2025
Eldur. Hnífar. Dans. Og fagnaðarerindið.
Mars 2025


Eldur. Hnífar. Dans. Og fagnaðarerindið.

Kynnið ykkur hvernig samóski eldhnífadansinn tengist fagnaðarerindi Jesú Krists fyrir sjö ungmenni á Havaí, Bandaríkjunum.

piltur heldur á kyndli

Ljósmyndir: Leslie Nilsson og Marissa Couto

Sumir spila á píanó. Sumum finnst gaman að lesa bækur. Aðrir æfa fimleika, fótbolta eða skák. Sjaldnar, og það er jafnvel svolítið ótrúlegt, þá finnst sumum gaman að dansa meðan þeir snúa logandi hnífum.

Saga eldhnífadansins

Samóskur eldhnífadans, eða ailao afi, er nútímaleg útfærsla á hefðbundnum stríðsdansi. Það er einstakur hæfileiki, listform og tjáning og fyrir marga leið til að heiðra menningu sína.

Svona útskýra þrjú ungmenni frá Havaí, Bandaríkjunum, þennan dans:

Vivian, 18 ára: „Samkvæmt hefð var þetta eitthvað sem stríðsmenn gerðu aðeins með hníf. Síðar var eldi og snúningi bætt við. Þetta er nokkuð svipað stafasnúningi, bara með eld í báðum endum.“

Tui, 12 ára: „Eldhnífadans felur í sér mikinn hita. Líka mikinn snúning. Þú kastar jafnvel hnífnum og færir hann til á meðan hann snýst.“

Joseph, 18 ára: „Þegar eldurinn hreyfist, þá blístrar vindurinn og trommurnar spila, það er ansi hátt. Satt að segja, þá er þetta eins konar þögul andleg stund fyrir mig, því hún hefur svo mikla þýðingu fyrir mig. Eldhnífadans er leið sem ég tengist fjölskyldu minni og menningu.

piltur blæs eldi
piltar sitja fyrir framan kyndil

Fyrir þessi ungmenni er eldhnífadans ekki bara ótrúlegur og sjaldgæfur hæfileiki. Hann hefur líka kennt þeim margar dýrmætar lífslexíur um að vera nærri Drottni með því að lifa eftir fagnaðarerindinu og hjálpa öðrum.

piltur með kyndil

Treysta Drottni

Joseph A., 18 ára

Þegar þú ert að dansa eldhnífadansinn getur margt farið úrskeiðis. Bensín getur breiðst yfir handfangið og gert það hált. Vindurinn getur einnig breytt aðstæðum og gert það erfitt að grípa hnífinn. Það hefur verið mér mikil hjálp að treysta á Drottin á meðan ég dansa.

Eitt af mínum uppáhaldsritningarversum eru Orðskviðirnir 3:5, sem talar um að treysta Drottni af öllu hjarta. Ég tel það mjög mikilvægt vegna þess að á því augnabliki sem þú kemur fram, gerir þú þér grein fyrir að eftir alla æfinguna þá snýst þetta að lokum bara um þig, eldhnífadansinn og himneskan föður.

Ég er vanur að biðja til himnesks föður: „Allt í lagi, ég er búinn að leggja mig allan fram, leiðbeindu nú höndum mínum.“

piltur snýr kyndli

Taka frá tíma fyrir Drottin

Gary K., 16 ára

Það er mikill undirbúningur sem fer í eldhnífakeppnir. Ég æfi á hverjum degi í um það bil sex mánuði fram að keppni.

Það getur líka verið erfitt, því dagskráin mín er þéttskipuð. Ég tek alltaf frá tíma fyrir Drottin með því að fara í kirkju, á viðburði Piltafélagsins, í trúarskólann og lesa ritningarnar og biðjast fyrir. Þegar ég geri þessa hluti tek ég eftir breytingum á deginum. Allt gengur bara upp.

Ég finn vissulega fyrir því að Kristur er til staðar fyrir mig. Ef þið treystið Drottni og reynið að hafa hann í fyrirrúmi, mun hann hjálpa ykkur með hvaðeina sem þið þurfið að gera.

stúlka með tvo kyndla
stúlka snýr kyndli
stúlka með kyndil

Öðlast sjálfstraust og innblása aðra

Vivian K., 18 ára

Þegar ég var að alast upp, horfði ég á föðurbræður mína og frændsystkini dansa eldhnífadansinn. Mér fannst það mjög flott, en ég vissi ekki hvort ég gæti það sjálf. Í menntaskóla gerði ég það að einu markmiða minna að læra hvernig á að dansa. Eftir að ég lærði það, setti ég mér nákvæmara markmið: Ég vildi keppa í eldhnífakeppni.

