Trúarsamkomur 2025
Réttlátir ráðsmenn – lærisveinar Jesú Krists


44:17

Réttlátir ráðsmenn – lærisveinar Jesú Krists

Heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fullorðið fólk

4. maí 2025

Kæru vinir um allan heim, velkomnir! Ég er himinlifandi yfir að fá þetta tækifæri til að vera með ykkur – að miðla ykkur elsku minni og væntingum mínum til ykkar. Það sem mikilvægast er, ég vona að þið munið upplifa eitthvað í kvöld – að þið munuð skynja elsku Guðs og verðið innblásin til að ná fram hans æðstu væntingum til ykkar!

Við erum hér í hinum sögufræga Laufskála á Musteristorginu í Salt Lake City. Framkvæmdir hófust við þessa mikilfenglegu byggingu hundrað árum áður en ég fæddist. Á þeim tíma var byggingarefni afar dýrt á Utah-svæðinu, engar járnbrautir voru til að flytja birgðir og fé var af skornum skammti, jafnvel þótt það hefði verið til. Þeir sem unnu við þessa miklu byggingu voru samt útsjónarsamir og endurunnu þann efnivið sem til var. Hluti timbursins sem notað var, var endurunninn úr áður byggðum íbúðarhúsum. Naglar og skinnur voru mótuð úr slitnum uxahófum. Og gifsi var blandað við dýrahár til styrktar. „Endurtilgangur,“ „endurnotkun“ og „endurvinnsla“ voru tískuorð þeirra löngu áður en þau urðu hluti af þjóðmáli okkar.

Forfeður mínir í fjórða og fimmta ættlið, innflytjendur frá Englandi, unnu að því að reisa risastórar dyr fyrir þennan Laufskála. Hefðu þeir nokkurn tíma getað ímyndað sér afkomanda sinn tala frá þessum sögufræga stað?

Systur og bræður, skiljið þið áhrifin sem þið getið haft?

Heimurinn sem við lifum í er fullur af áskorunum. Þið eruð kynslóð kvenna og karla sem voruð geymd fyrir þennan tíma – þið hafið getu, eiginleika, þrá og tækifæri til að nota kraft Guðs til að takast á við þessi vandamál og leysa þau. Möguleikar ykkar eru guðlegir.

Ég hef trú á ykkur. Spámenn, sjáendur og opinberarar tjá traust á ykkur. Talað af þeim, er eins og mælt af Drottni sjálfum.

Gefist ekki upp við að reyna að takast á við margbreytileika þessa tíma. Við þörfnumst ykkar!

Ég skil að auðvelt sé að festast í neikvæðni, verða upptekinn í orrahríð þeirra vandamála sem greint er frá í heiminum. Vopnuð átök, stjórnmáladeilur, kúgun, náttúruhamfarir, mannlegar þjáningar – mér verður nánast erfitt um andardrátt. Þið gætuð fundið fyrir vanmætti til að hafa áhrif með langvarandi lausnir.

Ég lýsi því yfir af fullvissu að þið, blessuð með þeim styrk og krafti Guðs sem ykkur stendur til boða, er þið gerið og haldið sáttmála ykkar við hann, getið staðið gegn hinu neikvæða og látið ljós ykkar skína í hverju horni myrkursins.

„[Við] erum ljós heimsins,“ sagði frelsarinn. Og „ljós laðast að ljósi“. Að láta ljós lærisveinsdóms í Jesú Kristi skína, er hið fullkomna form endurnýjanlegrar orku – orku frá uppsprettu sem endurnýjast stöðugt. Ég ber vitni um að þegar við færum öðrum líkn hans og ljós, finnum við eigin líkn í honum.

Verið því friðflytjendur á heimili ykkar, í samfélagi ykkar og í nærveru ykkar á Alnetinu. Linið þjáningar í ykkar eigin hverfi.

Markmið Satans er að við verðum fyrir áhrifum. Aftur á móti, þá veitir hamingjuáætlun föðurins okkur tækifæri til að framkvæma, að hafa áhrif til góðs, til friðar og vonar.

Við getum spornað gegn villandi upplýsingum með því að deila upplífgandi, vongóðum og réttum upplýsingum – og orðið talsmenn sannleikans, fremur en að drekka bara í okkur upplýsingar. Við getum svarað neikvæðni með því að fylla heiminn af ljósi og góðum tíðindum fagnaðarerindis Jesú Krists.

Eins og ástkær spámaður okkar, Russell M. Nelson forseti, hefur sagt: „Jesús Kristur er alltaf svarið.“ „Hvaða spurningar eða vandamál sem þið hafið, þá er svarið alltaf að finna í lífi og kenningum Jesú Krists.“

Nelson forseti hefur boðið okkur að hafa lærisveinsdóm okkar í „algjöru fyrirrúmi“. Við dýpkum lærisveinsdóm okkar þegar við lærum af og um Jesú Krist. Við skulum því kanna kenningar frelsarans.

Matteus, kafli 25, hefur að geyma þrjár dæmisögur, síðustu dæmisögurnar sem Matteus segir að frelsarinn hafi kennt í jarðneskri þjónustu sinni. Við undirbúning nýlegrar aðalráðstefnuræðu minnar og undirbúning fyrir þessa trúarsamkomu, hvatti andinn mig til að fara aftur í þessar sögur og læra af þeim.

Í tilgangi okkar, langar mig að leggja áherslu á undirbúning og ráðsmennsku þessara dæmisagna. Nelson forseti hefur boðið: „Nú er tíminn fyrir ykkur … að búa okkur undir síðari komu … Jesú Krists.“ Ráðsmennska er vandleg og ábyrg stjórnun þess sem manni er falið að annast. Við líkjum eftir Jesú Kristi í ráðsmennsku okkar. Hlustið því eftir lexíum undirbúnings og ráðsmennsku sem við getum lært af þessum sögum.

Fyrst, dæmisagan um meyjarnar tíu – fimm sem voru vitrar og fimm sem lýst var sem fávísum.

