„9.–15. júní: ‚Ég er stöðugt með hinum staðföstu‘: Kenning og sáttmálar 60–63,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Kenning og sáttmálar 60–63,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
Hluti af Varðeldur við Missouri-fljót, eftir Bryan Mark Taylor
9.–15. júní: „Ég er stöðugt með hinum staðföstu“
Kenning og sáttmálar 60–63
Snemma í ágúst, árið 1831, voru Joseph Smith og aðrir öldungar kirkjunnar að búa sig undir að snúa aftur til Kirtland eftir stutta heimsókn til „[lands] Síonar“ (Kenning og sáttmálar 59:3). Drottinn hafði viljað að þeir boðuðu fagnaðarerindið á ferð sinni (sjá Kenning og sáttmálar 52:10) og sumir þeirra gerðu það trúfastlega. Aðrir voru þó hikandi. Þeir „dylja þann hæfileika, sem ég hef gefið þeim, af ótta við mennina,“ sagði Drottinn (Kenning og sáttmálar 60:2). Mörg okkar þekkja tilfinningu öldunganna. Jafnvel þó að við elskum fagnaðarerindið, þá gæti ótti og efi verið að hindra okkur frá því að miðla því. Drottinn er hins vegar miskunnsamur. Hann þekkir „veikleika mannsins og veit hvernig skal liðsinna [okkur]“ (Kenning og sáttmálar 62:1). Á víð og dreif um þessar opinberanir sem voru til fyrri tíma trúboða, má finna fullvissanir sem geta hjálpað okkur að sigrast á ótta okkar og annmörkum: „Ég get gjört yður heilaga.“ „Allt hold er í mínum höndum.“ „Ég er stöðugt með hinum staðföstu.“ Og „sá, sem er trúr og stendur stöðugur, mun sigra heiminn.“ (Kenning og sáttmálar 60:7; 61:6; 62:9; 63:47.)
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
Ég get miðlað kærleika mínum og fagnaðarerindi Jesú Krists.
Hvernig er vitnisburður ykkar um fagnaðarerindið eins og „[hæfileiki]“ eða fjársjóður frá Guði? Hvernig „dyljum“ við stundum „hæfileika“ okkar? (Kenning og sáttmálar 60:2; sjá einnig Matteus 25:14–30).
Hvaða hvatningarorð frá Drottni finnið þið í köflum 60 og 62? Hvernig efla þessi vers sjálfstraust ykkar til að miðla fagnaðarerindinu? Þegar þið íhugið þessar spurningar, hugleiðið þá að syngja eða lesa orðin í „Kristniboði strax“ (Barnasöngbókin, nr. 90). Hvað lærið þið af þessum barnasöng um það að miðla fagnaðarerindinu?
Sjá einnig í safninu „Sharing the Gospel“ í Gospel Library.
Ég get miðlað trú minni á Krist opinskátt.
Kenning og sáttmálar 60:2–4; 61:1–2, 20, 36–38; 62:1, 6
Ritningarnar kenna um Jesú Krist.
Drottinn opinberaði mikilvægan sannleika um sig er hann leiðbeindi trúboðum sínum. Leitið þessa sannleika í Kenningu og sáttmálum 60:2–4; 61:1–2, 20, 36–38; 62:1, 6. Hvaða frásagnir úr ritningunum útskýra það hlutverk og þá eiginleika frelsarans sem þið funduð? (sjá t.d. Jóhannes 8:1–11; Eter 2:14–15).
Ákvarðanir mínar ættu að vega jafnt á milli „[dómgreindar] og [leiðbeiningar] andans.“
Drottinn veitir leiðsögn um eilífan sannleika og reglur, en hann lætur okkur það oft eftir að ákveða smáatriðin varðandi það hvernig á að fylgja þessum reglum. Hvernig sjáið þið þessa reglu útskýrða í Kenningu og sáttmálum 62? (sjá einnig Kenning og sáttmálar 60:5; 61:22). Hvernig hafið þið séð þessa reglu í lífi ykkar? Hvers vegna er það gott fyrir okkur að taka sumar ákvarðanir án þess að vænta þess að Guð segi okkur nákvæmlega hvað á að gera?
Sjá einnig Eter 2:18–25; Kenning og sáttmálar 58:27–28.
Tákn veitast fyrir trú og vilja Guðs.
Í lok þessara lexíudraga má finna mynd af kraftaverki sem snerti Ezra Booth djúpt: Handleggur Elsu Johnson læknaðist fyrir kraftaverk. Eftir að hafa séð það, lét Ezra fúslega skírast. Booth brast þó trú einungis eftir fáeina mánuði og varð gagnrýninn á spámanninn. Hvernig gat það gerst, eftir að hann varð vitni að kraftaverki?
Hugleiðið það við lestur Kenningar og sáttmála 63:7–12. Hvaða sannleika lærið þið um tákn og trú?
Sjá einnig Matteus 16:1–4; Jóhannes 12:37; Mormón 9:10–21; Eter 12:12, 18.
Ég get verið skírlíf/ur í hugsunum mínum og gjörðum.
Í Kenningu og sáttmálum 63:16, staðfesti frelsarinn enn á ný það sem hann kenndi í Nýja testamentinu – að skírlífslögmálið skyldi ekki einungis stjórna gjörðum okkar heldur einnig hugsunum (sjá Matteus 5:27–28). Er þið lesið Kenningu og sáttmála 63:16, skrifið þá niður þær viðvaranir sem frelsarinn gefur okkur varðandi lostafengnar hugsanir. Þið gætuð einnig hugleitt andstæðu hverrar viðvörunnar. Hver eru til að mynda einhver orð eða orðtök sem eru andstæð ótta? Hvaða aðrar blessanir koma frá því að hafa hreinar hugsanir og gjörðir?
