Síðdegishluti sunnudags
Nærið ræturnar og greinarnar munu vaxa
Útdráttur
Eitt það mikilvægasta sem við getum lært í þessu lífi er að vita hvað er eilíft og hvað ekki. …
… Viss sannleikur er kjarninn, ómissandi og við rætur trúar okkar. Annar er viðauki eða greinar – verðmætur, en aðeins þegar hann tengist grundvallaratriðunum. …
Með öðrum orðum, Jesús Kristur og friðþægingarfórn hans eru rætur vitnisburðar okkar. Allt annað eru greinar. …
Þegar kemur að því að næra vitnisburð okkar um Jesú Krist, velti ég fyrir mér hvort við höldum stundum að greinarnar séu ræturnar. …
Við verðum að spyrja okkur sjálf: Byggist vitnisburður minn á því sem ég vonast til að gerist í lífi mínu? Er hann háður verkum eða viðhorfi annarra? Er hann ef til vill tryggilega grundvallaður á Jesú Kristi, „rótfastur í honum og byggður á honum“,[Kólossubréfið 2:7] án tillits til breytilegra aðstæðna lífsins? …
Við ættum ekki að vænta þess að skilja allt áður en við framkvæmum. Það er ekki trú. … Ef við bíðum með að framkvæma þar til öllum spurningum okkar er svarað, þá takmörkum við verulega það góða sem við getum fengið áorkað og við takmörkum trúarmátt okkar. …
Trú stenst þrengingar og óvissu lífsins, vegna þess að hún er rótföst í Kristi og kenningu hans. Jesús Kristur, og faðir okkar á himnum, sem sendi hann, eru sameiginlega hið eina ófrávíkjanlega, fullkomlega áreiðanlega viðfangefni trausts okkar. …
Það er einlæg bæn mín og blessun að við munum stöðugt næra rætur trúar okkar á frelsarann, kenningu hans og kirkju hans.