Í dæmisögunni voru allar tíu meyjarnar á réttum stað og biðu brúðgumans. Hver þeirra hafði með sér lampa. Það sama á við ykkur öll. Þið eruð hér til að iðka trú ykkar og byggja upp vitnisburð ykkar.

Þegar brúðguminn – sem táknar frelsarann – kom óvænt á miðnætti, höfðu fimm þeirra ekki næga olíu fyrir lampana sína. Þær töldu ef til vill ekki mikilvægt eða nauðsynlegt að hafa meiri olíu. Eða þær hefðu ekki verið hyggnir ráðsmenn olíunnar sem þær höfðu. Þær voru ef til vill annars hugar og undirbjuggu sig ekki nægilega vel fyrir að halda lömpunum logandi.

Sem svar við beiðni þeirra um að fá að taka þátt í brúðkaupsveislunni, svaraði brúðguminn: „Þið þekkið mig ekki.“ Hann gaf í skyn að með undirbúningi sínum og viturri ráðsmennsku þekktu vitru meyjarnar hann.

Hin dýrmæta olía, sem táknaði persónulega trúarumbreytingu, gerði vitru meyjunum kleift að kveikja á lömpum sínum og taka þátt í brúðkaupinu með brúðgumanum. Ekki var hægt að deila olíunni með vinkonum þeirra, því persónuleg trúarumbreyting er einmitt það – persónuleg. Við getum og ættum að halda ljósi lampa okkar hátt á loft til að lyfta og styrkja aðra, en sérhvert okkar er ráðsmaður okkar eigin trúarumbreytingar.

Eins og frelsarinn orðaði það: „Verið þess vegna staðfastir og biðjið án afláts, látið loga á hreinum lömpum yðar og hafið olíu með yður, svo að þér séuð reiðubúnir við komu brúðgumans.“

Við munum á sama hátt kynnast frelsaranum og hafa „traust til að nálgast Guð einmitt núna þegar við búum okkur undir að hafa lampa okkar fulla af olíu trúarumbreytingar og látum síðan ljós þeirrar trúarumbreytingar skína. Eins og hinn stórkostlegi skúlptúr á Musteristorginu sýnir, þá getum við og ættum að styðja og styrkja aðra er við gerum það – hvetja aðra til að koma til ljóssins – ljóss heimsins, Jesú Krist.

Önnur dæmisagan sem Matteus segir er um talenturnar. Í þeirri sögu gaf húsbóndinn, sem fór í langt ferðalag, þremur þjónum sínum talentur. Á tímum Nýja testamentisins táknaði talenta peninga. Ég vona samt að þið hugsið um talentur sem þær gjafir, þá hæfni og þær blessanir sem himneskur faðir okkar hefur fært okkur. Einum þjóni fékk húsbóndinn fimm talentur, öðrum tvær talentur og þeim þriðja eina talentu. Síðan lagði húsbóndinn af stað í ferðalagið.

Þegar hann kom til baka, uppgötvaði hann að þjónarnir sem hann hafði gefið fimm talentur og tvær talentur, höfðu verið trúir og árangursríkir ráðsmenn og nýtt talenturnar vel. Hvor þeirra hafði tvöfaldað talenturnar sem þeim hafði verið treyst fyrir. Og þar sem þeir höfðu verið trúir yfir litlu, gaf húsbóndinn þeim meira og sagði: „Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.“

Þjónninn sem hafði fengið eina talentu gróf aftur á móti sína í jörðu – ef til vill vegna þess að hann var annars hugar og frestaði því að nýta vel hæfileika sína. Eða ef til vill var hann ergilegur yfir því að vita hvernig hann ætti að byrja eða hræddur um að honum myndi mistakast. Ef til vill bar hann sig saman við hina þjónana og efasemdir hans um eigin getu komu í veg fyrir að hann reyndi. Hann hafði ekki búið sig undir endurkomu húsbóndans, hann upplifði ekki gleði trúfastrar ráðsmennsku og hann missti talentuna sína.

Dæmisagan um meyjarnar tíu og dæmisagan um talenturnar eru hliðstæðar dæmisögur. Báðar leggja áherslu á að við berum persónulega ábyrgð á eigin trúarumbreytingu og verðum að búa okkur sjálf undir að taka á móti upphafningargjöf Drottins – og að við höfum ráðsmennsku og persónulega ábyrgð gagnvart því sem við höfum verið blessuð með.

Loks, í Matteusi 25, er sagt frá þeim sem búa yfir „djörfung frammi fyrir Guði“. Við þá, sem lýst er sem sauðum góða hirðisins, sem fundust honum á hægri hönd, sem nutu brúðkaupsveislunnar með honum og voru blessaðir sem ríkjendur yfir miklu, sagði hann:

„Hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, [ég var] nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.“

Þetta myndband lýsir þessu fallega.

[myndband (skjátexti)]

„Jesús sýndi okkur hvernig elska á náunga okkar. Við fylgjum fordæmi hans þegar [við lyftum] þreyttum, nærum börnin, huggum þau sem umhverfis okkur eru, fæðum hina hungruðu, leitum hinna þurfandi. Á hverjum degi gefst tækifæri til að verða eins og hann, þjóna eins og hann, veita umhyggju eins og hann. Dag hvern hefst umhyggjan með ykkur. Farið á CaringSummary.ChurchofJesusChrist.org.”

[myndbandi lýkur]

Þetta er það sem við erum beðin um. Sem lærisveinar hans, búum við okkur undir síðari komu hans og iðkum ráðsmennsku yfir því sem við höfum verið blessuð með, af trúmennsku og farsæld. Samúð, kærleikur, dyggð og trúföst ráðsmennska gera okkur hæf til að dvelja hjá honum og hafa traust frammi fyrir Guði núna. Eins og Mormón kenndi, þá mun þeim sem fyllt eru kærleika – hinni hreinu ást Krists – „farnast vel“ á efsta degi. Þau verða eins og frelsarinn, sjá hann eins og hann er, fyllt von og verða hreinsuð, já, eins og hann er hreinn. Nelson forseti hefur sagt: „Kærleikur og dyggð [opna] leið til að hafa traust frammi fyrir Guði!“

Allar þessar þrjár dæmisögur kenna hvernig lærisveinar hans – hvernig við – ættum að búa okkur undir hina örðugu tíma sem eru undanfari síðari komu frelsarans. Það eru tímarnir sem við lifum á! Okkur ber að halda lömpum trúarumbreytingar okkar logandi skærum, láta ljós okkar skína, nota og efla hæfileika okkar, annast hina þurfandi – sem er að eiga kærleika, hina hreinu ást Krists.

