2017
Kölluð til verksins
June 2017


Boðskapur Æðsta forsætisráðsins, júní 2017

Kölluð til verksins

Thomas S. Monson forseti

Þegar spámaðurinn Joseph Smith kallaði öldung Heber C. Kimball (1801–68) til að „ljúka upp dyrum sáluhjálpar“ í Englandi, þá upplifði öldungur Kimball mikla vanmáttartilfinningu.

„Ó Drottinn,“ skrifaði hann, „ég er málhaltur maður og algjörlega óhæfur til slíks verks.“

Öldungur Kimball tók þó á móti kölluninni, en bætti við: „Þessar hugleiðingar komu ekki í veg fyrir að ég framfylgdi skyldum mínum; um leið og ég skildi vilja Drottins, þá einsetti ég mér að sýna áræðni, trúa því að hann styddi mig með sínu almætti og veitti mér allar þær gjafir sem ég þyrfti á að halda.“1

Mínir kæru ungu bræður og systur, sem kölluð eru til trúboðsþjónustu, þið eruð kölluð til verksins, því þið, líkt og öldungur Kimball, „þráið að þjóna Guði“ (K&S 4:3) og eruð viðbúin og verðug.

Eldri hjón, þið eruð kölluð til verksins af sömu ástæðum. Þið þráið ekki aðeins að þjóna, heldur búið líka yfir visku og reynslu og fórnarlund og kærleika, sem faðir ykkar á himnum getur notað til að snerta hjörtu sona sinna og dætra, er leita sannleikans. Þið hafið án efa komist að því að við getum ekki elskað og þjónað Drottin fyllilega án þess að þjóna öðrum.

Auk þeirrar þrár að þjóna sem trúboðar, þá þurfið þið að sýna trú og traust, hugprýði og hugrekki, þolgæði og þrautsegju og ákveðni og áræðni. Þeir trúboðar sem helga sig verkinu geta komið kraftaverki til leiðar á trúboðsakrinum.

John Taylor forseti (1808–87) sagði hina nauðsynlegu eiginleika trúboða vera þessa: „Við viljum að þeir menn [og konur og hjón] sem færa öðrum boðskap fagnaðarerindisins búi yfir trú á Guð; séu fullvissir um trúarbrögð sín; heiðri prestdæmi sitt; að þeir séu menn sem … Guð hefur tiltrú á. … Við viljum að menn séu fylltir heilögum anda og krafti Guðs[,] … séu menn sæmdar, ráðvendni og hreinleika.“2

Drottinn hefur lýst yfir:

„Því að sjá, akurinn er þegar hvítur til uppskeru; og tak eftir, að sá sem beitir sigð sinni af mætti sínum, sá hinn sami safnar sér forða, svo að hann farist eigi, heldur búi sálu sinni hjálpræði–

Og trú, von, kærleikur og ást, með einbeittu augliti á dýrð Guðs, gjörir hann hæfan til verksins“ (K&S 4:4–5).

Köllun ykkar hlaust fyrir innblástur. Ég ber vitni um að Guð getir þá hæfa sem hann kallar. Þið munuð hljóta hjálp himins, er þið starfið í víngarði Drottins í bænaranda.

Hið dásamlega loforð sem Drottinn gaf trúboðum, fyrr á þessari ráðstöfun, líkt og tilgreint er í Kenningu og sáttmálum, mun verða ykkar: „Ég mun fara fyrir yður. Ég mun verða yður til hægri handar og til þeirrar vinstri, og andi minn mun vera í hjörtum yðar og englar mínir umhverfis yður, yður til stuðnings“ (K&S 84:88).

Þið munuð skapa eilífar minningar og vináttu með þjónustu ykkar. Að mínu viti, þá uppsker trúboðsakurinn meiri hamingju en nokkur annar akur.

Ég beini máli mínu nú til þeirra öldunga, systra og hjóna sem af einhverjum ástæðum geta kannski ekki lokið sínum tilætlaða þjónustutíma á akrinum: Drottinn elskar ykkur. Hann hefur velþóknun á fórn ykkar. Hann þekkir vonbrigði ykkar. Vitið að hann hefur enn verk fyrir ykkur að vinna. Látið Satan ekki telja ykkur trú um annað. Látið ekki hugfallast; Látið ekki draga úr ykkur kjark; örvæntið ekki.

Líkt og ég sagði á aðalráðstefnu stuttu eftir að ég var kallaður til að leiða kirkjuna: „Óttist ekki. Verið vonglöð. Framtíðin er jafn björt og trú ykkar.“3 Loforðið er enn ykkar. Missið því ekki trúnna, því Drottinn hefur ekki misst trú á ykkur. Haldið sáttmála ykkar og sækið fram.

Heimurinn þarfnast fagnaðarerindis Jesú Krists. Megi Drottinn blessa alla sína heilögu – hvar sem við þjónum – með hjarta trúboðs.

Heimildir

  1. Heber C. Kimball, í Orson F. Whitney, Life of Heber C. Kimball,3. útg. (1967), 104.

  2. Teachings of Presidents of the Church: John Taylor (2001), 73.

  3. Thomas S. Monson, „Be of Good Cheer,“ Liahona, maí 2009, 92.