2025
„Ég mun gjöra þá heila“
Febrúar 2025


„Ég mun gjöra þá heila,“ Líahóna, feb. 2025.

Mánaðarlegur boðskapur Líahóna, febrúar 2025

Ég mun gjöra þá heila

Læknandi þjónusta frelsarans er guðlegt forspil og loforð um varanlega líkamlega og tilfinningalega lækningu sem hvert okkar mun öðlast í upprisunni.

Ljósmynd úr Biblíumyndbandi af Jesú að hugga konu

Ég man enn greinilega eftir sumum af löngu flugferðunum sem ég flaug sem atvinnuflugmaður.

Í einni þeirra fór ég á loft í Þýskalandi kl. 11:00 að morgni og lenti í Kaliforníu kl 13:00 sama dag. Ef maður ber saman staðartíma brottfarar og áfangastaðar, þá gæti virst sem að flugið yfir Atlantshafið og meginland Norður Ameríku hafi einungis tekið tvo klukkutíma. Boeing 747 flaug hratt en ekki það hratt! Í raun tók það okkur 11 klukkutíma, eftir vindstöðunni, að ferðast þessa 9000 km.

Vegna þess að við vorum að fljúga vestur, þá settist sólin aldrei í fluginu. Við nutum dagsbirtu alla leiðina frá Þýskalandi til Kaliforníu.

sólsetur ofar skýjum

Það var hins vegar allt önnur saga á leiðinni til baka til Þýskalands. Jafnvel þó að við færum í loftið fljótlega eftir hádegi, þá nálgaðist sólsetrið hraðar en venjulega í fluginu vestur og áður en við vissum af var komin nótt.

Í þessum löngu flugferðum var hugur minn oft uppfullur af lotningu er ég hugleiddi fegurð þessarar jarðar og skipulag sköpunar Guðs. Jafnvel þegar við flugum í næturflugi, í algjöru myrkri, þá vissi ég fyrir víst að sólin myndi rísa á ný, að skýr birtan myndi snúa aftur og færa hlýju og líf inn í nýjan dag áður en ferð okkar lyki. Aðstæðurnar í flugi mínu gátu virst sem að sólin væri að setjast hægar eða hraðar en ég vissi að sólin væri stöðug, staðföst og áreiðanleg á himninum.

tungl ofar skýjum

Ég hef sömu tilfinningar gagnvart Guði. Vegna þess að ég hef rótfasta sannfæringu um visku Guðs og tilgang allrar sköpunar hans, get ég fundið gleðifyllta von og varanlegan frið þegar ég hugsa um jarðvist okkar. Við erum börn Guðs. Hann elskar okkur. Hann þekkir aðstæður okkar. Hann er reiðubúinn til að hjálpa. Þessi sannleikur breytist ekki, jafnvel þegar annað í kringum okkur virðist óstöðugt og óútreiknanlegt.

Við upplifum öll myrkar stundir, sorg og óvissu sem ógnar friði okkar. Hve þakklátur ég er fyrir hina áreiðanlegu og sönnu uppsprettu sannleika og ljóss (sjá Kenning og sáttmálar 88:6–11). Jesús Kristur er ljós og líf heimsins. Sökum hans og friðþægingarfórnar hans eigum við von fyrir framtíðina, aðgang að guðlegu ljósi til að lýsa upp myrka daga ferðar okkar og loforðið um hinn algera sigur yfir synd og dauða.

„Svo elskar hann heiminn“

Jesús Kristur var eini fullkomni maðurinn til að ganga á jörðunni. Vegna hins fullkomna lífs hans, bar hann enga réttlætisskuld. Af elsku til okkar, gaf hann upp sitt eigið líf fyrir hvert og eitt okkar, sem einstaklinga og fyrir öll börn Guðs í heild, til að opna dyrnar að ódauðleika og eilífu lífi.

Þrátt fyrir það sem Satan myndi vilja að við tryðum, þá er ekkert okkar utan seilingar fyrir frelsarann til að bjarga. Engu okkar er vísað burt frá náð fyrirgefningar. Ekkert okkar er handan þess að finna „elskandi [arma] hans umlykja [okkur] að eilífu“ (2. Nefí 1:15).

