2014
Hið guðlega hlutverk Jesú Krists: Málsvari
júlí 2014


Boðskapur heimsóknarkennara, júlí 2014

Hið guðlega hlutverk Jesú Krists: Málsvari

Kynnið ykkur efnið sem hér er, í bænaranda og leitið að því sem miðla á. Hvernig getur skilningur á lífi og starfi frelsarans aukið trú ykkar á hann og blessað þær sem þið vakið yfir með heimsóknarkennslu? Frekari upplýsingar eru á reliefsociety.lds.org.

Jesús Kristur er málsvari okkar hjá föðurnum. Hugtakið málsvari á rætur í latínu og merkir „sá sem talar máli annars.“ Frelsarinn talar máli okkar, af skilningi, réttvísi og miskunn. Sú vitneskja getur fyllt okkur elsku og þakklæti fyrir friðþægingu hans.

„Hlustið á hann, sem er málsvari hjá föðurnum, sem talar máli yðar hjá honum—

Og segir: Faðir, sjá þjáningar og dauða hans, sem enga synd drýgði, og þú hafðir velþóknun á. Sjá blóð sonar þíns, sem úthellt var, blóð hans, sem þú gafst, svo að þú mættir sjálfur dýrðlegur verða‒

Faðir, þyrm því þessum bræðrum mínum, sem trúa á nafn mitt, svo að þeir megi koma til mín og öðlast ævarandi líf“ (K&S 45:3–5).

Öldungur D. Todd Christofferson, í Tólfpostulasveitinni, sagði um Krist sem málsvara okkar: „Það er mér afar mikilvægt að geta öllum stundum og í öllum aðstæðum komið fram fyrir náðarhásætið, svo faðir minn á himnum megi hlusta á bænir mínar, og málsvari minn, sá er syndlaus var, megi flytja málaleitan mína.“

Úr ritningunum

Mósía 15:8–9; Moró 7:28; Kenning og sáttmálar 29:5; 110:4

Úr sögu okkar

Í gegnum sögu kirkju Drottins, hafa kvenlærisveinar Jesú Krists fylgt fordæmi hans. Ester var trúfastur og hugdjarfur málsvari. Frændi hennar, Mordekai, sendi henni eintak af tilskipun konungsins um að drepa skyldi alla Gyðinga og bað hana að „ganga fyrir konung og … leita vægðar hjá honum þjóð sinni til handa.“ Hann bætti við: „Hver veit nema þú sért til ríkis komin einmitt vegna þessara tíma!“ (Ester 4:8, 14.)

Þrátt fyrir hættuna sem fólst í því að vera málsvari fólksins, samþykkti Ester: „Síðan mun ég ganga inn fyrir konung, þótt það sé í móti lögunum, og ef ég þá á að farast, þá ferst ég“ (Ester 4:16).

Ester talaði síðan af auðmýkt við konunginn og „féll honum til fóta og bað hann grátandi … að afturkalla bréfin … [um] að láta eyða Gyðingum.“ Hún sagði síðan: „Hvernig mundi ég fá afborið að horfa upp á tortíming kynsmanna minna?“ (sjá Ester 8:3, 5–6). Konungurinn mildaðist í hjarta og varð við bón hennar.

Heimildir

  1. Sjá Russell M. Nelson, „Jesus Christ—Our Master and More“ (Brigham Young University fireside, 2. feb. 1992), 4; speeches.byu.edu.

  2. D. Todd Christofferson, „I Know in Whom I Have Trusted,“ Ensign, maí 1993, 83.

  3. Sjá einnig Daughters in My Kingdom: The History and Work of Relief Society (2011), 180.

Til hugleiðingar

Hvernig getur málsvörn Jesú Krists hvatt okkur til að sýna öðrum miskunn og vera fús til að fyrirgefa?