Doctrine and Covenants 2025
Raddir endurreisnarinnar: Fjölskylda Josephs Smith


„Raddir endurreisnarinnar: Fjölskylda Josephs Smith,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Fjölskylda Josephs Smith,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

raddir endurreisnarinnar

Raddir endurreisnarinnar

Fjölskylda Josephs Smith

Við verðum öll fyrir miklum áhrifum af fjölskyldulífi okkar og Joseph Smith var þar engin undantekning. Trúariðkun og trúarsannfæring foreldra hans varð til að gróðursetja sáðkornið sem gerði endurreisnina mögulega. Í dagbók Josephs er þessi færsla lofsemdar: „Orð og tunga ná ekki að tjá þakkarskuld mína við Guð, fyrir að hafa séð mér fyrir svo heiðvirðum foreldrum.“

Eftirfarandi tilvitnanir í móður hans, Lucy Mack Smith; bróður hans, William Smith; og spámanninn sjálfan gefa hugmynd um hin trúarlegu áhrif á heimili Smith-fjölskyldunnar.

mynd af fjölskyldu Josephs Smith eldri

Fjölskylda Josephs Smith, eftir Dan Baxter

Lucy Mack Smith

A painting depicting Lucy Mack Smith, mother of Joseph Smith.

„[Árið 1802] varð ég veik. … Ég sagði við mig sjálfa að ég væri ekki tilbúin til að deyja, því ég þekkti ekki vegu Krists og mér fyndist sem djúp og mikil gjá væri á milli mín og Krists, sem ég vogaði mér ekki að reyna að fara yfir. …

Ég leit til Drottins og grátbað Drottin um að þyrma lífi mínu, svo ég gæti alið upp börn mín og hughreyst hjarta eiginmanns míns. Þannig lá ég alla nóttina. … Ég lofaði Guði, [að] ef hann leyfði mér að lifa, myndi ég keppa að þeirri trú sem gerði mér kleift að þjóna honum réttilega, hvort sem hún væri í Biblíunni eða fyndist annarsstaðar, jafnvel þótt hún hlytist frá himni með bæn og trú. Loks talaði rödd til mín og sagði: ,Leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig.‘ …

Frá þessari stundu hlaut ég smám saman styrk að nýju. Ég sagði fátt um trúmál, þótt það ætti hug minn allan og ég hugsaði mér að leita af kostgæfni að einhverjum guðhræddum einstaklingi um leið og ég gæti, sem þekkti vegi Guðs, til að fræða mig um það sem himins væri.“

William Smith

Portrait of William Smith in latter years of his life.

„Móðir mín, sem var afar guðhrædd kona og lét sér afar annt um velferð barna sinna, bæði hér og hér eftir, hagnýtti sér allar þær aðferðir sem móðurást hennar knúði fram, til að fá okkur til að leita sáluhjálpar eða (eins og það var þá kallað) ,ná sér í trú.‘ Hún hafði sigur við að fá okkur á samkomur og næstum allir í fjölskyldunni urðu áhugasamir um efnið og sannleiksleitendur.“

„Við höfðum alltaf fjölskyldubænir svo langt aftur sem ég man. Ég man vel eftir því að faðir minn var vanur að hafa gleraugun sín í vestisvasanum … og þegar við strákarnir sáum hann þreifa eftir gleraugunum, vissum við að það var merki um að búa sig undir bæn, og ef við tókum ekki eftir því, sagði móðir okkar: ,William,‘ eða nafn þess sem ekki var með á nótunum, ,hafðu þig til fyrir bænina.‘ Að bæn lokinni, var söngur sunginn.“

opnar ritningar

Joseph eldri og Lucy Smith kenndu börnum sínum að læra ritningarnar.

Joseph Smith

One drawing in pencil, charcoal and ink on paper.  A left profile, head/shoulders portrait of Joseph Smith; drawn basically in charcoal, highlighted with white paint and black ink.  titled at bottom "Jospeh Smith the Prophet."  Signed at left shoulder "Drawn from the most authentic sources by Dan Weggeland"  A drawn border surrounds it.  No date apparent.

„Ég segi núna að [faðir minn] gerði aldrei neitt illt af sér, sem segja mætti að sé smásálarlegt, í þessu lífi, svo best sem ég veit. Ég elskaði föður minn og minningu hans; og minningin um göfug verk hans hvílir þungt á huga mínum; og mörg hans ljúfu og föðurlegu orð til mín eru skrifuð á hjartaspjöld mín. Þær hugsanir eru mér helgar sem ég hef varðveitt um lífsveg hans, sem hafa sprottið upp í hug minn og fest þar rætur, með því að fylgjast með honum frá fæðingu. … Móðir mín er líka ein göfugasta og besta kona allra.“