Þessi mesta gjöf allra gjafa kemur frá virkjandi og endurleysandi krafti friðþægingar Jesú Krists. Vegna þess að frelsarinn þjáðist í Getsemane og á Golgata veit hann hvernig bjarga á okkur frá og hjálpa okkur í gegnum alla veikleika okkar (sjá Alma 7:12).

„Hann gjörir aðeins það, sem heiminum er til góðs, því að svo elskar hann heiminn, að hann gefur sitt eigið líf til að draga alla menn til sín“ (2. Nefí 26:24).

Jesús Kristur er styrkur okkar!

Hann réttir fram höndina.

Hann endurreisir.

Hann bjargar.

„Þegar frelsarinn friðþægði fyrir alla menn, gerði hann þeim sem fylgja honum mögulegt að hafa aðgang að mætti lækningar, styrkingar og endurlausnar.“ sagði Russell M. Nelson forseti.

Sá máttur er ávallt þar, eins og sólin. Hann flöktir aldrei. Valið um að fylgja í fótspor frelsarans er eins og að ganga út úr skuggunum og inn í sólarljósið, þar sem við getum meðtekið blessanir ljóss Guðs, hlýju og kærleika. Ég veit að dag einn munum við horfa tilbaka og vera fyllt þakklæti fyrir að hafa tekið ákvarðanir af eilífu mikilvægi um að treysta Jesú Kristi og guðlegri elsku hans til að lyfta okkur og styrkja.

„[Snúið] til mín“

Mormónsbók segir frá fólki sem dvaldi í kolniðamyrkri í þrjá daga eftir krossfestingu frelsarans. Hið áþreifanlega myrkur sem umlukti það gæti táknað hið andlega myrkur sem við öll upplifum vegna syndar. Þá heyrði fólkið rödd Krists bjóða þeim út úr myrkrinu og inn í ljós hans:

„Viljið þér nú ekki snúa til mín og iðrast synda yðar og snúast til trúar, svo að ég megi gjöra yður heila?“ (3. Nefí 9:13).

„Þér skuluð bjóða mér sem fórn sundurkramið hjarta og sáriðrandi anda“ (3. Nefí 9:20).

„[Iðrist] og [snúið] til mín af einlægu hjarta“ (3. Nefí 10:6).

Frelsarinn réttir fram sama boð til okkar í dag þegar við finnum okkur týnd í myrkrinu. Á sama hátt og hver sólarupprás markar upphaf nýs dag, þá fáum við bjart nýtt upphaf í hvert sinn sem við iðrumst.

Það þýðir þó ekki að þetta sé auðvelt. Iðrun kallar á breytingu og breyting gerist ekki hratt. Þó hún sé gleðileg þá er hún „hryggð sem er Guði að skapi“(2. Korintubréf 7:10). Hún krefst þess að við viðurkennum eigin misgjörðir og biðjum Guð fyrirgefningar og þá sem við kunnum að hafa skaðað. Ofar öllu krefst það þess að við leitum „[anda] Drottins almáttugs“ svo að við getum upplifað „breytingu á … hjörtum okkar, að við hneigjumst ekki lengur til illra verka, heldur stöðugt til góðra verka“ (Mósía 5:2).

Slík breyting er löng vegferð, en um leið og þið takið fyrsta skrefið, hefst „dagur hjálpræðis ykkar“ og „þá mun hin mikla endurlausnaráætlun samstundis ná til ykkar“ (Alma 34:31).

Með einlægri iðrun okkar, lofar Guð að fyrirgefa syndir okkar og minnast þeirra ekki lengur. Þegar við eigum erfitt með að gleyma syndum okkar, skulum við reyna að treysta á loforð Drottins um að fyrirgefa og læra að fyrirgefa öðrum og okkur sjálfum.

„Andi okkar skaðast þegar við gerum mistök og drýgjum syndir,“ kenndi Boyd K. Packer forseti (1924–2015). Andstætt og á við um efnislíkama okkar, þá verða engin ör eftir þegar iðrun er lokið, sökum friðþægingar Jesú Krists.“

Málverk af Jesú að lækna blindan mann

Læknandi blinda manninn, eftir Carl Heinrich Bloch

„Færið þá hingað“

Frelsarinn er hinn mikli græðari. Einn fallegasta vitnisburðinn um lækningamátt hans er að finna í Mormónsbók, í frásögninni um persónulega þjónustu hans í Ameríku til forna:

