„Einn dag í einu,“ Líahóna, sept. 2022.
Frá Síðari daga heilögum
Einn dag í einu
Við erum þakklát frábærum deildarmeðlimum okkar sem hjálpuðu okkur með einhverfan son okkar.
Josh í nýlegri ferð í musterið.
Ljósmynd af Joshua birt með leyfi höfundar
Þegar sonur okkar Joshua var 18 mánaða, tókum við eftir undarlegri hegðun hjá honum. Josh gat nánast endurtekið hvert orð í hverju einasta lagi í sjónvarpsþáttunum sem hann horfði á, en hann var seinn til að læra að tala. Einn daginn sagði tengdamóðir mín að Josh sýndi merki um einhverfu. Sérfræðingar sögðu okkur það sama.
Eiginkona mín, Elizabeth, sökkti sér í fræðiefni um einhverfu. Hún skráði Josh líka í meðferð til að hjálpa honum. Hún var staðráðin í því að hann fengi besta mögulega upphaf í lífinu sem við gátum veitt honum.
Á dögum sem ég var kvíðinn yfir framtíðinni, var Elizabeth vön að róa mig niður. Hún sagði að við þyrftum að taka einn dag fyrir í einu.
„Við þurfum að vera þakklát fyrir allt nýtt sem Josh lærir, í stað þess að einblína á allt hið óþekkta í framtíðinni,“ sagði hún.
Þegar Josh stækkaði varð hann óstýrilátur í kirkjunni. Til að koma í veg fyrir að hann truflaði Barnafélagið eða skaðaði börnin, hélt ég á honum í kjöltunni. Hann barðist, klóraði frá sér og glímdi við mig alla þrjá tímana í kirkjunni. Ég kom oft marin og örmagna heim.
„Af hverju skiljum við hann ekki bara eftir heima er við förum í kirkju og skiptumst á að vera hjá honum? var það sem ég lagði til.
„Ef við höldum ekki áfram að taka hann með okkur,“ svaraði Elizsabeth, „mun hann læra að ef hann lætur illa, þá fær hann að sleppa kirkju. Ég vissi að hún hafði rétt fyrir sér.
Einn daginn sagði móðir annarrar fjölskyldu með einhverft barn við mig: „Þegar Josh verður átta ára og fær heilagan anda, mun hann strax mildast mikið!
Ég efaðist um orð hennar, en þegar hann varð átta ára tók hann á móti heilögum anda og mildaðist vissulega – örlítið.
Þegar Josh varð eldri fékk hann prestdæmið. Hann útdeildi sakramentinu og lærði mikilvægi þjónustu. Meðlimir prestdæmissveitar hans lærðu dans við tónlistarmyndband frá níunda áratugnum með Josh og fluttu atriðið í deildarveislu.
Deildin okkar var yndisleg við Josh. Meðlimir brostu þegar hann útdeildi sakramentinu meðan hann tók nokkur dansspor frá níunda áratugnum.
Josh er 17 ára núna. Hann er hæfileikaríkur tónlistarmaður sem semur lög. Hann elskar leiklist og kemur reglulega fram í skóla og samfélagsleikhúsi.
Við erum þakklát fyrir að vera foreldrar Josh og taka þátt í ferð hans. Við erum ekki viss um hvað framtíðin ber í skauti sér, en við erum staðráðin í því að njóta hvers dags með honum.