Allar þessar þrjár dæmisögur kenna okkur um ráðsmennsku:

Ráðsmennsku eigin trúarumbreytingar.

Ráðsmennsku gjafa, hæfileika, eigna og hjálpar sem við höfum verið blessuð með, þar með talið jarðarinnar.

Ráðsmennsku samferðafólks okkar, sem er hungrað, heimilislaust, sárt og þreytt.

Hvernig ástundum við góða ráðsmennsku, sem lærisveinar Jesú Krists?

Ef til vill væri gagnlegra að ræða ráðsmennsku vandlegar. Við skulum fyrst skilgreina ráðsmennsku. Og hvað er ráðsmaður?

Ráðsmaður hefur umsjón með eignum stórs heimilishalds eða bús. Ráðsmaður er ekki eigandi eigna, en er falið að sýsla með þær fyrir hönd eigandans. Farsæll ráðsmaður er trúr eiganda eignanna og annast auðlindirnar skynsamlega og rausnarlega. Ráðsmennska er því að sjá um þá hluti sem okkur er falið að annast af vandvirkni og ábyrgð.

Gérald Caussé biskups í Yfirbiskupsráðinu, kenndi hvað það felst í því að vera jarðneskur ráðsmaður. Hann sagði: „Orðið ráðsmennska í fagnaðarerindinu felur í sér helga andlega eða stundlega skyldu til að annast eitthvað sem tilheyrir Drottni og við erum ábyrg fyrir.“

Hugleiðið hversu stórfengleg hugmynd þetta er! Við erum ráðsmenn eignanna sem faðir okkar á himnum hefur treyst okkur fyrir. Það er heilagt traust varðandi jörðina; auðlindir hennar, börn hans; gjafir okkar, hæfileika og blessanir. Það er einnig heilög ábyrgð að fara varlega með eigur hans.

Gagnvart hverju eða hverjum hafið þið ráðsmennsku?

Það er í raun gagnvart öllu sköpunarverki Guðs á þessari jörðu. Þið berið ábyrgð á eigin líkama og huga. Þið hafið ráðsmennsku varðandi hæfni, hæfileika, andlegar gjafir og þá hjálp sem þið hafið verið blessuð með. Þið hafið ráðsmennsku gagnvart jörðinni. Og þið hafið ráðsmennsku gagnvart hvert öðru.

Biskup Caussé biskup útskýrði: „Ráðsmennska okkar yfir sköpun Guðs [felur] … í sér hina helgu skyldu að elska, virða og annast alla menn sem við deilum jörðinni með. Þeir eru synir og dætur Guðs, systur okkar og bræður og eilíf hamingja þeirra er tilgangur sköpunarverksins.“

Verðið þið farsælir ráðsmenn? Það er, munið þið annast sköpun Guðs af visku og örlæti?

Ég vil skerpa áherslu okkar á ráðsmennsku þeirra gjafa og hæfileika sem við höfum verið blessuð með, ráðsmennsku okkar yfir jörðinni og ráðsmennsku gagnvart náunganum. Munið að réttlát ráðsmennska er staðfesting á lærisveinsdómi okkar.

Í fyrsta lagi, ráðsmennska varðandi gjafir okkar og hæfileika.

Í Kenningu og sáttmálum 46:11–12 lærum við þennan sannleika:

„Því að allir hljóta ekki sérhverja gjöf, því að gjafirnar eru margar og andi Guðs gefur hverjum manni gjöf.

Sumum er gefin ein og öðrum er gefin önnur, svo að allir njóti góðs af því.“

Andlegar gjafir okkar eru hæfileikar sem Guð gefur hverju okkar. Þær eru gefnar samkvæmt vilja hans og tíma, fyrir kraft heilags anda, og eru ætlaðar öllum börnum Guðs til blessunar og farsældar.

Trúir ráðsmenn leita andlegra gjafa, bjóða þeim inn í líf sitt og nota þær sem þeir hafa verið blessaðir með, til að lyfta öðrum upp og þjóna öðrum. Sérhverju ykkar, börnum Guðs, hefur verið gefið gjafir og sérstakir hæfileikar.

Öldungur Marvin J. Ashton, meðlimur Tólfpostulasveitarinnar, lýsti nokkrum síður áberandi gjöfum, eiginleikum og atgervi sem þið hefðuð kannski ekki íhugað. Viljið þið ígrunda þau, er ég tel þau upp, og leitast við að bera kennsl á eitt eða tvennt sem þið hafið verið blessuð með? Íhugið síðan, hafandi þá gjöf, hvernig þið hyggist nota hana sem trúfastir ráðsmenn til að blessa aðra.

„Gjöfin að spyrja; gjöfin að hlusta; gjöfin að hlusta á hljóða og kyrrláta rödd og láta leiðast af henni; gjöfin að geta grátið; gjöfin að forðast deilur; gjöfin að vera samvinnuþýður; gjöfin að forðast endurtekinn hégóma; gjöfin að sækjast eftir því sem er réttlátt; gjöfin að dæma ekki; gjöfin að líta til Guðs eftir leiðsögn; gjöfin að vera lærisveinn; [gjöfin að stilla]; gjöfin að bera umhyggju fyrir öðrum; gjöfin að geta ígrundað; gjöfin að flytja bæn; gjöfin að gefa … máttugan vitnisburð; og gjöfin að taka á móti heilögum anda.“

Er þið haldið áfram að ígrunda gjafir ykkar, má ég þá setja fram varnaðarorð? Berið ekki gjafir ykkar saman við gjafir annarra. Takið ekki þátt í „niðrandi sjálfsmati“. „Samanburður gerir okkur gleðisnauð.“ Eignið ykkur gjafir ykkar og fagnið yfir þeim sem aðrir eiga. Hafið í huga að andlegar gjafir eru gefnar af Guði með andanum, í þeim tilgangi að allir njóti þar góðs af.

