Relief Society Devotionals
Aðgangur að krafti Guðs


12:50

Aðgangur að krafti Guðs

Heimslæg trúar- og vitnisburðarsamkoma Líknarfélagsins

Sunnudagur, 16. mars 2025

Kæru systur, við erum saman komin í samkomuhúsum um allan heim til að fagna Líknarfélaginu. Við höfum notið þeirrar blessunar að hlýða á okkar dásamlega aðalforsætisráð Líknarfélagsins. Þær veita mér alltaf innblástur. Þær hafa kristileg áhrif sem hvetja mig til að gera betur og verða betri. Þær töluðu til okkar frá Rauðsteinsbúðinni í Nauvoo, Illinois, í Bandaríkjunum, á þeim stað sem Líknarfélagið var stofnað. Ég bæti vitnisburði mínum við þeirra, systur. Guð elskar ykkur. Guð þekkir ykkur. Og þið eruð honum dýrmætar.

Saga Líknarfélagsins er hrífandi. Eins og Emma Smith, fyrsti Líknarfélagsforsetinn, sagði: „Við ætlum að gera nokkuð afar sérstakt.“ Eins og Johnson forseti, systir Dennis og systir Yee kenndu okkur áðan, þá var þessum samtökum ekki einungis ætlað að vera félagsklúbbur eða góðgerðarfélag. Tilgangur þeirra var og er enn guðlegur. Hann er sá að hjálpa börnum Guðs að snúa aftur í návist hans.

Eftir orð mín, munuð þið geta miðlað hverri annarri vitnisburði ykkar um þær blessanir sem eiga rætur í Jesú Kristi, kirkju hans og þessum guðlegu kvennasamtökum. Ég veit að Jesús Kristur er meðvitaður um aðstæður ykkar og þráir að blessa ykkur. Hann þarfnast líka áhrifa ykkar í kirkju sinni. Sú viðleitni ykkar að þjóna börnum Guðs gegnum Líknarfélagið er nauðsynleg.

Joseph Smith kenndi að síðari daga verk sáluhjálpar og upphafningar væri málstaður sem „væri ætlað að leiða til lykta tortímingu myrkravaldsins … og gera hjálpræði mannkyns að veruleika.“ Líknarfélagið og þið gegnið lykilhlutverki í þessu verki. Eins og Russell M. Nelson forseti kenndi: „Ríki Guðs er ekki, og getur ekki verið, fullkomið án kvenna sem gera helga sáttmála og halda þá, kvenna sem geta talað með krafti og valdi Guðs.“

Konur sem halda sáttmála sína, viðurkenna ekki aðeins þörfina fyrir kraft Guðs í lífi sínu, heldur hafa þær sérstakan aðgang að þeim krafti gegnum sáttmálana sem þær gera. Hve merkileg blessun það er að hafa „aðgang að guðlegum krafti – krafti sem nægir til að takast á við byrðar, hindranir og freistingar okkar tíma.“ Auðvitað eru skírnar- og musterissáttmálar ekki í sjálfu sér, einir og sér, uppspretta kraftar. Drottinn Jesús Kristur og himneskur faðir eru uppspretta alls sáttmálskraftar.

En verið vissar um. Kraftur Guðs er ekki formlaust kosmískt afl sem er óháð honum. Sá kraftur sem hann býður er ekki eins og töfralampi sem uppfyllir óskir eða helgigripur sem er sagður vera uppspretta krafts. Jafnvel klæði hins heilaga prestdæmis eru ekki kröftug. Nei, kraftur Guðs er nauðsynlega tengdur honum og tilgangi hans.

Eins og ávallt, veitir Jesús Kristur hið fullkomna fordæmi fyrir okkur. Allt vald „á himni og jörðu“ var gefið Jesú Kristi vegna þess að Jesús Kristur leyfði að vilji hans „[innbyrðist] í vilja föðurins.“ Í fortilverunni sagði frelsarinn: „Faðir, verði þinn vilji.“ Hann ítrekaði þetta í Getsemane og á krossinum. Eftir upprisu sína, endurtók hann þetta fyrir fólkinu í Mormónsbók og aftur snemma á þessum ráðstöfunartíma. Hann hlaut mátt frá Guði, því hann var forvígður til að hljóta hann og honum var treystandi til að nota þann kraft, eins og himneskur faðir sjálfur hefði gert.

Hugsið líka um Nefí, spámann Mormónsbókar, son Helamans. Þegar innsiglunarvaldinu var úthlutað til Nefís, sagði Jesús Kristur við hann: „Ég blessa þig að eilífu …að allt verði í samræmi við orð þitt.“ Ástæða þess að Kristur fól Nefí þennan alltumlykjandi kraft, var sú að Nefí hafði verið kallaður sem spámaður og vegna þess að hann hafði óþreytandi og óttalaust gert vilja Guðs. Hann leitaði tilgangs Guðs, ekki síns eigin. Hann gerði ekki og vildi ekki „biðja um það, sem er andstætt vilja [Guðs].“ Hann fékk aðgang að krafti frelsarans, því honum var treystandi fyrir því að nota þann kraft, eins og Jesús Kristur sjálfur myndi gera.

