2025
Himneskur faðir þráir að tala við ykkur
Mars 2025


Himneskur faðir þráir að tala við ykkur

Trúið því að himneskur faðir er að tala til ykkar. Hann er til staðar og elskar ykkur meira en orð fá lýst.

piltur á bæn

Við erum synir og dætur Guðs og deilum jörðinni saman, langt frá okkar himnesku heimkynnum. Þetta er jarðlífið, tími til að meðtaka líkama okkar, velja gott fram yfir illt, rækta trú okkar á frelsara okkar, Jesú Krist, og heilaga friðþægingu hans og tileinka okkur sæluáætlun föður okkar.

Án minninga um fortilveru okkar, söknum við stundum heimsins sem við skildum eftir. Faðir okkar hefur gefið okkur andlega gjöf til að vera áfram tengd honum og hljóta handleiðslu, leiðsögn og huggun frá honum. Við þekkjum þessa gjöf afar vel, hún kallast bæn.

Jesús Kristur

Fyrir þá sem munu trúa á mig, eftir Dan Wilson

Biðjið til himnesks föður ykkar.

Engill leiðbeindi Adam og Evu og öllum sem á eftir þeim kæmu að „iðrast og ákalla Guð í nafni sonarins að eilífu“ (HDP Móse 5:8).

Jesús kenndi:

  • „Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða“ (Matteus 7:7).

  • „Þegar þú biðst fyrir skaltu … biðja [til] föður [þíns] … í leynum“ (Matteus 6:6).

  • „En þannig skuluð þér biðja: Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn“ (Matteus 6:9).

Jesús bað stöðugt til föður síns (sjá Lúkas 6:12; Markús 6:46). Í Getsemane sagði hann við lærisveina sína: „Setjist hér meðan ég biðst fyrir“ (Markús 14:32). Þegar Jesús var á krossinum bað hann fyrir hermönnunum sem krossfestu hann: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera“ (Lúkas 23:34).

Okkur er ráðlagt að „biðja ávallt“. Er við „[ráðgumst] við Drottin um allt, sem [við tökum okkur] fyrir hendur, … mun [hann] leiðbeina [okkur] til góðs“ (Alma 37:37). Auk þess látum við „af hendi rakna allar þær þakkir og lof, sem öll sála [okkar] hefur vald til að bera“ (Mósía 2:20).

Það sem jafnvel er enn dýrðlegra, er að faðir okkar á himnum svarar bænum okkar! Vel íhuguð spurning fyrir okkur er hvernig getum við betur meðtekið og skilið svörin, leiðsögnina og huggunina sem kemur frá föður okkar?

Að hljóta svör við bænum okkar hefst á trú á himneskan föður og son hans, Jesú Krist. Við treystum á föður okkar, gerum okkar besta til að halda boðorðin og leitum að hönd hans í öllu (sjá Kenning og sáttmálar 59:21).

Himneskur faðir mun standa með ykkur, styrkja hæfileika ykkar, hugga ykkur og „helga þrengingar [ykkar], [ykkur] til góðs“ (2. Nefí 2:2) er þið ákallið hann.

piltur les ritningar

Hlýða á rödd hans

Þegar við iðkum trú á Guð og höldum boðorð hans, lærum við betur að heyra rödd hans á eðlilegan hátt.

Árið 1993 bauð James E. Faust forseti (1920–2007), sem þá var í Tólfpostulasveitinni, mér og eiginkonu minni, Kathy, að sækja með sér trúarsamkomu í Brigham Young-háskólanum. Þessi trúarsamkoma átti sér stað löngu áður en snjallsímar, samfélagsmiðlar og alnetið voru almennt aðgengileg.

Í ræðu sinni aðvaraði Faust forseti: „Fjöldi radda mun herja á ykkar kynslóð og segja ykkur hvernig þið eigið að lifa, hvernig fullnægja megi ástríðum ykkar, hvernig hægt sé að öðlast allt.“ En „röddin, sem þið verðið að læra að hlýða, er rödd andans“. Til að gera svo, „verðum … við að opna eyru okkar, beina augum trúarinnar að uppsprettu raddarinnar og horfa staðfastlega til himins“.

Mörgum árum síðar kenndi Russell M. Nelson forseti: „Ef veitið meiri athygli að streymi samfélagsmiðla en hvísli andans, þá eruð þið að setja ykkur sjálf í andlega hættu.“

Rödd andans berst bæði vitsmunum okkar og tilfinningum. „Ég mun segja [ykkur] í huga [ykkar] og hjarta, með heilögum anda, sem koma mun yfir [ykkur] og dvelja í hjarta [ykkar]“ (Kenning og sáttmálar 8:2). Hlustið á samvisku ykkar – opinberun hefst oft þar.

stúlka horfir út um glugga

Biðja með trúföstu hjarta

Ekki er hægt að þvinga fram svör og hughrif frá Guði. Við biðjum og bíðum með trúföstu hjarta. Sum svör munu ekki hlotnast í þessu lífi, en Drottinn mun ætíð senda frið sinn til hinna réttlátu (sjá Jóhannes 14:27). Stundum berast svörin „orð á orð ofan og setning á setning ofan“ (Kenning og sáttmálar 98:12).

Rödd himins getur oft borist óvænt á kyrrlátum og helgum stöðum. Í kyrrð morgunbæna minna og ígrundunar árla morguns, finn ég óvenjulegar blessanir. Daglegur, persónulegur og samfelldur lestur í ritningunum, þótt hann sé stundum vanabundinn, getur á öðrum stundum kallað fram rödd andans í hjörtum okkar eins og eldur.

Eftir því sem skarkali og truflanir heimsins þyrlast kringum okkur, hefur Drottinn leiðbeint spámanni sínum að byggja stöðugt fleiri musteri. Þegar við skiljum áskoranir okkar eftir fyrir utan og göngum með bænir okkar og áhyggjur inn í þessi heilögu hús Drottins, er okkur kenndur sannleikur eilífðar. Fyrir ári síðan lofaði Nelson forseti að þegar við tilbiðjum í musterinu, „mun [ekkert] ljúka meira upp himninum. Alls ekkert!“

Hver aðalráðstefna færir líka fleiri ríkulegar blessanir. Í komandi aprílmánuði munum við hittast enn á ný á aðalráðstefnu til að hlýða á rödd Drottins. Ég lofa að er þið undirbúið ykkur og komið í bænarhug á aðalráðstefnu, munið þið finna svör við áhyggjum ykkar og vita að „hönd himins“ er yfir ykkur.

Trúið því að himneskur faðir er að tala til ykkar. Hann er það! Leyfið trú ykkar á hann og ástkæran son hans hjálpa ykkur að svipta frá hulunni og taka á móti rödd föður ykkar. Ég ber vitni um að hann er til staðar og elskar ykkur meira en orð fá lýst.