Amma mín kæra var enskukennari og valdi orð sín vandlega. Henni var tamt að segja: „Samanburður er viðbjóðslegur [odious].“ Odious er mjög sterkt orð. Það merkir „fyrirlitlegt og mjög andstyggilegt“. Af hverju notaði amma mín svo sterkt orð þegar hún sagði mér frá áhættunni sem stafar af samanburði? Það er vegna þess, að það er sjaldan gagnlegt að bera okkur saman við aðra. Þegar við berum okkur saman við aðra, skiljum við okkur frá þeim. Í stað þess að finnast ég tilheyra öllum líkama Krists, tek ég að mér hlutverk litla fingurs og mæli virði mitt við einhvern sem ég tel vera axlir, handleggir og búkur. Þegar við berum okkur saman við aðra, finnst okkur við almennt annað hvort óæðri eða æðri, en hvorugt á við. Við erum öll ástkær börn himneskra foreldra, blessuð með persónusniðnum pakka andlegra gjafa, eiginleika, hæfileika og styrks.

Ég býð ykkur því að tileinka ykkur þá náðargáfu að hverfa frá samburði. Biðjið himneskan föður að hjálpa ykkur að bera kennsl á andlegar gjafir ykkar og hæfileika og hvernig þið gætuð notað þau sem trúfastir ráðsmenn.

Hér er eitt dæmi.

Fyrir nokkrum árum var Jean, ung kona, búsett í Hollandi, að hugleiða boðorðið sem Adam og Evu var fyrst gefið um að margfaldast og uppfylla jörðina. Þegar hún og eiginmaður hennar upplifðu ófrjósemi, reyndu þau að skilja hvernig þetta boðorð átti svo við um þau. Hún áttaði sig á, að á þeim tíma þegar Adam og Eva voru barnlaus, ræktuðu þau og önnuðust garðinn sem Guð hafði falið þeim ráðsmennsku yfir. Þegar hún íhugaði aðstæður sínar, hugsaði hún um garðana sem hún bjó í – garð jarðarinnar, garðinn í landi sínu, garð fjölskyldu sinnar og garðinn sem deildin hennar tilheyrði.

Henni varð ljóst að þó að hún byggi ekki í aldingarðinum Eden, þá voru þetta garðarnir sem Drottinn hafði sett hana í. Hún gat unnið að því að margfalda og endurnýja það sem hann hafði falið henni ráðsmennsku yfir. Jean hugleiddi:

  • „Hvernig get ég margfaldað þær gjafir sem Drottinn hefur gefið mér og öðrum?

  • Hvernig get ég margfaldað elsku til barna Guðs?

  • Hvernig get ég margfaldað tíma minn og krafta í þjónustu við aðra?

  • Hvernig get ég uppfyllt minn eigin andlega brunn?

  • Hvernig get ég uppfyllt það sem aðrir hafa glatað, hvort sem það er stundlegt eða andlegt?

  • Hvernig get ég uppfyllt von og trú sem virðist vera glötuð mörgum í heiminum?“

Þegar Jean einbeitti sér að þessum spurningum, naut hún þeirrar blessunar að sjá tækifæri til að margfaldast og uppfylla með því að nota gjafir sínar og hæfileika. Hún kenndi ungu fólki hvaðanæva að úr heiminum leiklist. Hún þjónaði stúlkunum. Hún nýtti sér sveigjanleika í atvinnulífinu til að hjálpa við að hugsa um börn vina sinna. Hún varði meiri tíma í að læra fagnaðarerindið og fannst hún blessuð að skilja betur hvernig bera ætti byrðar annarra og hugga þá sem huggunar þarfnast. Það jók vitnisburð hennar og trú á Jesú Krist og fagnaðarerindi hans. Mikilvægast var að hún öðlaðist persónulegan skilning á áætlun Guðs fyrir sig.

Góðir ráðsmenn margfalda alltaf og uppfylla eignir meistarans.

Þótt reynsla Jean hafi ekki verið á þann hátt sem hún hafði ímyndað sér í fyrstu, þá er hún dásamleg staðfesting á loforði spámannsins Jeremía, sem sagði:

„Blessaður er sá maður, sem treystir Drottni, Drottinn er athvarf hans.

Hann er sem tré, gróðursett við vatn og teygir rætur sínar að læknum, það óttast ekki að sumarhitinn komi því að lauf þess er sígrænt. Það er áhyggjulaust í þurru árferði, ber ávöxt án áfláts.“

Í öðru lagi, ráðsmennska yfir jörðina og öllum börnum Guðs.

Russell M. Nelson forseti hefur kennt: „Hvað eigum við, sem njótum góðs af hinni guðlegu sköpun, til bragðs að taka? Við ættum að annast jörðina, vera skynsamir ráðsmenn yfir henni og varðveita hana fyrir komandi kynslóðir.“

Ég veit að þetta er málefni sem ykkar kynslóð lætur sér afar annt um. Þið eruð mjög ákveðin og sum ykkar eru kvíðafull. Ég fullvissa ykkur um að Guð hefur séð öllum á þessari plánetu fyrir leið til heilbrigðs lífs, ef við erum fús til að nota gjafir okkar og hæfileika til þess, vera verðug þess að hljóta opinberun og nota hinar miklu auðlindir jarðar af skynsemi, til að annast hvert annað.

Drottinn sagði:

„Ég … þandi út himnana og skóp jörðina, mitt eigið handaverk. Og allt, sem þar er, er mitt.

Því að jörðin er auðug, af nógu er að taka og meira en það, já, ég gjörði allt til reiðu og hef gefið mannanna börnum sjálfræði.“

Hvernig munið þið nota sjálfræðið sem þið hafið verið blessuð með, ráðsmennsku ykkar, fyrir hinnar dýrðlegu blessanir jarðarinnar?

