„2.–8. júní: ,Starfa af kappi fyrir góðan málstað‘: Kenning og sáttmálar 58–59,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Kenning og sáttmálar 58–59,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
Independence, Missouri,1831, eftir Al Rounds
2.–8. júní: „Starfa af kappi fyrir góðan málstað“
Kenning og sáttmálar 58–59
Þegar öldungar kirkjunnar sáu fyrst borgarstæði Síonar – Independence, Missouri – var það ekki eins og þeir höfðu vænst. Sumir héldu að þeir finndu blómlegt og stöndugt samfélag, með sterkum hópi heilagra. Þess í stað fundu þeir strjálbýla útvarðarstöð, þar sem vantaði þá siðmenningu sem þeir voru vanir, byggða hrjúfum landnemum, fremur en heilögum. Í ljós kom að Drottinn var ekki bara að biðja þá að koma til Síonar – hann vildi líka að þeir byggðu Síon.
Þegar raunveruleikinn fellur ekki að væntingum okkar, getum við minnst þess sem Drottinn sagði við hina heilögu árið 1831: „Með náttúrlegum augum yðar getið þér eigi að svo stöddu séð áform Guðs um það, sem síðar skal koma … eða þá dýrð, sem fylgja mun eftir mikið mótlæti“ (Kenning og sáttmálar 58:3). Já, lífinu fylgja miklar þrengingar, jafnvel ranglæti, en við getum samt „[komið] miklu réttlæti til leiðar – því að krafturinn býr í [okkur]“ (vers 27–28).
Sjá einnig Heilagir, 1:127–33.
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
Kenning og sáttmálar 58:1–5; 59:23
„Eftir mikið mótlæti koma blessanirnar.“
Vonir hinna heilögu stóðu til þess að Jackson-sýsla myndi blómstra á æviskeiði þeirra og yrði að Síon, stað samansöfnunar allra heilagra. Hins vegar var tími þeirra í Jackson-sýslu uppfullur af þrengingum. Innan nokkurra ára neyddust þeir til að fara og „[bíða] um stund lausnar Síonar“ (Kenning og sáttmálar 105:9).
Hvað lærið þið um þrengingar eða áskoranir af orðum Drottins í Kenningu og sáttmálum 58:1–5? Af hverju haldið þið að sumar blessanir hljótist aðeins eftir þrengingar? Hvaða blessanir hafið þið hlotið eftir þrengingar?
Hvað lærið þið af Kenningu og sáttmálum 59:23 sem færir ykkur von?
Ég get „[komið] miklu réttlæti til leiðar“ „af frjálsum vilja [mínum].“
Sem hluta af námi ykkar í þessum versum, þá gætuð þið gert lista yfir einhverja þá hluti sem þið „starfið af kappi“ í. Eru þetta allt „[góðir málstaðir]“? Hugleiðið hvað þið getið gert til að „koma miklu réttlæti til leiðar“ – og íhugið að setja ykkur markmið til að ná því fram.
Af hverju teljið þið að Drottinn vilji að þið gerið „margt af frjálsum vilja [ykkar]? Hver væri niðurstaðan ef þið gerið ekkert „fyrr en [ykkur] er boðið það“? Hverju bætir 2. Nefí 2:27 við skilning ykkar á þessari reglu?
Sjá einnig Dale G. Renlund, „Veljið þá í dag,“ aðalráðstefna, október 2018.
Drottinn fyrirgefur mér þegar ég iðrast.
Loforð Drottins í Kenning og sáttmálar 58:42 um að fyrirgefa þeim algerlega sem iðrast er hvetjandi, þó að það vekji einnig nokkrar spurningar: Hvað táknar það að iðrast? Hvernig veit ég hvort ég hafi iðrast? Sem betur fer hélt Drottinn áfram: „Þannig getið þið vitað…“ (vers 43).
Hér eru nokkrar fleiri spurningar sem fólk hefur almennt varðandi iðrun. Hvað kennir andinn ykkur þegar þið lesið það efni sem lagt er til hér að neðan?
Hvernig hjálpar það mér við iðrun er ég játa syndir mínar? Sjá Sálmar 32:1–5; Orðskviðirnir 28:13; Mósía 27:34–37; Alma 39:12–13.
Ég er að reyna að láta af syndum mínum en mér mistekst ítrekað. Er iðrun mín enn gild? Sjá Bradley R. Wilcox. „Verðugleiki er ekki óaðfinnanleiki,“ aðalráðstefna, október 2021; „Daily Restoration“ (myndband), Gospel Library.
Daily Restoration
Hvernig get ég verið viss um að Drottinn hafi fyrirgefið mér? Sjá Tad R. Callister, „Friðþæging Jesú Krists,“ aðalráðstefna, apríl 2019, sérstaklega kaflann sem merktur er „2. Synd.“
Þið getið fundið meiri innsýn í „Spurningar og svör“ um iðrun í Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir fyrir ákvarðanatökur (bls. 8–9).
Sjá einnig Topics and Questions, „Repentance,“ Gospel Library
Hver var Polly Knight?