„Eru nokkrir sjúkir yðar á meðal?“ spurði hann. „Færið þá hingað. Eru einhverjir lamaðir, blindir, haltir, særðir, holdsveikir, tærðir, daufir eða þjáðir á einhvern hátt? Færið þá hingað, og ég mun gjöra þá heila, því að ég hef samúð með yður. Hjarta mitt er fullt miskunnar. …

Og svo bar við, að þegar hann hafði mælt þetta, leiddi allur mannfjöldinn sem einn fram sína sjúku og þjáðu, lömuðu og blindu, mállausu og alla þá, sem þjáðir voru á einhvern hátt. Og hann læknaði þá, hvern og einn, er þeir voru leiddir fyrir hann“ (3. Nefí 17:7,9).

Í hvert sinn sem frelsarinn læknaði einhverja sem voru „þjáðir á einhvern hátt“ bæði fyrir og eftir upprisu sína, var það vitnisburður um endanlegan mátt hans til að lækna sálir okkar. Hver undursamleg lækning var aðeins forspil og loforð um varanlega líkamlega og tilfinningalega lækningu sem hvert okkar mun hljóta í upprisunni, sem er „óviðjafnanlegur kraftur Drottins til að lækna.“

Það er staðreynd að bænum okkar um lækningu í þessu lífi er ekki alltaf svarað á þann hátt sem við vonumst til, en þær eru aldrei hunsaðar. Tími lækningar mun koma, á sama hátt og myrkur næturinnar víkur ávallt – á réttum tíma – fyrir hinni dýrðlegu sólarupprás.

Eins og Nelson forseti hefur vitnað um: „Trú okkar er aldrei vanmetin. Ég veit að sjónarsvið alviturs himnesks föður er miklu víðara en okkar. Þótt við þekkjum okkar jarðnesku vandamál og sársauka, þá þekkir hann eilífa framþróun okkar og möguleika. Ef við biðjumst fyrir um að þekkja hann vel og leggjum okkur fram við það, með þolinmæði og af hugrekki, getur himnesk lækning átt sér stað á hans eigin hátt og tíma.“

Nýlega settum ég og eiginkona mín, Harriet, fram í bænum okkar, sérstaka von og beiðnir fyrir hönd ástvina okkar. Við báðum fyrir því að heilbrigðisteymi þeirra fengi sérstaka hæfni til að lækna sjúkdóma þeirra. Við vorum hvött til að bæta því við, að jafnvel þótt lækning þeirra eða bati yrði ekki tafarlaus, gæti lækningarmáttur frelsarans fært þeim huggun og frið. Lækningaráhrif endurlausnarkraftar frelsarans geta haft jafnvel enn meiri áhrif á tilfinningalega, andlega og jafnvel líkamlega heilsu okkar, en nokkur jarðnesk lækning sem við kynnum að fá. Jesús Kristur er græðarinn í þessu lífi og í eilífðinni.

Bræður mínir og systur, kæru vinir, ég ber vitni um að miskunn frelsara okkar nægir til að græða sár ykkar, hreinsa ykkur af synd, styrkja ykkur fyrir komandi erfiðleika og blessa ykkur með von, visku og friði hans. Kraftur hans er ávallt til staðar – stöðugur og áreiðanlegur – jafnvel þegar okkur finnst við um tíma fjarlæg kærleika hans, ljósi og hlýju.

Ég bið þess að við missum aldrei þá tilfinningu lotningar og djúpstæðs þakklætis fyrir allt það sem Jesús Kristur hefur gert fyrir okkur. Vitið að þið eruð elskuð fullkomlega og minnist þess sem ykkur hefur verið lofað um eilífð.

„Megi þá Guð gefa, að byrðar ykkar verði léttar fyrir gleðina yfir son hans,“ Jesú Krist (Alma 33:23).

Heimildir

  1. Russell M. Nelson, „Máttur andlegs skriðþunga,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

  2. Sjá Dieter F. Uchtdorf, „Þú getur það núna!,“ aðalráðstefna, október 2013.

  3. Boyd K. Packer, „Sæluáætlunin,“ aðalráðstefna, apríl 2015.

  4. Russell M. Nelson, „Jesús Kristur – hinn mikli græðari,“ aðalráðstefna, október 2005.

  5. Russell M. Nelson, „Jesús Kristur – hinn mikli græðari.“