2025
Kraftur boðskaps okkar
Apríl 2025


Boðskapur svæðisleiðtoga

Kraftur boðskaps okkar

Fyrir nokkrum mánuðum heimsóttu þúsundir manna kirkjubásinn okkar á bókahátíðinni í Frankfurt þar sem fólki gafst tækifæri til að læra um Mormónsbók, lesa hana og segja frá því sem því fannst. Hinum megin í básnum gátu gestir skoðað ættarsögu og voru uppnumdir af umfangi þeirrar vinnu sem er á FamilySearch vefnum.

Eftir að hafa fengið innsýn, spurðu margir gestir: Af hverju eruð þið að gera þetta allt?

Við tóku djúpstæð samtöl um fagnaðarerindi Jesú Krists og endurlausnaráætlunina. Þessi samtöl gerðu mér ákveðna hluti aftur mjög ljósa:

-Það er engin ástæða til þess að vera hikandi við að deila vitnisburði okkar um Jesú Krist.

-Hönd Drottins kemur greinilega fram þegar við framkvæmum réttlátlega í nafni hans.

-Ekkert kemur nærri umfangi og tign endurlausnaráætlunarinnar og samansöfnun Ísraels beggja vegna fortjaldsins.

Þegar ég var að ganga að bílastæðahúsinu í lok síðasta dags sýningarinnar tók ég eftir fjölskyldu í hópnum fyrir framan mig sem talaði fjörlega um upplifun sína í básnum okkar.

Orð Russels M. Nelson forseta komu upp í huga mér:

„Ég ákalla ykkur til að hjálpa við samansöfnun hins tvístraða Ísraels og búa heiminn undir síðari komu Drottins. Ég ákalla ykkur til að tala um Krist, vitna um Krist, trúa á Krist og fagna í Kristi!“

Ég er þakklátur fyrir það tækifæri að gera einmitt það.

Í daglegu lífi okkar eru óteljandi áhrifavaldar sem keppast um athygli okkar sem geta truflað eða jafnvel hindrað okkur í að taka þátt í því. Ef við meðtökum í blindni þessi öfl, eigum við á hættu að verða ómerkjanlega, en jafnt og þétt, leidd burt frá aðdráttarsviði lífsins trés og ávaxta þess og öflin sem laða okkur að hinni miklu og rúmgóðu byggingu fá áhrif.

Nefí endurómaði ótvírætt orð Lehís föður síns:

„Og mikil var sú mannmergð, sem hélt innreið sína inn í hina furðulegu byggingu. Og þegar mennirnir voru komnir inn í hana, bentu þeir á mig með fyrirlitningu sem og á þá, sem einnig neyttu af ávextinum. En við gáfum þeim engan gaum. … að allir, sem gáfu þeim gaum, glötuðust.“

Að rækta vitnisburð sinn meðvitað, þýðir að tímanlega er tekið eftir breytingum á aðdráttarsviðinu af völdum áhrifa sem við verðum fyrir. Er ég í því ferli að fjarlægjast sáttmála mína við Guð, þar á meðal musterissáttmála? Er ég farinn að vanrækja að borga tíund eða það sem tengist öðrum boðorðum, viðtöku sakramentisins, hvíldardeginum, bænum mínum og hvernig ég næri sál mína?

Af og til er nauðsynlegt að spyrja sig nokkurra mikilvægra spurninga: Hver er staða mín í endurlausnaráætluninni? Í hverju skortir mig enn skilning? Hvað þarf ég frá Jesú Kristi til þess að ná þeim skilningi? Að hverju ætti iðrun mín að beinast nú þegar?

Hafið í huga að andleg hnignun verður hraðari því fjær sem förum frá Jesú Kristi. Á móti verða andlegar framfarir hraðari er við iðrumst daglega og færumst nær Jesú Kristi.

Ein áhrifaríkasta leiðin til að ná þessari auknu nálægð, er í raun að finna í leiðsögn spámanns okkar um að helga líf okkar aftur Jesú Kristi og bera vitni um hann. Þegar við gerum þetta af einurð, munum við í auknum mæli finna fyrir krafti Guðs í lífi okkar. Við munum hljóta leiðsögn heilags anda og í auknum mæli fá skilið þá leiðsögn. Við munum hafa meiri tilfinningu fyrir því að tilheyra og verða mjög oft undrandi á stærð og eilífu umfangi þessa verks.

En það er ekki allt: óháð aðstæðum okkar munum við í auknum mæli finna fyrir kærleika Guðs og það mun aftur hvetja okkur til að deila honum með öðrum. Við munum hljóta skilvirka vernd gegn eyðingaröflum í heiminum.

Að vinna á bókahátíðinni þreytti okkur mjög. Að lokum vorum við öll líkamlega úrvinda, en dásamlega örvuð í andanum og full af gleði.

Примітки:

  1. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,” aðalráðstefna, október 2024.

  2. 1. Nefí 8:33–34.