Doctrine and Covenants 2025
Raddir endurreisnarinnar: Emma Hale Smith


„Raddir endurreisnarinnar: Emma Hale Smith,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Emma Hale Smith,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

táknmynd radda endurreisnarinnar

Raddir endurreisnarinnar

Emma Hale Smith

Emma Smith (Emma Hale Smith)

Orð Drottins til Emmu Smith sem skráð eru í Kenningu og sáttmála 25 opinbera hvað honum fannst um hana og það sem hún gat lagt af mörkum til verks hans. Hvernig kona var Emma? Hvað vitum við um persónuleika hennar, sambönd hennar, styrk hennar? Ein leið til að þekkja þessa „[kjörnu konu]“ (Kenning og sáttmálar 25:3) er að lesa orð þeirra sem þekktu hana persónulega.

Joseph Smith yngri, eiginmaður hennar

One drawing in pencil, charcoal and ink on paper.  A left profile, head/shoulders portrait of Joseph Smith; drawn basically in charcoal, highlighted with white paint and black ink.  titled at bottom "Jospeh Smith the Prophet."  Signed at left shoulder "Drawn from the most authentic sources by Dan Weggeland"  A drawn border surrounds it.  No date apparent.

„Þegar ég tók í hönd minnar ástkæru Emmu þetta kvöld ‒ eiginkonu minnar, já, allt frá yngri árum, og yndi hjarta míns, gagntók mig ólýsanleg gleði og hjartans fögnuður. Margt var það sem í hugann kom þegar mér varð um stund hugsað til hinna mörgu lífsins stunda sem við höfðum upplifað saman, áreynslunnar og erfiðleikanna, sorgarinnar og sársaukans, sem og gleðinnar og huggunarinnar er á vegi okkar varð og krýndi heimili okkar. Ó, hve minningarbrotin fylltu huga minn þá stund. Aftur er hún hún hjá mér, jafnvel mitt í mestu erfiðleikum, mín óttalausa, staðfasta og óhagganlega, óbreytanlega, ástúðlega Emma.“

Lucy Mack Smith, tengdamóðir hennar

„Hún var ung á þeim tíma og þar sem hún var metnaðarfull að eðlisfari, helgaði hún sig verki Drottins af öllu hjarta og hafði engin áhugamál nema kirkjuna og málstað sannleikans. Hún gerði vel hvaðeina sem hún gerði og spurði ekki hinnar eigingjörnu spurningar: ‚Verður ávinningur minn meiri en einhvers annars?‘ Þegar öldungar voru sendir burtu til boðunar, var hún sú fyrsta sem bauð fram þjónustu og aðstoð við að fata þá upp fyrir ferð þeirra, án þess að hugsa um eigin skort.“

Joseph Smith eldri, tengdafaðir hennar

Patríarkablessun Emmu, sem Joseph Smith eldri, er þjónaði sem patríarki kirkjunnar, veitti henni:

„Emma, tengdadóttir mín, þú nýtur blessunar Drottins fyrir trúfesti þína og staðfestu. Þú munt blessuð með eiginmanni þínum og fagna í þeirri dýrð sem honum mun hlotnast. Sál þín hefur verið hrjáð sökum ranglætis manna, sem reyna að tortíma félaga þínum og af öllum mætti hefur þú beðist fyrir um björgun hans. Fagna, því Drottinn Guð þinn hefur heyrt ákall þitt.

Þú hefur syrgt hörku föðurhúsa þinna og þráð sáluhjálp þeirra. Drottinn mun virða ákall þitt og með dómum sínum mun hann koma því til leiðar að sum þeirra sjái mistök sín og iðrist synda sinna; en það mun verða fyrir hörmungar sem þau frelsast. Þú munt sjá marga daga; já, Drottinn mun hlífa þér uns þú ert sátt orðin, því þú munt sjá frelsara þinn. Þú munt gleðjast í hinu mikla verki Drottins og enginn mun ræna þig gleði þinni.

Þú skalt ætíð minnast hins mikla lítillætis Guðs þíns, fyrir að heimila þér að vera samferða syni mínum er engill fékk honum í hendur heimildina um Nefítana. Þú hefur upplifað mikla sorg, því Drottinn hefur tekið frá þér þrjú barna þinna. Þar er ekki við þig að sakast, því hann þekkir einlæga þrá þína til að ala upp börn, svo að nafn sonar míns megi blessað verða. Sjá nú, ég segi þér að svo segir Drottinn, ef þú vilt trúa, munt þú áfram verða blessuð hvað þetta varðar og þú munt ala af þér fleiri börn, sál þinni til ánægju og gleði, og vinum þínum til fögnuðar.

Þú munt blessuð með skilningi og hafa mátt til að fræða kynsystur þínar. Kenndu fjölskyldu þinni réttlæti og litlu börnum þínum hætti lífsins og heilagir englar munu vaka yfir þér, og þú munt frelsast í ríki Guðs, jafnvel það. Amen.“

Emma Smith og börn

Emma Smith með börnum sínum. Tími hláturs, eftir Liz Lemon Swindle