Jesús Kristur skilur áskoranir ykkar
Þið þurfið ekki að takast á við áskoranir lífsins einsömul. Jesús Kristur skilur fullkomlega hvað þið gangið í gegnum og mun leiðbeina ykkur og styðja.
Jesús Kristur skilur ykkur
Þegar frelsarinn þjáðist fyrir okkur alla í Getsemanegarðinum og á krossinum, hlaut hann fullkominn skilning á öllum okkar raunum. Hann er sá eini sem veit nákvæmlega hvað þið gangið í gegnum og náð hans mun veita ykkur þann styrk sem þið þurfið til að sigrast á erfiðleikum.
Mormónsbók kennir:
„Og hann mun ganga fram og þola alls kyns sársauka, þrengingar og freistingar. Og svo mun verða, til að orðið megi rætast, sem segir, að hann muni taka á sig sársauka og sjúkdóma fólks síns.
Og hann mun líða dauða til að leysa helsi dauðans, sem fjötrar fólk hans. Og hann mun kynnast vanmætti þess, svo að hjarta hans fyllist miskunn samkvæmt holdinu, svo að hann megi vita í holdinu, hvernig fólki hans verður best liðsinnt í vanmætti þess“ (Alma 7:11–12 ).
Mormónsbók kennir:
„Og hann mun ganga fram og þola alls kyns sársauka, þrengingar og freistingar. Og svo mun verða, til að orðið megi rætast, sem segir, að hann muni taka á sig sársauka og sjúkdóma fólks síns.
Og hann mun líða dauða til að leysa helsi dauðans, sem fjötrar fólk hans. Og hann mun kynnast vanmætti þess, svo að hjarta hans fyllist miskunn samkvæmt holdinu, svo að hann megi vita í holdinu, hvernig fólki hans verður best liðsinnt í vanmætti þess“ (
Vegna þess að Guð elskar ykkur og vill að þið verðið ykkar besta, sendi hann sinn fullkomna son til að vera frelsari ykkar. Jesús Kristur tók á sig sársauka og þjáningar, svo hann gæti vitað hvernig ætti að styðja ykkur. Hann þekkir ykkur fullkomlega og veit hvernig á að hjálpa ykkur ef þið snúið ykkur til Guðs í bæn og biðjið um leiðsögn.
Kærleiksríkt kirkjusamfélag getur hjálpað ykkur að takast á við sorg
Þegar þið snúið ykkur til Guðs og Jesú Krists, mun trú ykkar styrkjast og virka sem akkeri í stormum lífsins. Fagnaðarerindi Krists getur sýnt ykkur leiðina að varanlegri hamingju og sannleikurinn sem kenndur er í kirkju hans getur fært frið og von.
Vinir ykkar og fjölskylda geta veitt dásamlegan stuðning og hamingju, þar með talið þá vináttu sem myndast í kirkjunni. Meðlimir safnaðar okkar leitast við að bjóða upp á umhyggjusöm samfélög, þar sem við þjónum hvert öðru á hagnýtan og andlegan hátt.

Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu veitir stuðningskerfi í áskorunum lífsins. Heimasöfnuður ykkar getur veitt frekari upplýsingar um hvaða möguleikar eru í boði á ykkar svæði.