Drottinn útskýrir í næsta versi að okkur beri að „[taka] af þeirri gnægð, sem [sem hann hefur] gjört, og [gefa okkar] hluta af því til hinna fátæku og þurfandi, í samræmi við lögmál fagnaðarerindis [hans]“. Það er af nógu að taka ef við deilum ríkulega blessunum okkar og notum sjálfræði okkar sem kristilegir ráðsmenn jarðar.

Förum aftur í tilvitnunina í Nelson forseta um ráðsmennsku okkar yfir jörðinni. Hann sagði: „Hvað eigum við, sem njótum góðs af hinni guðlegu sköpun, til bragðs að taka? Við ættum að annast jörðina, vera skynsamir ráðsmenn yfir henni og varðveita hana fyrir komandi kynslóðir.“

Nelson forseti hélt síðan áfram: „Og okkur ber að elska og annast hvert annað.“

Það er mikilvægt að við könnumst við tengslin á milli þess að annast jörðina og að annast náunga sinn. Með því að hirða um jörðina, fegra umhverfi okkar og stuðla að sjálfbærari samfélögum, erum við sem skynsamir ráðsmenn jarðar að blessa líf náunga okkar. Þetta eru þau sem okkur hefur verið boðið að elska. Eins og sauðirnir í dæmisögunni, þá fæðum við hungraða, gefum þyrstum vatn, klæðum nakta og vitjum sjúkra og þreyttra. Við „[styðjum] þá óstyrku, lyftum máttvana örmum og [styrkjum] veikbyggð kné“.

Systur ykkar og bræður um allan heim gera þetta. Eritai ólst upp á hinni afskekktu eyju Marakei, Kíribatí. Eftir að hann kom heim úr trúboði sínu, sótti hann BYU-Havaí, þar sem hann tók þátt í teymistarfi SWAT, Sustainable World Action Technology, og lærði um vatnsræktunargarðyrkju, aðferð til að rækta plöntur án jarðvegs með því að nota steinefnanæringarefni í vatnslausn. Að námi loknu sneri Eritai aftur til Kíribatí til að hjálpa sínu eigin fólki.

Kíribatí er eyþjóð sem samanstendur af 32 hringlaga kóraleyjum með miðlægum lónum, svokölluðum baugeyjum, og einni hærri kóraleyju. Vegna staðsetningar þeirra við miðbaug eru veðurskilyrði erfið. Heit og sölt sjávargolan og ágangur sjávar, eyðileggur uppskeru og mengar vatn. Þannig að það er skortur á jarðvegi og rými til að rækta næringarríkan mat. Vannæring og sjúkdómar voru orðin útbreidd hjá eyjaskeggjum Kíribatí, vegna þess að þeir treystu nær eingöngu á innflutt og unnin matvæli.

En Eritai hafði orku og framtíðarsýn, hæfileika sem hann nýtti sér til að búa til sjálfbæra áætlun til að kenna Kíribatí-fjölskyldum á staðnum, hvernig rækta ætti heilnæma ávexti og grænmeti með vatnsræktun. Vatnsræktunargarður er flytjanlegur, sjálfstæður og vex hratt og framleiðir uppskeru á 30 dögum.

Fyrir nýstárlegt og lífsbjargandi starf sitt, hlaut Eritai sérstaka viðurkenningu frá Sameinuðu þjóðunum fyrir Asíu-Kyrrahaf.

Eritai er stórkostlegt dæmi um að nota gjafir og hæfileika á arðbæran hátt í ráðsmennsku hvað varðar jörðina og náunga sinn. Þegar við fæðum hungraða, erum við talin með sauðunum til hægri handar Guði.

Og okkur ber að gefa hinum þyrstu að drekka. Að blessa náunga okkar með aðgengi að hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og hreinlæti, er nauðsynlegt til að mannkynið geti blómstrað. Til að ná þessu verki fram, á kirkjan samstarf við samtök og samfélög víða um heim, til að bæta aðgengi að þessari þjónustu og styrkja heildarkerfi, tryggja að lausnir séu langvarandi og stuðla að sjálfsbjargarviðleitni. Þetta er mikilvægt verk! Og það verður sífellt mikilvægara, eftir því sem þurrkar verða algengari um allan heim og íbúum fjölgar stöðugt.

Alexandra, ung kona í Cascas, Perú, spurði sig sjálfa: „Hvað skortir okkur hér?“ Alexandra vissi að hið minnsta 20 prósent fjölskyldna í samfélagi hennar skorti hreinlætisaðstöðu, sem leiddi til aukinnar hættu á vatnsberandi sjúkdómum, eins og kóleru. Til að takast á við þessa áskorun, fór Alexandra í þjálfun hjá hreinlætisfyrirtæki á vegum heimateymis frá Water for People í Perú.

Hún stofnaði fyrirtæki og fyllti litlu verslunina sína með birgðum, eins og vöskum, blöndunartækjum, salernum, flísum og öðru efni sem fjölskyldur þurftu til að ljúka við baðherbergin sín. Nú hafa fjölskyldur í Cascas aðgang að efninu, sem þær þurfa til að fullvinna baðherbergi á heimilinu.

Þið getið líka kynnt ykkur hreint vatn og hreinlætisaðstöðu í samfélagi ykkar og hvernig þið getið tekið þátt.

Spámaðurinn Jesaja endurómar samtímavin sinn, Jeremía, þegar hann segir við okkur:

„[Ef þú] réttir hungruðum það sem þig langar sjálfan í og seður þann sem bágt á, þá rennur ljós þitt upp í myrkrinu. …

Drottinn mun stöðugt leiða þig, seðja þig í skrælnuðu landi, … þú munt líkjast vökvuðum garði, uppsprettu sem aldrei þrýtur.“

Auðvitað er Jesús Kristur uppspretta alls lifandi vatns. Ég ber vitni um að þegar við gefum hinum þyrstu að drekka, þá erum við blessuð af því að drekka hið lifandi vatn hans – úr „lind sem streymir fram til eilífs lífs.“ Þegar við önnumst jörðina og náunga okkar, komumst við nær frelsaranum og þráum sáttmálssamband við hann sem gerir okkur kleift að verða líkari honum. Við verðum ábyrgir ráðsmenn – og einnig ánægðir ráðsmenn. Við munum endurnýjast og svífa á vængjum eins og ernir og ekki þreytast.