Eldhnífadans hefur hjálpað mér að öðlast sjálfstraust. Þegar þú ert að dansa eru ákveðnar hreyfingar þar sem þú kastar hnífnum upp, horfir á hann á loftinu og grípur hann síðan. Ég hljóp einu sinni alltaf frá hnífnum eftir að ég kastaði honum upp í loft. Pabbi minn kenndi mér að ég þyrfti að skuldbinda mig hreyfingunni og vera örugg með sjálfa mig.

stúlka með fjölskyldumeðlim

Vivian er innblásin af fjölskyldumeðlimum sínum og hefur öðlast sjálfstraust til að viðhalda arfleifðinni.

Með tímanum fór ég að bera mig af meira sjálfsöryggi þegar ég kom fram og í öllu öðru. Þetta er frábært núna því stundum koma stelpur upp að mér eftir sýningar og segja að þær hafi hlotið innblástur og langi líka að prófa eldhnífadans. Ég er svo spennt yfir því að ég er að hvetja aðra til að gera eitthvað sem þeir héldu að þeir gætu kannski ekki gert.

piltur grípur kyndil

„Bænin verndar mig og hjálpar mér að dansa vel,“ segir Tui.

Sigrast á ótta með bæn

Tui M., 12 ára

Þegar ég kem fram er ég ekki kvíðinn. Ég er spenntur. Ég hef lært að þó mér verði á mistök get ég breytt því í eitthvað fallegt. Þetta er næstum eins og að mála. Þegar málari gerir mistök gæti hann gert það að einhverju nýju. Stundum missi ég eldhnífinn minn en ég tek hann upp aftur og held áfram að dansa.

Sjálfshvatning hefur hjálpað mér mikið með óttann. Í stað þess að hugsa: „Hvað ef ég geri mistök?“ reyni ég að hugsa meira eins og: „Hvað ef ég stend mig vel!“

Það er líka orðin venja hjá mér að fara með stutta bæn fyrir hverja eldhnífadanssýningu. Bænin verndar mig og hjálpar mér að dansa vel. Þegar ég biðst fyrir verð ég fullviss um að ég muni standa mig vel.

piltur biðst fyrir með fjölskyldumeðlim

Manasse T., 12 ára

Áður en ég framkvæmi eldhnífadans er ég yfirleitt kvíðinn. Ég fer alltaf með bæn áður en ég fer á sviðið. Eitt sinn flutti ég bæn áður en ég fór á svið og fann hlýju og var ekki hræddur. Þegar ég dansaði, fannst mér eins og einhver stæði við hliðina á mér.

Bænin hjálpar mér virkilega að vera ekki kvíðinn. Eftir að ég fer með bæn, geri ég mér grein fyrir að ég er bara að njóta mín!

piltur með kyndil

Miðla boðskap kærleika

Kawiki A., 15 ára

Síðastliðið sumar sýndum við eldhnífadans í Rúmeníu og Búlgaríu. Pabbi minn lætur okkur alltaf læra „Ást ef heima býr“ (Sálmar, nr. 110) á tungumáli þeirra landa sem við heimsækjum. Við gerum þetta til þess að geta sungið hann saman sem fjölskylda eftir sýningu.

Ég held að boðskapurinn um kærleika á heimilinu sé mikilvægur vegna þess að hann minnir okkur á að hafa elsku hvert sem við förum. Mér líður eins og ég sé að lyfta öðru fólki og veita þeim gleði. Jafnvel þótt þau geti stundum ekki talað tungumálið mitt, veit ég að þau hafa skynjað miðlun fagnaðarerindisins í gegnum hæfileika okkar.

piltur snýr kyndli

Nainoa A., 13 ára

Boðskapur kærleikans heima fyrir er mikilvægur, því ef fólk veit ekki að það er kærleikur í kringum það, þá gæti það verið vansælt. Þegar það er kærleikur á heimili mínu, finn ég frið og ró.

piltur

Miðla ljósi með hæfileikum

Eldhnífadans er ein leið fyrir þessi ungmenni að láta ljós sitt skína og deila hæfileikum sínum með öðrum. „Ég fæ að koma fram með fjölskyldu minni og deila hæfileikum mínum um allan heim. Það gleður mig hið innra að vita að ef þú miðlar hæfileikum þínum þá lyftir þú öðrum upp,“ segir Nainoa.

Eldri bróðir Nainoa, Kawiki, segir að eldhnífadans minni hann á hvernig ljós sigrast á myrkri. Að miðla hæfileikum sínum er fyrir honum eins og að miðla öðrum ljósi sínu.

Joseph segir að þegar við skínum, skínum við fyrir himneskan föður. „Þegar við miðlum því sem við höfum, blessum við ekki aðeins okkur sjálf eða þá sem við deilum hæfileikum okkar með, heldur lofum við líka himneskan föður.“

Vivian segir að afi hennar hafi alltaf miðlað ritningarversinu í Matteusi 5:16, sem talar um að láta ljós sitt skína frammi fyrir mönnum. „Mér finnst þetta góð ritningargrein vegna þess að maður þarf ekki að vera bara góður í eldhnífadansi til að miðla fagnaðarerindinu. Þið getið verið góð í hverju sem er og notað hæfileika ykkar til að miðla fagnaðarerindinu á þann hátt.“