„Sáttmálar, kraftur og fyrirheit,“ Líahóna, október 2025.
Mánaðarlegur boðskapur Líahóna, október 2025
Sáttmálar, kraftur og loforð
Musterið er kjarni þess kraftar og þeirrar verndar sem hinum trúföstu er lofað fyrir síðari komu Drottins Jesú Krists.
Myndskreyting af Joseph Smith eftir Dan Burr
Í maí 1833 ferðuðust, Asahel Perry, forfaðir minn í fjórða ættlið, ásamt nokkrum vinum sínum frá norðurhluta New York til Kirtland, Ohio. Þeir voru ekki meðlimir hinnar nýendurreistu kirkju, en vildu hitta spámanninn Joseph Smith. Þeir komu rétt í tæka tíð til að fara á fyrsta samráðsfundinn sem haldinn var til að ræða byggingu Kirtland-musterisins.
Eftir að fundurinn hafði verið settur, kynnti spámaðurinn verkefnið um byggingu musterisins. Hann hvatti síðan viðstadda til að láta í ljós tilfinningar sínar varðandi svo stórt verkefni. Flestir svöruðu því til að kirkjan væri of fátæk til að takast á við slíkt verkefni. Þeir lögðu til byggingu minni, ódýrari byggingar.
Meðan á samræðunum stóð, beygðu Perry og vinir hans sig niður, tóku upp peningana sína og lögðu þá saman. Áttu þeir nóg til að greiða fyrir heimferðina og leggja sitt af mörkum til byggingar musterisins? Fáeinum mínútum síðar kom forfaðir minn til Joseph Smith, dró upp fimm dala gullpening og rétti spámanninum. (Slík mynt í dag væri hundruð dollara virði!)
Joseph stóð frammi fyrir ráðinu og hélt myntpeningnum á lofti. Hann sagði síðan af krafti að „verkið væri hafið og hús [Drottins] yrði reist samkvæmt þeirri fyrirmynd sem Drottinn Jesús Kristur hafði sýnt.“
Perry-fjölskyldan gekk fljótlega í kirkjuna í Kirtland, meðtók musterisblessanir sínar nokkrum árum síðar í Nauvoo-musterinu og fór síðar yfir slétturnar til Utah.
Þegar Kirtland-musterið var vígt árið 1836, var það of lítið til að rúma alla Síðari daga heilaga sem vildu vera við vígslu þess. Eftir því sem kirkjan stækkaði, fjölgaði hinum heilögu sem þurftu að sækja samkomur utandyra. James E. Faust forseti (1920–2007), sem þjónaði sem stikuforseti minn þegar ég var ungur maður og lærifaðir þegar ég var kallaður sem aðalvaldhafi kirkjunnar árið 2007, sagði þetta um annað musteri kirkjunnar:
„Áður en byggingu Nauvoo-musterisins lauk árið 1846, hittust hinir heilögu fyrir utan, oft nærri musterinu, til að hlýða á Joseph og aðra kirkjuleiðtoga tala. Stundum sóttu þúsundir þessa fundi“ – stundum jafnvel í slæmu veðri.
„Eins og [öldungur] George A. Smith sagði á sinn gamansama hátt: ,Á dögum spámannsins Josephs … blómstraði [kirkjan] best utan dyra.’“
Við erum þakklát fyrir að á okkar dögum blómstrar Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu bæði utan og innan dyra og um allan heim. Sú blómstrun felur í sér byggingu mustera á áður óþekktum hraða „að þeirri fyrirmynd sem kynnt var“ – sem ætíð hefur falið í sér blessanir, helgun, trú og fórnir.
Dýrðlegt ljós – Kirtland musterið, eftir Glen S. Hopkinson, óheimilt að afrita
Af hverju svona mörg musteri?
„Forverar okkar hafa spáð því að musterin muni þekja Norður- og Suður-Ameríku, Kyrrahafseyjar, Evrópu og fleiri staði,“ sagði Eza Taft Benson forseti (1899–1994) fyrir nokkrum áratugum. „Ef þetta endurlausnarverk á að vera af þeirri stærðargráðu sem það verður að vera, verður þörf fyrir hundruð mustera.“
Russell M. Nelson forseti sagði að við byggjum musteri á fordæmislausum hraða í dag „vegna þess að Drottinn hefur boðið okkur að gera það. Blessanir musterisins hjálpa við samansöfnun Ísraels beggja vegna hulunnar. Þessar blessanir hjálpa líka við að undirbúa fólk sem mun hjálpa við að búa heiminn undir síðari komu Drottins!“
Í vígslubæn Kirtland-musterisins, bað Joseph Smith þess „að allir þeir, sem ganga inn fyrir þröskuld húss Drottins megi finna kraft þinn. …
„Og vér biðjum þig, heilagi faðir, að þjónar þínir megi fara út úr þessi húsi brynjaðir kraftir þínum, og að nafn þitt hvíli á þeim og dýrð þín umljúki þá og englar þínir vaki yfir þeim“ (Kenning og sáttmálar 109:13, 22; skáletrað hér; sjá einnig vers 23).