Á síðasta ári tilkynnti aðalforsætisráð Líknarfélagsins um útvíkkun á heimslægu átaksverkefni til að bæta heilsu og velferð kvenna og barna. Að beiðni Æðsta forsætisráðsins leiðir Líknarfélagið þetta verk.

Við viljum efla konur og fjölskyldur með meiri skilning og úrræðum, svo þær séu betur í stakk búnar til að gera breytingar sem geta haft varanleg áhrif á heimili þeirra, samfélög og þjóðir. Þegar kona hlýtur styrk, vegna þess að hún er heilbrigð og menntuð, eru fjölskyldur blessaðar, samfélögum lyft upp og þjóðir styrktar. Þegar þið blessið barn, fjárfestið þið í framtíðinni. Þannig að starf okkar beinist að næringu barna yngri en fimm ára, mæðra- og nýburaumönnun, bólusetningum og menntun.

Alaina er ungur fullorðinn einstaklingur sem býr í Georgíu, Bandaríkjunum. Hún stundar doktorsnám í iðjuþjálfun með það að markmiði að vinna á nýburagjörgæsludeild sjúkrahúss fyrir börn sem þurfa sérstaka umönnun eftir fæðingu, einkum þau sem fæðast fyrir tímann. Alþjóðlegt framtak Líknarfélagsins fyrir konur og börn vakti áhuga Alainu. Innblásin af boðinu um að taka þátt í alþjóðlega verkefninu, er Alaina að búa til „kengúruástúð“, eða húð-við-húð snertingu, fyrir börn sem fæðast fyrir tímann, viðfangsefni útskriftarverkefnis hennar.

Á heimsvísu fæðast árlega nærri 15 milljónir barna fyrir tímann. Og í Atlanta, Georgíu, þar sem Alaina býr, er fyrirburafæðingartíðni og ungbarnadauði samtals hærri en landsmeðaltal Bandaríkjanna.

Alaina er að búa til fræðsluáætlun, svo fólk sé meðvitaðra um ávinninginn af húð-við-húð snertingu milli fyrirbura og mæðra þeirra. Börn, sem aðeins eru með bleyju, eru sett beint á húð móðurinnar á bringu hennar, svo er ábreiða sett ofan á þau bæði. Þessi snerting viðheldur hitastigi, lækkar streitu, stjórnar hormónum, eykur tengingu, stuðlar að brjóstagjöf, bætir svefn og hefur marga aðra kosti. En það er ekki alltaf útfært í nýburabráðaumönnun sem stöðluð umönnun. Verkefni Alaina miðar að því að bæta framkvæmdina.

Henni fundust rannsóknir sínar afar andlegar. „Að lesa vísindin … og … að læra að líkami okkar er skapaður til að gera þessa hluti“ var rökrétt fyrir hana vegna þess sem hún veit um sáluhjálparáætlunina.

Húð-við-húð umönnun fyrir fyrirbura er einkar hjartnæm fyrir mig, því ég átti barnabarn fætt í febrúar, næstum sjö vikum of snemma. Sá litli stríðsmaður var aðeins 2,5 kíló og var næstum mánuð í nýburabráðaumönnun. Og hvern einasta dag höfðu tengdadóttir mín og sonur hann á bringunni, húð-við-húð. „Kengúruástúð“ er nefnilega líka fyrir pabba. Áfallið vegna skyndilegrar fæðingar barnabarns okkar og sársaukinn við að skilja hann eftir á sjúkrahúsinu, mildaðist á þessum augnablikum.

Alaina lætur ljós trúarumbreytingar sinnar skína; hún notar hæfileikana sem hún hefur verið blessuð með og hún annast hina þurfandi með því að læra og vekja athygli á þessari mikilvægu iðkun. Viðleitni hennar er í samræmi við boð frelsarans: „[Ég var] sjúkur og þér vitjuðuð mín.“

Eritai, Alexandra og Alaina eru lærisveinar Jesú Krists sem búa sig undir síðari komu hans, er þau iðka ráðsmennsku þess sem Drottinn hefur blessað þau með, af trúmennsku og farsæld.

Frelsarinn sagði: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ Þetta unga fullorðna fólk er vissulega dæmigert fyrir þau sem frelsarinn segir vera sauði sína, sem verða honum til hægri handar, hæfir til að njóta návistar hans.

Við tilheyrum kirkju sem vinnur undraverð góðverk um allan heim og blessar líf samferðafólks okkar, ekki aðeins meðlima okkar. Árið 2024 voru klukkustundir í sjálfboðavinnu 6,6 milljónir. Útgjöld voru 1,45 milljarðar Bandaríkjadala og 192 löndum og svæðum var þjónað. Hnattræn mannúðarverkefni kirkjunnar fólu m.a. í sér verkefni varðandi hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, neyðaraðstoð, heilsugæslu og matvælaöryggi. Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og meðlimir hennar láta ljós sitt skína, til að vegsama föður okkar á himnum.

Þótt kirkjan og Líknarfélagið geti og muni nota heimslægt áhrifasvæði sitt til að auka umfang innblásins starfs við að fæða hungraða, gefa þyrstum að drekka, klæða nakta og annast sjúka, þá er mikilvægasta og áhrifaríkasta verkið áfram unnið frá einum til annars.

Þegar við reynum að líkja eftir Jesú Kristi, reynum við að átta okkur á aðkallandi þörfum umhverfis okkur og bregðast við með kærleika. Við kappkostum að vera trúfastir ráðsmenn eigna hans – sem felur í sér hæfileikana og tækifærin sem við höfum verið blessuð með, jörðina í allri sinni dýrð og fólkið innan áhrifasvæðis okkar.

Líkt og Naaman í Gamla testamentinu, gætuð þið verið að bíða þess að vera sagt að vinna „erfitt verk“ – og þið veltið fyrir ykkur hvernig þið komist til þessa afskekkta hluta Afríku eða eyju í hafinu, til að annast nágranna ykkar í heiminum.

