að þú munir aldrei vita hvaða áhrif orð þín eða fordæmi hafa á hann, en ef þú reynir að ná til hans, ertu að gera gæfumuninn. Jakob, sem er spámaður í Mormónsbók, kann að hafa haldið að Enos, sonur hans, hafi ekki lagt eyru við kennslu hans, en að því kom að „orð föður [Enosar] um eilíft líf og gleði heilagra, sem [hann] hafði oft heyrt, smugu djúpt inn í hjarta [hans]“ og hann iðraðist (sjá Enos 1:3–5). Orð þín og fordæmi hafa áfhrif, þótt þau geri það ekki samstundis.

Hafðu vin þinn með. Minnstu dæmisögunnar um hirðinn sem yfirgaf sauðina 99 til að finna hinn týnda. Hann vitjaði ekki aðeins týnda sauðsins og sneri svo einsamall til hjarðarinnar. Hann fór með sauðinn til baka. (Sjá Lúk 15:4–7.) Bjóddu vini þínum í félagsstarf fólks sem hefur sett sér háan lífsstaðal. Sú reynsla stuðlar að því að hann greini blessanir réttláts lífernis og finnist gott að vera meðal fólks með há lífsgildi. Vondandi mun hann greina, að sú hamingja sem hann upplifir með slíkri þátttöku, er betri en sú stundaránægja sem hann fær út úr óhlýðninni.

Þegar þú reynir að hjálpa vini þínum, getur þú reitt þig á hjálp Drottins, því hann vill líkt og þú að vinur þinn breyti vel í lífi sínu. Þegar Nefí reyndi að hjálpa þjóð sinni, sagði Drottinn við hann: „Ég mun gera þig máttugan í orði og verki“ (He 10:5; skáletur hér) – og það gerði hann. Himneskur faðir mun starfa í gegnum þig, ef þú helgar honum tíma og verk.

Lesendur

Haltu áfram að vera vinur. Vinur þinn lítur upp til þín og fylgist með því sem þú gerir. Hann sækist líklega eftir því sem í fari þínu býr, en veit bara ekki hvernig hann á að tileinka sér það. Þú þarft ekki að samsinna honum í öllu sem hann segir og gerir. Láttu hann bara finna að þú ert til staðar fyrir hann. Það kann stundum að vera erfitt, en það er þess virði. Allt mun fara vel, ef þú biður Drottin um hjálp.

Stephanie C., 16 ára, Bandaríkjunum

Ég átti vin sem um langa hríð var virkur í kirkjunni. Hann kom alltaf einn, því fjölskylda hans hafði ákveðið að fara ekki oftar í kirkju. Styrkur hans og hugrekki vakti aðdáun mína. En svo dag einn heyrði ég að hann væri hættur að koma í kirkju. Ég fann mig sterklega knúna af andanum til að ræða við hann. Ég sagði honum hve mér þótti mikið til þess koma að hann kæmi einsamall í kirkju og hvatti hann til að gefast ekki upp. Næsta sunnudag kom hann á sakramentissamkomu og upp frá því hefur hann komið í kirkju. Við getum verið fyrirmynd vina okkar, með því að vera trúföst og lifa eftir fagnaðarerindinu, og sýna þeim elsku og nauðsynlegan stuðning.

Marina V., 18 ára, Svíþjóð

Ég held í raun að best væri að ræða við hann. Vertu hreinskilinn en ljúfur. Ég held að það krefjist hugrekkis og ég held að best væri að gera það með bæn, því hjálp stendur þér til boða. Ég á einnig vini líka þínum, og ég legg mikið á mig við að hvetja þá til réttrar breytni, því ég vil eiga samveru við þá í himneska ríkinu. Vera kann að þú þurfir að breyta ýmsu hjá sjálfum þér í þeim tilgangi að auka áhrif þín á aðra. Mikilvægt er að þú reynir dag hvern að bæta sjálfan þig.

Eimi H., 17 ára, Japan

Ég á vin sem ekki lifir eftir sumum reglum kirkjunnar og ég hef sektarkennd yfir því að segja honum ekki hvað mér finnst um það. Segðu vini þínum frá því hvað þér finnst og minnstu hans í bænum þínum. Haltu áfram að vera vinur hans, svo framarlega að þú fetir ekki í hans fótspor. Ræddu við biskup þinn, ef þetta er alvarlegs eðlis.

Deborah S., 14 ára, Bandaríkjunum

Ég myndi reyna að taka með vini mínum þátt í skemmtilegum og heilbrigðum athöfnum, sem samræmast fagnaðarerindinu. Þannig gæti hann séð að hægt er að skemmta sér á marga vegu, án þess að gera eitthvað slæmt. Ég myndi ekki styðja hann í rangri breytni, heldur veita honum leiðsögn og styrk með eigin fordæmi. Gott væri að ræða við hann og láta hann vita að þér sé annt um hann og minna hann á að þessi veikleiki hans getur orðið styrkur hans (sjá Eter 12:27). Láttu hann vita af því að hann þurfi sjálfur að taka ákvarðanir varðandi eigið líf og að þú viljir styðja hann. Þú þarft að vera sterkur og standa gegn því að breytni vinar þíns hafi áhrif á þig sjálfan.

Jorge B., 17 ára, Ekvador

Gott fordæmi er afar mikilvægt í þessum aðstæðum. Við getum einnig stöðugt beðið fyrir vinum okkar og leitað leiða til að hjálpa þeim. Við getum fastað og beðið himneskan föður að hjálpa okkur að segja réttu orðin, svo þeir skilji betur hvers vegna fagnaðarerindið veiti okkur hamingju.

Virginia C., 17 ára, Úrúgvæ

Þú þarft að sýna vini þínum gott fordæmi. Bjóddu honum að taka þátt í starfi ungmenna. Það væri áhrifaríkara, ef þú færir með honum. Gefðu honum vitnisburð þinn um það sem þú hefur uppskorið við að lifa eftir reglum fagnaðarerindisins.

Jared Q., 16 ára, Filippseyjum

Svörin eru aðeins gildar og gagnlegar leiðbeiningar en ekki yfirlýstar kenningar kirkjunnar.

„Margt af okkar unga fólki lætur laðast og lokkast í ranga átt og til að taka þátt í syndum heimsins. Slíkir einstaklingar leita ákaft að styrk þeirra sem hafa getu til að standa stöðug í sannleikanum. Við getum bjargað og frelsað, með því að lifa réttlátlega, rétta öðrum hjálparhönd og vera skilningsrík í hjarta. Hversu mikil skal þá gleði yðar verða. Hversu eilífar skulu blessanirnar verða sem þið hafið stuðlað að.“

Thomas S. Monson forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, “An Example of the Believers,” Ensign, nóv. 1992, 98.