Þegar ég les þessi vers, hugsa ég um sýn Nefís á síðari dögum. Takið eftir sviðuðu orðalagi: „Og svo bar við, að ég, Nefí, sá vald Guðslambsins. Það féll yfir hina heilögu í kirkju lambsins og yfir sáttmálsþjóð Drottins, sem dreift var um allt yfirborð jarðar. Og þeir voru vopnaðir réttlæti og krafti Guði í mikilli dýrð“ (1. Nefí 14:14; skáletrað hér).
Ég trúi að musteri síðari daga gegni mikilvægu hlutverki við uppfyllingu spádóms Nefís og að þau skipti sköpum fyrir vernd og kraft hinna trúföstu fyrir síðari komuna.
Fyrir nokkrum árum, þegar ég þjónaði sem biskup háskóladeildar, hreifst ég sérstaklega af stúlku í deildinni minni. Hún hrífur mig enn. Þið þekkið hana sem Emily Belle Freeman, aðalforseta Stúlknafélagsins. Í nýlegri aðalráðstefnuræðu kenndi hún að Jesús Kristur lyfti okkur upp á hærra andlegt plan fyrir tilstilli musterisins.
„Í hvert sinn sem ég stíg inn fyrir hús hans, upplifi ég dýpra sáttmálssamband við hann,“ sagði Freeman forseti. „Ég er helguð af anda hans, gædd krafti hans og sett í það hlutverk að byggja ríki hans.“
Fyrirheitinn kraftur
Nelson forseti hefur oft talað um þann kraft Jesú Krists sem stendur til boða með musterissáttmálum. „Að gangast sjálf undir ok með frelsaranum, þýðir að þið hafið aðgang að styrkhans og endurleysandi krafti,“ sagð hann. Nelson forseti hefur einnig kennt:
„Þegar við höldum musterissáttmála okkar, öðlumst við aukinn aðgang að styrkjandi mætti Drottins. Í musterinu hljótum við vernd frá áreiti heimsins.“
„Hinar nauðsynlegu helgiathafnir [frelsarans] binda okkur honum með helgum prestdæmissáttmálum. Þegar við síðan höldum sáttmála okkar, gæðir hann okkur græðandi og styrkjandi mætti sínum. Ó, hve við þörfnumst máttar hans á komandi dögum.“
„Sá siðferðilegi og andlegi kraftur sem fólk okkar þarfnast, einmitt nú og fyrir komandi daga, er kraftur Guðs föðurins og sonar hans, Jesú Krists. Við öðlumst aðgang að krafti þeirra með því að gera og halda sáttmála við þá.“
Himneskur máttur skiptir máli, bræður og systur, því við búum í mjög ranglátum heimi. Án þessa máttar, fáum við ekki „staðist komudag hans“ eða „staðið þegar hann birtist“ (Malakí 3:2). Við vitum ekki hvenær sá dagur verður, en sendiboði hans hefur þegar verið sendur til að „greiða veginn“ fyrir komu hans (Malakí 3:1). Á sama tíma, siglir heimurinn ekki rólega fram til þess dags.
Við þurfum kraftinn sem hinum trúföstu er lofað, til að hjálpa okkur:
-
Látum Guð ríkja í lífi okkar.
-
Iðrumst og komum nær Drottni.
-
Blessum, huggum, leiðum og þjónum.
-
„Stöndumst betur raunir okkar, freistingar og sorgir“ (sjá Mósía 3:19).
-
Finnum frið og gleði í Kristi er við göngum sáttmálsveginn.
-
Búum okkur undir „dag brennunnar“ og „hörmungar hinna ranglátu“ (Kenning og sáttmálar 109:46).
-
Vinnum verk Drottins fyrir síðari komu hans.
Ljósmynd af hvelfingu Tucson-musterisins í Arisóna, eftir James Whitney Young
Verðir hjálpræðis
Verk himnesks föður er „að gjöra ódauðleika og eilíft líf mannsins að veruleika“ (HDP Móse 1:39). Hvert musteri er sem jarðneskur vörður sáluhjálparáætlunar Guðs og vísar til miðlægs hlutverks frelsarans í því verki og þeirri dýrð.
Brynjuð krafti hans, munu allir karlar og konur sem halda sáttmála sína – gift eða ógift – og halda musterissáttmála, staðfastlega hljóta blessun í þessu lífi og komandi lífi.
Nelson forseti hefur lofað: „Endapunktur þess erfiðis sem hvert okkar stefnir að er að hljóta kraft í húsi Drottins, innsiglast sem fjölskyldur, að vera trúföst sáttmálunum sem við gerðum í musterinu, sem gera okkur hæf fyrir æðstu gjöf Guðs – sem er hið eilífa líf. Helgiathafnir musterisins og sáttmálarnir sem þið gerið þar, eru lykilinn að því að styrkja eigið líf, hjónaband ykkar og fjölskyldu og gera ykkur hæf til að standast árásir óvinarins. Tilbeiðsla ykkar í musterinu og þjónusta þar í þágu áa ykkar, mun blessa ykkur með fleiri persónulegum opinberunum og auknum friði og veita ykkur styrk til að halda ykkur á sáttmálsveginum.“
Sem postuli Drottins Jesú Krists, ber ég vitni um að þetta er sannleikur.
© 2025 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Liahona Message, October 2025. Icelandic. 19611 190