Samverustundin
Hann lifir!
„Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ (Jóh 3:16).
Systir Nielson var að kenna Sólskinsbekknum. Hún hélt á mynd af Jesú upprisnum og sýndi sár hans.
„Áttu við að hann hafi lifað aftur eftir dauðann?“ spurði Heather.
Jack hrópaði: „Já, hann gerði það! Við munum líka lifa aftur!“
Hvernig vissi hinn þriggja ára gamli Jake að Jesús lifir að nýju? Hvernig vissi hann að hann myndi líka lifa að nýju?
Í hverri viku hlustaði Jake á kennslu systur Nielsons. Hún kenndi um Jesú og gaf vitnisburð sinn. Jake hlustaði á foreldra sína á fjölskyldukvöldi og við önnur tækifæri. Þeir kenndu um Jesú og gáfu vitnisburð sinn um hann. Tilfinning í brjósti Jake sagði honum að trúa því sem kennarinn og foreldrar hans kenndu honum.
Eftir að Jesús reis upp, sýndi hann sig lærisveinum sínum. Tómas var ekki meðal þeirra. Hinir lærisveinarnir sögðu Tómasi frá því að þeir hefðu séð Jesú. En Tómas svaraði: „Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fingur minn í naglaförin og lagt hönd mína í síðu hans, mun ég alls ekki trúa“ (Jóh 20:25).
Átta dögum síðar sýndi Jesús sig Tómasi. Jesús lét Tómas þreifa á sárunum á höndum sínum og síðu sinni. Jesús sagði við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó“ (Jóh 20:29).
Við getum líkt og Jake trúað á Jesú þótt við höfum ekki séð hann. Trú okkar mun styrkjast þegar við vitum, án þess að sjá, að Jesús er frelsari okkar.
Föndur og leikur
Límið síðu B4 á þykkan pappír og klippið út myndirnar af Jesú, Maríu Magdalenu, postulunum og Tómasi. Brjótið eftir brotalínunni, svo myndirnar geti staðið uppi. Segið fjölskyldu ykkar frá sögunni í Jóhannes 20, um alla þá sem sáu frelsarann eftir upprisu hans.
Hugmyndir að samverustund
-
1. Sýnið þrjá skókassa. Takið skópar úr hverjum kassanna. (Þið getið einnig sýnt myndir eða teikningar af skóm.) Sýnið stígvélapar sem tákna á hermennina sem stóðu vörð um gröf Jesú. Segið söguna á þann hátt að börnin eigi auðvelt með að ímynda sér aðstæðurnar þegar Jesús Kristur var lagður í gröfina. Notið næst sandalapar til að segja söguna af Maríu Magdalenu. Spyrjið börnin hvað þeim finnist um það ef þau hefðu verið við gröfina þegar frelsarinn birtist upprisinn. Sýnið svo loks skópar, sem er líkt því sem börnin nota sjálf. Spyrjið hvernig það sé að vera meðlimur kirkjunnar og vita að þau verði reist upp vegna friðþægingar og upprisu Jesú Krists. Berið vitni um að Jesús Kristur hafi dáið og risið upp.
-
2. Segið börnunum að þið ætlið að leggja fyrir þau erfiða spurningu. Spyrjið: „Hve margir spámenn eru núna á jörðinni?“ Útskýrið að hver meðlimur í Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitinni sé studdur sem spámaður, sjáandi og opinberari. Það þýði að á jörðinni séu nú 15 spámenn! Útskýrið þó að forseti kirkjunnar sé sá eini sem hlotið geti opinberun fyrir kirkjuna í heild. Biðjið nokkur eldri barnanna einni viku fyrir aðalráðstefnu að segja frá boðskap einhvers postulanna á aðalráðstefnu að tveimur vikum loknum. Ef hægt er, sýnið þá mynd af viðeigandi postula þegar hvert barnanna segir frá boðskap hans.