Polly Knight og eiginmaður hennar, Joseph Knight eldri, voru meðal þeirra sem fyrst trúðu á spámannlega köllun Josephs Smith. Polly og Joseph veittu spámanninum mikinn stuðning við þýðingarstarf Mormónsbókar. Knight-fjölskyldan fór frá Colesville, New York, til að sameinast hinum heilögu í Ohio og var síðar boðið að flytja til Jackson-sýslu, Missouri. Heilsu Pollyjar tók að hraka á ferð þeirra, en hún var staðráðin í því að sjá Síon áður en hún dæi. Hún hafði einungis verið í Missouri fáeina daga þegar hún andaðist (sjá Heilagir, 1:127–28, 132–33). Tekið var á móti Kenningu og sáttmála 59 á andlátsdegi hennar og vers 1 og 2 gætu vísað sérstaklega til hennar.
Boðorð eru blessun.
Hvað haldið þið að sé merking þess að vera „[krýnd] … fyrirmælum“? (vers 4). Hugleiðið hvernig Drottinn blessar ykkur er þið vinnið að því að hlýða hverju boðorði í versum 5–19.
Miðlið því sem þið lærið. Í mörgum tilfellum gæti hin andlega innsýn sem þið hljótið er þið nemið ritningarnar styrkt trú fjölskyldu ykkar, vina og deildarmeðlima. Miðlið þeim reynslu ykkar, tilfinningum og vitnisburði um Jesú Krist.
Hvíldardagurinn er dagur Drottins.
Eftir að hafa lofað að blessa hina heilögu í Síon, með „fyrirmælum ófáum,“ lagði Drottinn einkum áherslu á eitt boðorð, um að virða „[helgan dag hans]“ (Kenning og sáttmálar 59:4, 9). Þegar þið lærið Kenningu og sáttmála 59:9–19, hugleiðið þá ástæðu þess að svo mikilvægt var að þessir heilögu héldu hvíldardaginn heilagan, er þeir kappkostuðu að byggja upp Síon. Af hverju eru hún ykkur mikilvæg?
Þið gætuð líka íhugað hvort þið séuð að nýta hvíldardaginn eins og Drottinn ætlaði. Hvernig hjálpar það ykkur að vera „óflekkuð frá heiminum“ er þið haldið hvíldardaginn heilagan? (vers 9). Hvað getið þið gert til að votta „hinum æðsta hollustu“ ykkar? (vers 10).
Þið gætuð tekið eftir að Drottinn notaði orð eins og „gleði“ og „létt hjarta,“ til að kenna um hvíldardaginn. Hvernig veitir hvíldardagurinn ykkur gleði? Hvernig mynduð þið útskýra fyrir einhverjum ástæðu þess að þið veljið að heiðra dag Drottins?
Hvað lærið þið af sálminum „Helgisöng vér hefjum senn“ (Sálmar, nr. 58) um tilgang og blessanir hvíldardagsins?
Sjá einnig 1. Mósebók 2:2–3; Jesaja 58:13–14; Russell M. Nelson, „Hvíldardagurinn er feginsdagur,“ aðalráðstefna, apríl 2015.
Sjá þessa mánaðar útgáfur tímaritanna Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Himneskur faðir hefur veitt mér kraft til að velja.
-
Að lesa saman Kenningu og sáttmála 58:26–28 getur gefið ykkur og börnum ykkar tækifæri til að tala um þann kraft sem himneskur faðir hefur gefið okkur til að velja að gera gott. Þið gætuð sagt hverju öðru frá hinum ýmsu ákvörðunum sem þið hafið tekið og hvað gerðist í framhaldi af því. Kannski myndu börn ykkar langa til að teikna mynd af reynslu sinni.
-
Þið gætuð skrifað val á aðra hlið blaðs og afleiðingar á hina hliðina og notað þetta blað til að sýna fram á að val okkar og afleiðingar þeirra eru óaðskiljanlegar. Kannski gætu börn ykkar gert lista yfir nokkra valkosti og talað um afleiðingar þeirra. Þessu næst gætuð þið lesið saman í Kenningu og sáttmálum 58:27–28 og rætt um val sem „[kemur] miklu réttlæti til leiðar“ eða góðum afleiðingum. Hvernig blessar himneskur faðir okkur eða sér til þess að við munum „í engu glata launum“ okkar er við reynum að gera gott? (vers 28).
Kenning og sáttmálar 59:7, 18–21
„Þú skalt færa Drottni Guði þínum þakkir í öllu.“
-
Hugleiðið að lesa þessi vers er þið farið í göngu með börnum ykkar eða skoðið myndir af náttúrunni og gætið að því sem „þóknast auganu og [gleður] hjartað“ (vers 18). Þið gætuð einnig tekið eftir álíka atriðum í söng eins og „Himnafaðir elskar mig“ (Barnasöngbókin, nr. 16). Þið gætuð líka boðið börnum ykkar að teikna myndir af því sem þau eru þakklát fyrir og fengið þau til að segja frá myndunum sínum. Hvernig getum við sýnt þakklæti okkar fyrir þessa hluti?
Drottinn skapaði marga fallega hluti til að færa okkur gleði.
Hvíldardagurinn er dagur Drottins.
-
Hvað getum við gert á sunnudögum til að tilbiðja Drottin og finna gleði? Hjálpið börnum ykkar að finna hugmyndir í Kenningu og sáttmálum 59:9–12 og í verkefnasíðum þessarar viku. Ef til vill gætu þau einnig fundið myndir eða hluti til að tákna það sem við gerum á hvíldardeginum (eins og myndina af sakramentinu í þessum drögum). Hvernig hefur þetta hjálpað okkur að finnast við nær himneskum föður og Jesú Kristi?
Sjá þessa mánaðar útgáfu tímaritsins Barnavinar til að fá fleiri hugmyndir.