Bræður og systur, ég býð ykkur að nota gjafir ykkar og hæfileika til að gera nokkra smáa og einfalda hluti á áhrifasvæði ráðsmennsku ykkar. Hvar sem þið búið eru vannærð börn. Hvar sem þið búið er fólk sem kann ekki að lesa. Hvar sem þið búið eru hindranir fyrir heilbrigðisþjónustu. Hvar sem þið búið eru þau sem eru hungruð, þyrst, nakin, sjúk og í fangelsi, eiginlega eða óeiginlega.

Vinir, við þörfnumst ykkar! Ég vona að þið leitið opinberunar af einlægni og notið gjafir ykkar og hæfileika til að finna skapandi lausnir til að blessa framtíð allra barna Guðs. Þetta er vissulega hluti af guðlegri ráðsmennsku ykkar.

[myndband (skjátexti)]

„Alheimurinn er gríðarstór. Trilljónir vetrarbrauta, með milljörðum stjarna, landa, vatna, plantna og dýra. Samt … elskar Guð öll sköpunarverk sín og þekkir þau með nafni. Að ykkur meðtöldum.“

[myndbandi lýkur]

Ég lýk með persónulegri sögu. Einni um mína kæru vinkonu, Lydiu, sem flutti inngangsbænina í kvöld. Ég kynntist Lydiu þegar hún þjónaði fyrir nokkrum árum í Líknarfélagsbyggingunni sem þjónustutrúboði. Lydia klæðist alltaf fjólubláu, vegna þess að sú kona sem lýst er sem fyrsta trúskiptingi Páls hét Lýdía og seldi fjólublá klæði.

Lydia var greind með gigt þegar hún var einungis fjögurra ára gömul. Þótt hún þjáist af sársauka dag hvern, þá lætur hún af unaði ljósið skína af trúskiptum sínum til Jesú Krists. Sé eitthvað dyggðugt, fagurt, háleitt eða lofsvert – þá er hún þetta allt!

Sem hluta af því verkefni að tala til ykkar allra, var mér boðið að velja þá sem myndu flytja bænir í kvöld. Lydia kom strax upp í huga minn. Hún lauk trúboði sínu, hóf nám í BYU og fékk inngöngu í Hjúkrunarfræðiháskólann. Vegna þess að hún er kær vinkona mín, þá höfum við haldið sambandi við hvor aðra. Ég elska Lydiu.

Það var verkefni mitt að biðja hana að flytja bæn, en ég hafði bara ekki komið mér að því að hringja. Þann 31. mars, bárust mér þessi textaskilaboð frá Lydiu:

„Góðan daginn, Johnson forseti!!!

Ég elska þig svo mikið!

Í nótt dreymdi mig þig. Ég var mjög kvíðin og stressuð yfir einhverju sem ég þurfti að gera og þú tókst eftir því. Þú settir handlegg þinn utan um mig, dróst mig að þér og hvíslaðir í eyra mér: ‚Þetta er allt í lagi, Lydia, þú getur þetta. Gerðu bara litlu hlutina.‘ Þín blíða hvatning og áminning um að gera það skref fyrir skref, er nákvæmlega það sem ég þurfti að heyra í dag. Ó, hve ég þurfti á Johnson forseta-faðmlagi að halda! Ég held að himneskur faðir sendi okkur stundum lítil skilaboð gegnum fólk sem við elskum og treystum, eins og þig.

„Ég vona að þér finnist englar bera þig upp í þessari viku. Hér er stórt knús fyrir þig, kæra vinkona.“

Ég sendi skilaboð til baka: „Ég hlakka til að segja þér hvers vegna þig dreymdi þennan draum!“

Ég hringdi í Lydiu um kvöldið til að spyrja hvort hún væri fús til að flytja bæn á þessari heimslægu trúarsamkomu ungs fullorðins fólks. Að sjálfsögðu sagði hún já – og hélt áfram að segja mér frá því sem hún hafði ekki sagt í textaskilaboðunum sínum. Það voru smáatriði sem henni fannst ekki skipta máli þegar hún skrifaði mér. Í draumnum sínum var hún kvíðin yfir því að flytja bæn frammi fyrir stórum hópi.

Ó, hve dásamleg er miskunn Drottins! Ég hafði frestað því að biðja Lydiu að biðjast fyrir af engri góðri ástæðu – nema þeirri að Lydia þurfti að dreyma draum sinn. Hljóta fullvissu um að Drottinn væri meðvitaður um hana og vildi að hún fengi þetta tækifæri.

Já, alheimurinn er gríðarstór. Trilljónir vetrarbrauta. Með milljörðum stjarna. Löndum, vötnum, plöntum, dýrum, sem hann hefur falið okkur ráðsmennsku yfir. Og Guð elskar öll sköpunarverk sín og þekkir þau með nafni. Að ykkur meðtöldum.

Frelsarinn greindi frá jarðneskri þjónustu sinni með því að segja að hann hafi verið sendur „til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, [lækna hina harmþrungnu], boða bandingjum lausn og blindum sýn, láta þjáða lausa“. Ef það var ætlunarverk hans og við erum lærisveinar hans, deilum við sama markmiði.

Þið, vinir mínir, eruð einstaklega undirbúin og forvígð til að aðstoða hann. Þið eruð synir og dætur Guðs. Hann þekkir ykkur. Þið eruð í sáttmálssambandi við hann. Þið munuð aldrei ganga til þrautar á miskunnsömu þolinmæði hans til ykkar. Þegar þið síðan haldið sáttmálana sem þið hafið gert við hann, munið þið blessuð með „græðandi og styrkjandi mætti hans“. Kraftur Guðs mun auka getu ykkar, auka hæfileikana sem þið hafið verið blessuð með, og gera ykkur kleift að sjá hann meðal hungraðra, þyrstra, yfirgefinna og sjúkra.

