2024
Grafa uppreisnarvopn okkar
Nóvember 2024


Síðdegishluti laugardags

Grafa uppreisnarvopn okkar

Útdráttur

veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Uppreisn getur verið virk eða óvirk. …

Ef til vill er þó lævísari tegund uppreisnar gegn Guði óvirka útgáfan – að hunsa vilja hans í lífi okkar. Margir sem aldrei myndu íhuga virka uppreisn, gætu samt verið í andstöðu við vilja og orð Guðs með því að fara sínar eigin brautir, án tillits til guðlegrar leiðsagnar. …

Sverðin, og önnur vopn sem Lamanítarnir grófu, voru uppreisnarvopn, vegna þess hvernig þeir höfðu notað þau. Þessi sömu vopn í höndum sona þeirra, sem notuð voru til varnar fjölskyldu og frelsi, voru alls ekki uppreisnarvopn gegn Guði. …

Á þennan sama hátt eru hlutir í lífi okkar sem geta verið hlutlausir og jafnvel eðlislega góðir, en verða að „uppreisnarvopnum“ séu þeir notaðir á rangan hátt. …

… Ef elska okkar til Guðs og staðfesta okkar um að þjóna honum af öllum mætti okkar, huga og styrk, verður sá prófsteinn sem við dæmum alla hluti og tökum allar ákvarðanir út frá, þá höfum við grafið uppreisnarvopn okkar. Af náð Krists mun Guð fyrirgefa syndir okkar og uppreisnir fortíðar og afmá smán þeirrar syndar og uppreisnar úr hjarta okkar. …

Að grafa uppreisnarvopn okkar leiðir til einstakrar gleði. … Megum við grafa – mjög, mjög djúpt – alla uppreisnarþætti gegn Guði í lífi okkar og setja í þeirra stað fúst hjarta og viljugan huga.