Þótt við keppum að því að auka kraft Guðs í lífi okkar, verður hann áfram kraftur hans. Sáttmálskrafturinn sem við höfum aðgang að býr ekki í okkur. Á sama hátt og það að hljóta „sérhverja blessun frá Guði … fyrir hlýðni við það lögmál, sem sú blessun er bundin,“ er aðgangur að krafti Guðs einnig háður „reglum réttlætisins.“ Kraft Guðs er ekki hægt að nota í eigingjörnum tilgangi eða til að stjórna öðrum. Þegar við reynum að beita krafti hans „hversu lítið sem óréttlætið er,“ verður kraftur hans „[dreginn]“ til baka og viðvörunin er að „það [mun] snúast [okkur] til fordæmingar.“ Þau sem ekki setja traust sitt á Guð, sem eru óstöðug í lærisveinshlutverki sínu eða sem herða hjörtu sín eða fótumtroða hinn heilaga Ísraels, geta ekki fengið aðgang að krafti hans. Til að rækta kraft Guðs í lífi okkar, ber okkur skylda til að reyna að vera réttlát, reyna að gera það sem rétt er og reyna að breyta samkvæmt vilja hans.

Að gera og halda marga sáttmála við Guð, færir ykkur nær honum, umbreytir ykkur og veitir ykkur aukinn aðgang að krafti hans. Sáttmálshaldandi konur eru „[dreifðar] um allt yfirborð jarðar“ og eru „[vopnaðar] réttlæti og krafti Guðs í mikilli dýrð.“ Hvar sem þið eruð, þá er þessi kraftur fyrir ykkur. Hann hjálpar ykkur að öðlast meiri hamingju, frið og hvíld. Hann hjálpar ykkur til að búa yfir meiri þekkingu, verða sterkari fylgjendur réttlætisins og verða réttmætir erfingjar í ríki Guðs. Þið hljótið kraft til að standast freistingar og iðrast þegar þið hrasið. Þið hljótið líka kraft sem styrkir ykkur til að standast betur raunir og sorgir.

Ég vil deila persónulegu dæmi um það hvernig sáttmálar musterisins leiddu til aukins friðar og fullvissu fyrir mig og eiginkonu mína, Ruth. Nokkrum árum eftir að við giftum okkur, veiktist Ruth alvarlega af eggjastokkakrabbameini. Hún þurfti tvær aðgerðir og lyfjameðferð. Eina barnið okkar, hin 16 mánaða gamla Ashley, hafði í raun aldrei verið aðskilin frá móður sinni og varð óvenjulega pirruð og geðvond. Hún neitaði að borða matinn sem ég hafði búið til, svo við „miðluðum málum“ og að lokum gaf ég henni ís og gosdrykki.

Ég var bara 28 ára og ég vissi ekki hvernig við Ashley myndum komast af án Ruth. Draumar um stærri fjölskyldu tóku enda, en það var minnsta áhyggjuefni okkar. Í fyrstu sjúkrahúsvist Ruth var ég niðurbrotinn og átti erfitt með að biðjast fyrir. Mér fannst bænir mínar ekki ná til himins.

Kvöldið sem Ruth kom heim úr fyrstu aðgerðinni sinni, bjuggum við okkur undir að biðjast fyrir, eins og við gerðum venjulega, áður en við fórum að sofa. Af heigulshætti bað ég Ruth að biðja. Ég mun aldrei gleyma fyrstu orðum bænar hennar. Hún sagði: „Himneski faðir, við þökkum þér fyrir prestdæmiskraftinn, sem gerir okkur kleift að vera saman að eilífu, hvað sem gerist.“

Með orðum hennar hurfu hindranirnar algjörlega sem ég skynjaði á milli Guðs og mín. Þegar bæn Ruth barst upp til himins, fór kenningin um eilífar fjölskyldur frá höfði mínu til hjartans. Áhyggjur okkar af framtíð okkar minnkuðu vegna þess að við höfðum gert musterissáttmála og verið innsigluð í húsi Drottins. Kraftur frá Guði veitti okkur frið í hjörtum okkar. Þrjátíu og sex árum síðar setti Nelson forseti fram orð sem ég tengi við. Hann kenndi: „Þegar þú teygir þig eftir krafti Drottins í lífi þínu með sama afli og drukknandi manneskja gerir þegar hún berst við að ná lofti, þá munið þið öðlast kraft frá Jesú Kristi.“ Þannig baðst Ruth fyrir. Og sá kraftur kom.

Á svipaðan hátt mun Guð hjálpa ykkur að skilja kraft og frið musterisgjafarinnar.

Musterisgjöfin mun hjálpa ykkur að læknast, ef þið hafið verið særðar, brotnar eða kramdar á einhvern hátt. Þið getið ákallað krafta himins til að hljóta persónulega opinberun og skilja kenningu Krists. Kraftur Guðs mun hjálpa ykkur að vernda, verja og styrkja aðra. Ég ber vitni með Nelson forseta um að „[Jesús Kristur] getur veitt þann kraft sem [þið] þurfið í lífi [ykkar] og þegar [þið] beitið krafti hans í lífi [ykkar], munu bæði [frelsarinn] og [þið] fagna.“

Já, systur, þið eruð að gera nokkuð einstakt og þið getið upplifað nokkuð einstakt. Þakka ykkur fyrir trú ykkar, styrk ykkar, fyrir getu ykkar til að leiða, fyrir visku ykkar, fyrir fúsleika ykkar og getu til að gera og halda sáttmála við Guð. Þið færið sjálfum ykkur, fjölskyldu ykkar, kirkjunni, samfélagi ykkar og heiminum blessanir. Þið hafið kraft Guðs í lífi ykkar til að hjálpa ykkur að vera góðar og gera gott. Hann reiðir sig á ykkur. Kirkja hans reiðir sig á ykkur. Megi Guð blessi ykkur í áframhaldandi lærisveinshlutverki ykkar.

Guð lifir. Jesús er Kristur, frelsari ykkar og minn. Hann er ykkar góði, vitri, himneski vinur. Hann hefur endurreist kirkju sína á jörðu. Þetta veit ég Í nafni Jesú Krists, amen.