Sigrast á bænarhindrunum
Hvernig ryðjum við hindrunum okkar úr vegi fyrir bæn?
Myndskreyting: Andrew Bosley og Derek L. Smith
„Biðjið ávallt.“ Frelsarinn gefur þessi fyrirmæli tíu sinnum í Kenningu og sáttmálum. Við skiljum að það er táknrænt – við getum ekki bókstaflega verið á hnjánum og biðjandi hverja vökustund – en stundum er jafnvel erfitt að biðja tvisvar á dag! Hvernig sigrumst við á hindrununum?
Hindrun: Gleymska
Við erum mannleg. Slíkt gerist.
Möguleg lausn:
Tengið bænir ykkar við eitthvað annað sem þið gerið á hverjum degi, svo að þegar þið hugsið um annað þá hugsið þið um hitt. Ef ykkur finnst þið vera of syfjuð til að flytja innihaldsríkar bænir rétt þegar þið vaknið eða áður en þið farið að sofa, tengið þá bænir ykkar við einhverja aðra daglega venju sem þið eruð meira vakandi við, eins og að bursta tennurnar eða taka lyf. Þið getið líka stillt vekjaraklukkuna á símanum ykkar!
Hindrun: Viðburðarsnautt
Hvað er hægt að segja á morgnana, þegar allt sem maður hefur gert frá síðustu bæn er að sofa?
Möguleg lausn:
Þakkið Guði að morgni fyrir blessanir ykkar, þar á meðal þá einstaklinga sem hafa blessað líf ykkar. Biðjið fyrir þessu fólki. Segið Guði hvað þið hafið skipulagt fyrir þennan dag og biðjið um leiðsögn hans. Greinið frá á kvöldin. Segið honum frá öllu sem gerðist yfir daginn sem þið eruð þakklát fyrir, sem þið lærðuð af eða fannst áhugavert.
Hindrun: Neikvæðar tilfinningar
Ef til vill finnst ykkur þið vera óverðug vegna einhvers sem þið gerðuð – eða eruð að hugsa um að gera. Kannski eruð þið reið Guði fyrir eitthvað. Kannski eruð þið bara ekki í skapi til þess.
Lausnin: Biðjið samt
Hverjar sem tilfinningar ykkar eru, þá getur Guð meðtekið þær. Enginn er nokkru sinni „óverðugur“ þess að biðjast fyrir og það er djöfullinn sem vill að þið haldið það (sjá 2. Nefí 32:8). Faðir ykkar vill frekar heyra ófullkomna, ófullnægjandi bæn ykkar – bæn þar sem þið leggið ykkur fram um að minnast ekki á það stóra mál sem þið viljið ekki ræða enn – en að heyra alls ekki frá ykkur.