Library
7. Helgiathafnir og sáttmálar veita ykkur aðgang að blessunum Guðs


Jóhannes skírari skírir Jesú Krist

7.

Helgiathafnir og sáttmálar veita ykkur aðgang að blessunum Guðs

Kenning og sáttmálar 84:20

Himneskur faðir vill óðfús kenna ykkur og blessa. Það gerir hann meðal annars með helgiathöfnum eins og skírn, staðfestingu og sakramentinu. Með helgiathöfnum sem þessum gerum við sáttmála, eða loforð, við Guð. Að halda sáttmála eykur kraft Guðs í lífi ykkar og hjálpar ykkur að búa ykkur undir eilíft líf. Þetta er ástæða þess að helgiathafnir og sáttmálar eru okkur dýrmæt – vegna þess að þau styrkja tengsl okkar við himneskan föður og frelsara okkar og hjálpa okkur að verða líkari þeim.

Eilífur sannleikur

Helgiathafnir vísa ykkur til Jesú Krists. Helgiathöfn er heilög athöfn með táknræna merkingu sem kennir um Jesú Krist. Sakramentið er til dæmis ekki bara brauð og vatn. Það minnir okkur á frelsarann.

Sáttmálar eru tákn um elsku Guðs, traust og væntingar. Þeir færa samband ykkar við Guð á dýpra stig. Að gera sáttmála sýnir að þið elskið Guð og eruð skuldbundin honum. Þið getið treyst honum og hann getur treyst ykkur. Með þessari dýpri skuldbindingu, fylgir aukinn aðgangur að krafti hans og hjálp, er þið haldið sáttmála ykkar.

Þið gerið sáttmála við Guð þegar þið skírist, eruð staðfest og þegar þið meðtakið sakramentið. Þegar þið skírist lofið þið að taka á ykkur nafn Jesú Krists, þjóna honum og halda boðorð hans allt lífið. Meðan á sakramentinu stendur lofið þið líka að hafa hann ávallt í huga. Þetta eru ykkar loforð. Þegar þið eruð fús til að halda þau, lofar Guð að veita ykkur heilagan anda sem stöðugan förunaut.

Boð

Meðhöndlið sakramentið eins og helga gjöf. Sýnið skuldbindingu ykkar við Jesú Krist með því að búa ykkur undir helga upplifun meðan á sakramentinu stendur. Íhugið hvað þið getið gert til að gera þessa helgiathöfn að andlegum hápunkti vikunnar.

Leitið að frelsaranum í helgiathöfnunum. Þegar þið fylgist með helgiathöfn eða takið þátt í henni, spyrjið ykkur þá: „Hvað læri ég um Jesú Krist af þessu?“ eða „Hvernig færir það mig nær honum?“ Gætið að því sem andinn kennir ykkur.

Látið sáttmála ykkar stjórna gjörðum ykkar. Þegar þið þurfið að taka ákvörðun, minnist þá sáttmálssambands ykkar við Guð. Sýnið honum hollustu. Spyrjið ykkur sjálf: Er þetta í samræmi við sáttmála mína? Til dæmis: Elska ég aðra og þjóna þeim, hugga þá sem huggunar þarfnast og stend sem vitni Krists – alls staðar og alltaf?

Kristur við borð að undirbúa sakramentið fyrir Nefítana

Fyrirheitnar blessanir

Þið getið haft kraftinn til að sigrast á freistingum, syndum og raunum lífsins. Að gera og halda sáttmála, veitir ykkur aðgang að krafti Guðs. Með þeim krafti getið þið tekist á við hvað sem er full sjálfstrausts. Jesús Kristur er styrkur ykkar!

Þið getið verið hrein og ykkur fyrirgefið. Hluti af loforði Guðs til ykkar fyrir að halda skírnarsáttmála ykkar er fyrirgefning synda ykkar. Það þýðir að þegar þið iðrist og haldið loforð ykkar við Guð, mun hann fyrirgefa ykkur og hjálpa ykkur að bæta ykkur.

Þið getið alltaf haft heilagan anda með ykkur. Annað loforð tengt skírn og sakramentinu er stöðugt samfélag anda hans og þjónusta engla. Þið þurfið aldrei að takast á við áskoranir ykkar einsömul. Guð yfirgefur aldrei sáttmálsbörn sín – þið getið reitt ykkur á það.

Þið getið notið stuðnings sáttmálslýðs Guðs. Þið tilheyrið samfélagi sáttmálslýðs í kirkju frelsarans. Þið lyftið hverju öðru og hvetjið hvert annað. Þið syrgið saman og gleðjist saman. Þið berið hvers annars byrðar. Fjölskylda ykkar, biskup, leiðtogar og aðrir kirkjumeðlimir eru hér til að hjálpa ykkur og þið getið hjálpað þeim.

Spurningar og svör

Get ég verið góður fylgjandi Jesú Krists án helgiathafna og sáttmála? Margt gott fólk fylgir Jesú Kristi af einlægni, jafnvel þótt það hafi aldrei verið skírt eða farið í musterið. Himneskur faðir vill þó að öll börn sín taki á móti helgiathöfnum hans og geri sáttmála við hann, svo þau hafi aukinn aðgang að liðsinni hans, miskunn og styrk. Það er ein meginástæða þess að Jesús Kristur endurreisti kirkju sína! Sérhvert barn Guðs mun fá tækifæri – í þessu lífi eða því næsta – til að taka á móti helgiathöfnum og sáttmálum sem nauðsynleg eru fyrir eilíft líf.

Ég hef ekki alltaf verið trú/trúr sáttmálum mínum. Er einhver von fyrir mig? Já! Fagnaðarerindi Jesú Krists er fagnaðarerindi vonar og nýs upphafs! Þess vegna meðtökum við sakramentið í hverri viku. Himneskur faðir vissi að við myndum gera mistök og þyrftum nýtt upphaf. Frelsarinn gaf líf sitt til að veita ykkur leið til baka. Þegar þið iðkið trú á Jesú Krist og iðrist, getið þið endurheimt aðgang að krafti Guðs.

Sjá 1. Korintubréf 11:23–26 (meðtaka sakramentisins sýnir að við trúum á Jesú Krist og friðþægingu hans); Mósía 18:10, 13 (skírnarsáttmálinn); Kenning og sáttmálar 13 (Aronsprestdæmið felur í sér lykla iðrunar, skírnar og þjónustu engla); 20:37 (skilyrði fyrir skírn); 20:77, 79 (sakramentisbænir).

Musterismeðmælaspurning

  • Reynir þú að halda hvíldardaginn heilagan, bæði heima og í kirkju, sækja samfundi þína, búa þig undir og meðtaka sakramentið verðuglega og haga lífi þínu í samræmi við lögmál og boðorð fagnaðarerindisins?