2025
Hvað vitum við um hirðana á fyrstu jólunum?
Desember 2025 – Líahóna


Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, desember 2025

Hvað vitum við um hirðana á fyrstu jólunum?

stúlka

Hirðar, eftir Brian Call

Við vitum ýmislegt um hirðana á fyrstu jólunum.

Þeir voru í námunda við Betlehem. Hirðarnir voru „í sömu byggð“ og fæðing Krists átti sér stað (Lúkas 2:8). Og þeir gátu komist fótgangandi til Betlehem meðan hann var þar enn (sjá Lúkas 2:15–16).

Þeir voru að sinna skyldu sinni. Þessir hirðar „voru úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar“ (Lúkas 2:8). Þeir voru góðir og trúfastir hirðar, eins og frelsarinn – hinn eini og sanni góði hirðir (sjá Jóhannes 10:11, 14).

Þeir þekktu spádómana um Messías. Þeir vissu greinilega hvað engillinn átti við þegar hann tilkynnti um fæðingu „Krists Drottins“ (Lúkas 2:11), þennan Messías sem spáð var fyrir um til forna.

Þeir voru fullir eldmóði. Þegar engillinn sagði þeim frá „ungbarninu … [sem var] liggjandi í jötu“ (Lúkas 2:12) fóru þeir „með skyndi“ til að sjá hann (Lúkas 2:16).

Þeir miðluðu gleðitíðindunum. Þeir „skýrðu frá því“ sem þeir höfðu heyrt og séð varðandi boðskap engilsins um fæðingu Krists (Lúkas 2:17).

Þeir þökkuðu Guði og lofuðu hann. Eftir allt þetta, „[sneru hirðarnir] aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það sem þeir höfðu heyrt og séð“ (Lúkas 2:20).