2024
Leita svara við andlegum spurningum
Nóvember 2024


Morgunhluti sunnudags

Leita svara við andlegum spurningum

Útdráttur

veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Að spyrja spurninga og leita að merkingu er náttúrlegur og eðlilegur hluti af lífsreynslu okkar. … Áætlun Guðs er miskunnsöm gagnvart takmörkunum mannlegrar tilveru okkar; sér okkur fyrir frelsara okkar, Jesú Kristi, til að vera okkar góði hirðir og hvetur okkur til að nota sjálfræði okkar til að velja hann. …

Leið Guðs föður og sonar hans til að miðla visku sinni til okkar leggur áherslu á að bjóða krafti heilags anda að vera persónulegur kennari okkar þegar við gerum Jesú Krist að þungamiðju í lífi okkar og í trúfastri leit okkar að svörum þeirra og merkingu þeirra. …

… Drottinn hefur sagt okkur að fyrir kostgæfni okkar og hlýðni getum við hlotið þekkingu og vitsmuni. Lögmál Guðs og boðorð eru ekki hönnuð til þess að vera hindrun í lífi okkar heldur öflugt hlið að persónulegum opinberunum og andlegri menntun. …

… Við erum blessuð að hafa Jesú Krist sem okkar lækningameistara. Hlýðni okkar við lög og boðorð Guðs getur opnað leið fyrir frelsara okkar til að sýna skilning og veita lækningu sem hann veit að við þurfum, í samræmi við fyrirskipaða meðferðaráætlun hans fyrir okkur.

Kæru vinir, ég ber þess vitni að einlægar spurningar um fagnaðarerindið geta veitt himneskum föður og Jesú Kristi tækifæri til þess að hjálpa okkur að vaxa. … Ég ber þess vitni að það að setja traust ykkar á himneskan föður og spámenn hans sem hann hefur sent, mun hjálpa ykkur að lyfta ykkur upp andlega og ýta ykkur áfram að útvíkkuðum sjóndeildarhring Guðs.