2024
Á bak við tjöldin: Sviðsetning Ráðstefnuhallarinnar
Nóvember 2024


„Á bak við tjöldin: Sviðsetning Ráðstefnuhallarinnar,“ Líahóna, maí 2024.

Á bak við tjöldin á aðalráðstefnu: Sviðsetning Ráðstefnuhallarinnar

Þegar við sjáum fyrir okkur aðalráðstefnu, sjáum við líklega fyrir okkur ræðupúltið og sæti kirkjuleiðtoganna fyrir framan orgelpípurnar. Sviðsetning Ráðstefnuhallarinnar lítur þó ekki þannig út allt árið um kring.

Í Ráðstefnuhöllinni eru haldnir margir viðburðir sem krefjast ólíkrar uppsetningar og það tekur marga klukkutíma að undirbúa sviðið (opinberlega nefnt „rostrum“) fyrir aðalráðstefnu. Um tíu manna teymi ver u.þ.b. þremur vikum í að gera sviðið, anddyrin og önnur hýbýli Ráðstefnuhallarinnar tilbúið fyrir gesti til að njóta aðalráðstefnu.

Hér eru nokkrar áhugaverðar staðreyndir:

  • Átján stórar einingar mynda helstu sviðsetningargólfin, þar sem hver og ein vegur 1,5–4 tonn.

  • Þessi þungu mannvirki eru færð með þrýstiloftspúðum sem þrýsta á jörðina, sem gerir tiltölulega auðvelt að færa mannvirkin.

  • Um 500 smærri hlutum, eins og teinum og spjöldum, er einnig bætt við.

  • Tuttugu og fjögurra metra háar dyr opnast til að stærstu mannvirkin geti farið á sinn stað.

  • Sviðsetningarhópurinn undirbýr líka aðstöðu fyrir öryggisgæslu, trúboða og gesti — með alls yfir 600 verkefni.

Joel Wright, umsjónamaður sviðsetningarhópsins, hefur aðstoðað við 50 aðalráðstefnur. Hann segir hópinn sinn vera „óhylltar hetjur“ sem leggur óhemju mikið á sig. Hann segir: „Það er ekki mikil dýrð í því að setja upp stól eða borð eða setja aðstöðuna saman.“ Án hópsins væri ráðstefnan ekki sú sama.

Sviðsetningarstjórinn, Brandon Urry, bendir á að það þurfi „margt ólíkt fólk með mismunandi hæfileika og mismunandi bakgrunn“ til að vinna verkið – „til að útvarpa kærleika Drottins og orðunum sem hann hefur til að miðla öllum.“

Brandon segir að þau þurfi að allir með þessa mismunandi hæfileika „komi saman fyrir einn málstað“. Þar sem sá málstaður hefur Jesú Krist að þungamiðju, skynjar sviðsetningarhópurinn nærveru hans og sér kraftaverk hans.

Robert Simpson, einnig umsjónarmaður sviðsetningar, segir: „Mér … finnst sem andi Drottins komi inn á fundi hjá okkar og sé þar til að hjálpa okkur … að ljúka [verkinu]. … Stundum veltum við fyrir okkur hvernig við komumst í gegnum þetta allt. En við biðjumst fyrir og biðjum um hjálp himnesks föður.“

Og líkt og Joel bætir við: „Með þolgæði og þrautseigju og stöðugu erfiði, þá verður [sviðsetningin] tilbúin fyrir morguninn á aðalráðstefnu.“ Joel segir það „hvetjandi“, vegna þess að kraftaverkin gerast fyrir tilstilli Jesú Krists.