Foreldrar
6. Elskið Guð, elskið náunga ykkar


miskunnsami Samverjinn

6.

Elskið Guð, elskið náunga ykkar

Matteus 22:37–40

Guð gefur boðorð til að hjálpa ykkur að taka góðar ákvarðanir. Hann gerir þetta því hann elskar ykkur. Besta ástæðan fyrir því að hlýða boðorðum Guðs er vegna þess að þið elskið hann. Elska er kjarni boðorða Guðs.

Eilífur sannleikur

Guð elskar ykkur. Hann er faðir ykkar. Hin fullkomna elska hans getur innblásið ykkur til að elska hann. Þegar elska ykkar til himnesks föður er sterkasti áhrifavaldurinn í lífi ykkar, munu svo margar ákvarðanir verða einfaldari.

Tvö æðstu boðorð þeirra allra eru að elska Guð og náungann. Hver er náungi ykkar? Allir! Allt annað sem kennt er í ritningunum og af spámönnunum tengist þessum tveimur boðorðum.

Allt fólk er bræður ykkar og systur – þar með taldir eru auðvitað líka þeir sem eru öðruvísi en þið eða eru ósammála ykkur. Himneskur faðir vill að börn hans elski hvert annað. Þegar þið þjónið börnum hans eruð þið að þjóna honum.

Boð

Sýnið Guði elsku með því að halda boðorð hans. Með því að halda hvíldardaginn heilagan, þar með talið að búa okkur trúfastlega undir og að meðtaka sakramentið, sýnið þið Guði til dæmis að þið séuð fús til að helga honum einn dag í viku. Þegar þið fastið og greiðið tíund og fórnargjafir, sýnið þið Guði að verk hans er ykkur mikilvægara en veraldlegir hlutir. Þegar þið notið nöfn Guðs og Krists af lotningu, aldrei af léttúð eða kæruleysi, sýnið þið að þið séuð þakklát fyrir allt sem þeir hafa gert fyrir ykkur.

Komið fram við alla sem börn Guðs. Sem lærisveinar Jesú Krists getið þið verið leiðandi í því að koma fram við fólk af öllum kynþáttum, trúarbrögðum og öllum öðrum hópum af kærleika og virðingu – einkum þá sem eru stundum fórnarlömb særandi orða og breytni. Liðsinnið þeim sem eru ef til vill einmana, einangraðir eða hjálparvana. Hjálpið þeim að finna elsku himnesks föður fyrir ykkar milligöngu. Deilið með þeim blessununum sem hann hefur veitt ykkur og bjóðið þeim að fylgja Jesú Kristi.

Gætið þess að málfar ykkar endurspegli elsku Guðs og annarra – hvort sem þið eigið í samskiptum í eigin persónu eða á netinu. Segið það sem er upplyftandi – ekkert sem gæti verið sundrandi, særandi eða móðgandi, jafnvel þótt það sé ætlað sem brandari. Orð ykkar geta verið áhrifamikil. Látið þau hafa áhrif til góðs.

Sýnið fjölskyldu ykkar elsku. Að elska öll börn Guðs byrjar á heimilinu. Gerið ykkar besta til að gera heimili ykkar að stað þar sem allir geta fundið elsku frelsarans.

Jesús Kristur (við Betesdalaug) lyftir teppi sem örkumla maður liggur undir

Fyrirheitnar blessanir

Samband ykkar við Guð mun dýpka þegar þið tjáið elsku ykkar með því að hlýða boðorðum hans og halda sáttmála ykkar við hann.

Samband ykkar við aðra mun dýpka þegar þið tjáið elsku ykkar með kristilegri þjónustu. Þið munuð finna gleði í því að gera heiminn að kærleiksríkari stað.

Spurningar og svör

Hvernig get ég fundið fyrir elsku Guðs? Elska himnesks föður er alltaf fyrir hendi. Ræðið oft við hann í bæn. Miðlið honum tilfinningum ykkar og veitið athygli hughrifum frá honum. Lesið orð hans í ritningunum. Hugsið um allt það sem hann hefur gert fyrir ykkur. Verjið tíma á stöðum og viðburðum þar sem andi hans er nærri.

Væntir Drottinn þess að ég elski alla, jafnvel þá sem koma illa fram við mig? Drottinn væntir þess að þið elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur. Það merkir þó ekki að þið ættuð að dvelja í aðstæðum sem valda ykkur tilfinningalegum, líkamlegum eða andlegum skaða. Setjið ykkur heilbrigð mörk til að tryggja öryggi ykkar. Ef þið verðið fyrir einelti eða ofbeldi eða vitið að þetta eigi sér stað hjá einhverjum öðrum, talið þá við áreiðanlegan fullorðinn einstakling.

Hvenær og hvernig ætti ég að kynnst fólki af hinu kyninu? Besta leiðin til að kynnast öðrum er í gegnum sanna vináttu. Byggið upp mörg góð vináttubönd þegar þið eruð ung. Í sumum menningarheimum kynnast ungmenni meðlimum af hinu kyninu í heilbrigðum hópviðburðum. Fyrir tilfinningalega og andlega framþróun ykkar og öryggi, frestið einstaklingsviðburðum þar til þið eruð orðin þroskuð – 16 ára aldur er góð viðmiðun. Ráðgist við fjölskyldu ykkar og leiðtoga. Sparið einkasambönd þar til þið verðið eldri. Verjið tíma með þeim sem hjálpa ykkur að halda skuldbindingar ykkar við Jesú Krist.

Hvað get ég gert ef heimili mitt er ekki staður kærleika? Frelsarinn þekkir aðstæður ykkar og hann elskar ykkur. Verið þolinmóð, haldið áfram að halda boðorð Guðs og verið fjölskyldu ykkar gott fordæmi. Einföld kærleiksverk ykkar geta skipt miklu máli. Þið getið líka byggt upp sambönd innan deildarfjölskyldu ykkar. Búið ykkur nú undir að stofna eigin fjölskyldu sem grundvölluð er á kenningum Jesú Krists. Munið: Jesús Kristur er styrkur ykkar!

Sjá Jesaja 58:3–11 (tilgangur föstu); 58:13–14 (blessanir þess að halda hvíldardaginn heilagan); Malakí 3:7–10 (blessanir tíundargreiðslna); Lúkas 6:27–28 (elskið óvini yðar); 10:25–37 (hver er náungi minn?); Jóhannes 3:16–17 (Guð elskaði okkur, svo hann sendi son sinn); 14:15 (við höldum boðorðin vegna þess að við elskum Guð); 1. Jóhannesarbréf 4:19 (við elskum Guð vegna þess að hann elskar okkur); Mósía 2:17 (þegar við þjónum öðrum erum við að þjóna Guði).

Musterismeðmælaspurningar

  • Er persónuleg og opinber breytni þín gagnvart meðlimum fjölskyldu þinnar og öðrum í samræmi við kenningar kirkju Jesú Krists?

  • Greiðir þú fulla tíund?