2007
Kvikmyndin The Testaments of One Fold and One Shepherd er komin út á geisladiski
Apríl 2007


Kvikmyndin The Testaments of One Fold and One Shepherd er komin út á geisladiski

Kvikmyndin The Testaments of One Fold and One Shepherd er nú komin út á geisladiski, að lokinni fimm ára vandasamri upptöku í Minningarbyggingu Josephs Smith í Salt Lake City, Utah, undir stjórn Æðsta forsætisráðsins. Hún er nú fáanleg í dreifingarstöðvum kirkjunnar.

Kvikmyndin The Testaments of One Fold and One Shepherd er ljóðræn saga um þjónustu Krists í Ísrael til forna og síðar birtingu hans á meginlandi Ameríku til forna, líkt og greint er frá í vitnunum tveimur: Biblíunni og Mormónsbók. Hún fjallar um fjölskyldu Helams, skáldsagnapersónur sögunnar, hvernig hún verður vitni að táknunum og komu Krists til Ameríku.

Þegar kvikmyndin var fyrst kynnt, sagði öldungur Neil L. Andersen, einn hinna sjötíu: „Tilgangur myndarinnar er að undirstrika að Jesús er sonur Guðs, ‚ljós og líf heimsins,‘ og sýna þau undursamlegu áhrif sem frelsarinn hefur á líf þeirra sem á hann trúa.“

Gerð myndarinnar tók yfir tvö ár og gríðarmiklar rannsóknir voru gerðar á menningu Ameríkubúa til forna. Hún var tekin upp í Utah, Kaliforníu og Hawaii, í 57 upptökuverum, og það stærsta var á stærð við fótboltavöll. Aðalleikararnir 48 og aukaleikararnir 52, ásamt meira en 1.000 annarra sem fram komu í myndinni, gæddu söguna lífi. Hljómsveit Musteristorgsins og Laufskálakórinn sáu um tónlistina í myndinni.

Þessi 65 mínútna kvikmynd er nú fáanleg á geisladiski í dreifingarstöðvum kirkjunnar um heim allan á 18 tungumálum (bandarísku táknmáli, dönsku, ensku, finnsku, frönsku, hollensku, ítölsku, japönsku, kantonesísku, kóresku, mandarínsku, norsku, portúgölsku, rússnesku, spánsku, sænsku, úkraínsku og þýsku).