Sem lærisveinar hans, skulum við búa okkur undir síðari komu hans með því að iðka ráðsmennsku þess sem við höfum verið blessuð með, af trúmennsku og farsæld. Ég ber vitni um að þegar þið færið öðrum líkn Jesú Krists, munið þið blessuð með því að finna eigin líkn í honum.

Ég er fullviss um að Jesús Kristur lifir. Hann leiðir kirkju sína fyrir meðalgöngu lifandi spámanna sinna, sjáenda og opinberara. Ég er viss um að Russell M. Nelson er hans máttugi talsmaður á jörðinni á okkar tíma.

Verk og dýrð föður okkar á himnum og Jesú Krists er að koma okkur heim, hæfum og undir það búin að dvelja áfram í návist þeirra, þar sem enginn er hungraður, þyrstur, yfirgefinn, veikur eða lamaður – því þau hafa verið læknuð og gerð heil. Þið eruð mikilvægir samstarfsfélagar þeirra. Ég elska ykkur. Þeir elska ykkur.

Í hinu helga nafni frelsara okkar, Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Sjá „History of the Tabernacle,“ Newsroom, newsroom.ChurchofJesusChrist.org.

  2. Matteus 5:14.

  3. Kenning og sáttmálar 88:40.

  4. Sjá Russell M. Nelson, „Svarið er ávallt Jesú,“ aðalráðstefna, apríl 2023.

  5. Russell M. Nelson, „Svarið er alltaf Jesús Kristur.“

  6. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur,“ aðalráðstefna, október 2024.

  7. Russell M. Nelson, „Drottinn Jesús Kristur mun koma aftur;“ leturbreyting hér.

  8. Sjá Merriam-Webster.com Dictionary, „Stewardship.“

  9. Þýðing Josephs Smith, Matteus 25:11 (í Matteus 25:12, neðanmálstilvísun a).

  10. Sjá David A. Bednar, „Snúið til Drottins,” aðalráðstefna, október 2012. Öldungur Bednar útskýrði að við hefðum þá „einstaklingsbundu ábyrgð … að halda vitnisburðarlömpum okkar logandi og verða okkur úti um umfram birgðir af olíu trúskipta. Þessa dýrmætu olíu er hægt að fá dropa fyrir dropa ‒ ‚orð á orð ofan og setning á setning ofan‘ (2. Nefí 28:30), stöðugt og af þolinmæði. Engar styttri leiðir eru tiltækar; ekki er hægt að undirbúa sig í flýti á síðustu mínútu.”

  11. Kenning og sáttmálar 33:17; skáletrað hér.

  12. Russell M. Nelson, „Traust í návist Guðs,“ aðalráðstefna, apríl 2025.

  13. Höggmyndin Vitru meyjarnar fimm er eftir Ben Hammond.

  14. Matteus 25:21.

  15. Sjá Matteus 25:14–30.

  16. Russell M. Nelson forseti, „Traust í návist Guðs.“

  17. Matteus 25:35–36.

  18. Sjá Moróní 7:47–48.

  19. Russell M. Nelson forseti, „Traust í návist Guðs.“

  20. Sjá Merriam-Webster.com Dictionary, „Steward.“

  21. Gérald Caussé, „Ráðsmennska okkar á jörðu,“ aðalráðstefna, október 2022.

  22. Gérald Caussé, „Ráðsmennska okkar á jörðu.“

  23. Sjá „Elder Bednar Outlines 8 Principles About Spiritual Gifts and Christlike Attributes,“ Church News, 24. júní 2021, thechurchnews.com.

  24. Marvin J. Ashton, „There Are Many Gifts,“ Ensign, nóv. 1987, 20. Merkingin „að stilla“ var ekki nefnd í fyrrnefndri tilvitnun, en síðar var vísað til hennar af honum í þessari ræðu.

  25. Marvin J. Ashton, „There Are Many Gifts.“

  26. Almennt eignað Theodore Roosevelt forseta Bandaríkjanna.

  27. Sjá Kenning og sáttmálar 46:12.

  28. Sjá 1. Mósebók 1:28.

  29. Sjá 1. Mósebók 2:15.

  30. Jean Yellowhorse, „What Infertility Has Taught Me About Multiplying and Replenishing the Earth“ (greinin er eingöngu á rafrænu formi), YA Weekly, mars 2021, Gospel Library.

  31. Jeremía 17:7–8, Ný alþjóðleg útgáfa.

  32. Russell M. Nelson, „Sköpunin,“ Ensign, maí 2000, 86.

  33. Kenning og sáttmálar 104:14.

  34. Kenning og sáttmálar 104:17.

  35. Kenning og sáttmálar 104:18.

  36. Russell M. Nelson, „Sköpunin.“

  37. Sjá Matteus 25:35–40.

  38. Kenning og sáttmálar 81:5; sjá einnig Hebreabréfið 12:12.

  39. Sjá Janet Rae Saunders Pinson, „Kiribati Man Gives Service, Get Education and Returns Home to Start Food-Growing Charity,“ The Newsroom Blog, 3. júlí 2018, news-pacific.ChurchofJesusChrist.org.

  40. Sjá Caring for Those in Need: 2024 Summary, 20, assets.ChurchofJesuscChrist.org/55/ua/55uami2tnuduu6gvkl7wohkw4ztnec8irhlk7tkn/2024_wsrs_caring_report.pdf.

  41. Jesaja 58:10–11.

  42. Jóhannes 4:14.

  43. Sjá Jesaja 40:31.

  44. Sjá Mary Richards „The Impact of Kangaroo Mother Care on Maternal and Infant Health,“ Church News, 13. mars 2025, thechurchnews.com.

  45. Matteus 25:36.

  46. Matteus 25:40.

  47. Sjá Matteus 5:16.

  48. 2. Konungabók 5:13.

  49. Sjá Postulasagan 16:14–15.

  50. Sjá Trúaratriðin 1:13.

  51. Lúkas 4:18.

  52. Sjá Russell M. Nelson, „Hinn ævarandi sáttmáli,“ Líahóna, október 2022.

  53. Russell M. Nelson, „Musterið og ykkar andlega undirstaða,“ aðalráðstefna, október 2021.