Margir telja skírlífsstaðla Drottins varðandi hugsanir og gjörðir vera gamaldags og jafnvel þjakandi. Hverju myndi það breyta ef öll börn Guðs kepptu að því að halda þetta lögmál? Þið gætuð leitað svara við þessari spurningu í boðskap öldungs David A. Bednar „Vér trúum, að vér eigum að vera skírlíf“ (aðalráðstefna, apríl 2013) eða „Líkami ykkar er heilagur“ (Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum, 23–26). Hvaða boðskap vonar gátuð þið fundið?
Jafnvel þegar við þekkjum blessanir þess að vera hreinlíf í hugsun og gjörðum, þá þýðir það ekki að það sé auðvelt. Þið gætuð tekið smá tíma til að hugleiða hvað það er sem gerir það erfitt fyrir ykkur að halda skírlífsstaðla frelsarans – og hvað auðveldar það. Hvaða ábendingum gætuð þið miðlað öðrum um hvað skal gera þegar þið standið frammi fyrir freistingum óverðugra hugsana?
Styðjið hvert annað. Ein af hinum miklu blessunum þess að hittast á kirkjusamkomum og í námsbekkjum er tækifærið til að fá stuðning frá samheilögum er við reynum að fylgja frelsaranum. Mörg okkar standa frammi fyrir samskonar áskorunum og sameiginleg reynsla getur verið mikill styrkur. Verið ekki hrædd við að viðurkenna að þið takist á við áskoranir. Miðlið hvert öðru því sem hjálpar ykkur að lifa eftir lögmáli Guðs og sigrast á freistingum.
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 121:45; Topics and Questions, „Virtue,” Gospel Library; „Standards: Sexual Purity and Modesty –True Confidence“ (myndband), Gospel Library; AddressingPornography.ChurchofJesusChrist.org.
Standards: Sexual Purity and Modesty - True Confidence
Lotningu ætti að sýna því sem heilagt er.
Reglurnar í Kenning og sáttmálar 63:58–64 fara út fyrir það að leggja nafn Guðs við hégóma. Hvaða fleira heilagt kemur „frá upphæðum“ eða frá Guði? Hvaða merkingu hefur það fyrir ykkar að ræða um þessa hluti „með gætni“?
Sjá þessa mánaðar útgáfur tímaritanna Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Kenning og sáttmálar 60:4; 61:1–2, 36; 62:1
Ritningarnar kenna um Jesú Krist
-
Kannski gætuð þið skrifað einhverjar af staðhæfingunum um frelsarann sem finna má í Kenningu og sáttmálum 60–62 á lítið blað. Börn ykkar gætu því næst parað þessar staðhæfingar við myndir af Jesú frá jarðneskri þjónustu hans (sjá Trúarmyndabók, nr. 34–61) sem sýna þessa eiginleika. Hvernig lætur hann okkur vita af sér í dag?
Hluti af Fyrir þennan tilgang, Yongsung Kim
Kenning og sáttmálar 60:7; 61:1–2; 62:1
Drottinn mun fyrirgefa mér ef ég iðrast.
-
Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 60:7; 61.2 með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að finna orðin sem þessi vers eiga sameiginleg. Minnið þau á að þessar opinberanir voru gefnar Joseph Smith og öðrum kirkjuleiðtogum. Hvað vildi Drottinn að þeir vissu? Þið gætuð einnig talað um tilfinningar frelsarans til okkar þegar við gerum mistök og hvað það þýðir að iðrast. Hvernig getur Jesús hjálpað þegar okkar er freistað, samkvæmt Kenningu og sáttmálum 62:1?
Jesús Kristur vill að ég miðli fagnaðarerindi hans.
-
Þið gætuð spurt börn ykkar að því hvað þau myndu segja ef einhver spyrði þau hvað þau elskuðu við Jesú Krist og kirkju hans. Það gæti vakið þeim hugmyndir að syngja með þeim lag um miðlun fagnaðarerindisins, eins og „Kristniboði strax“ (Barnasöngbókin, 90). Þið gætuð svo lesið Kenningu og sáttmála 62:3 og beðið börn ykkar að hlusta eftir því sem gerist þegar við miðlum vitnisburði okkar. Hvernig getur loforðið í versi 9 hjálpað ef við erum óstyrk?
Ég get sýnt lotningu.
-
Til að kynna Kenningu og sáttmála 63:64, þá gætuð þið sungið söng um lotningu með börnum ykkar, eins og „Lotning er kærleikur“ (Barnasöngbókin, nr. 12). Þessu næst gætuð þið talað um ýmsar leiðir til að sýna himneskum föður og Jesú Kristi lotningu.
-
Þið getið hjálpað börnum ykkar að skilja hvað lotning er með því að tala við þau um einhvern hlut sem skiptir þau máli, eins og uppáhalds leikfang, bók eða teppi. Spyrjið þau hvernig þau hirða um og fara vel með hluti sem eru þeim dýrmætir. Þið gætuð síðan lesið saman í Kenningu og sáttmálum 63:64. Hvað er himneskum föður dýrmætt – eða heilagt? (sjá til dæmis vers 61 og verkefnasíðu þessarar viku). Hvernig ættum við að hirða um þessa hluti – í orðum og gjörðum?
Sjá þessa mánaðar útgáfu tímaritsins Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.