2020–2024
Innbyrðast í gleði Krists
Aðalráðstefna apríl 2024


11:35

Innbyrðast í gleði Krists

Ég ber vitni um að himneskur faðir heyrir tárvotar bænir ykkar og mun ávallt svara af fullkominni visku.

Okkur þykir vænt um þig öldungur Kearon Má ég fá þennan hreim lánaðan í 10 mínútur?

Þráð kraftaverk

Í Nýja testamentinu er sagt frá Bartímeusi hinum blinda, sem hrópaði til Jesú og þráði kraftaverk. „Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafnskjótt fékk hann sjónina.“

Við annað tækifæri þráði maður nokkur í Betsaídu lækningu. Þetta kraftaverk gerðist hins vegar ekki samstundis. Þess í stað blessaði Jesús hann tvisvar áður en hann „varð albata.“

Í þriðja dæminu var það Páll postuli sem „þrisvar [bað] Drottin“ í þrengingu sinni, en eftir því sem við best vitum var einlæg bæn hans ekki uppfyllt.

Þrjár ólíkar manneskjur. Þrjár einstakar upplifanir.

Af því leiðir spurning: Hvers vegna hljóta sumir sín þráðu kraftaverk fljótt á meðan aðrir þrauka og bíða eftir Drottni? Við vitum ekki alltaf ástæðuna, samt þekkjum við, í þakklæti, hann sem „elskar [okkur]“ og „[gjörir allt okkur til eilífrar] velferðar og hamingju.“

Guðlegur tilgangur

Guð, sem sér endinn frá upphafinu, fullvissar: „Mótlæti þitt og þrengingar munu aðeins vara örskamma stund“ og mun helgað „þér til góðs.“

Til að hjálpa okkur að finna frekari þýðingu í raunum okkar, kenndi öldungur Orson F. Whitney: „Allur sársauki sem við líðum verður ekki til einskis. Hann verður okkur til lærdóms. … Allt … sem við þolum [í þolinmæði] … styrkir manngerð okkar, hreinsar hjörtu okkar, víkkar út sálir okkar og gerir okkur ljúfari og kærleiksríkari. … Það er fyrir tilstilli sorgar og sársauka, amsturs og andstreymis, sem við hljótum þann lærdóm sem ætlunin er að við hljótum hér og gerir okkur líkari föður okkar og móður á himnum.“

Páll postuli skildi að „kraftur Krists myndi [búa] yfir [honum]“ í þrengingum hans og sagði því auðmjúkur: „Þegar ég er veikur, þá er ég máttugur.“

Þrengingar lífsins sannreyna okkur. Jafnvel frelsarinn „lærði … að hlýða“ og var „[fullkomnaður] með þjáningum.“

Sá dagur mun koma að hann lýsir yfir af kærleika: „Ég hreinsaði þig, … ég reyndi þig í bræðsluofni þjáningarinnar.“

Að læra að treysta á hinn æðri tilgang Guðs, innblæs þreyttum sálum von og vekur staðfestu á tímum þjáninga og hjartasára.

Guðleg yfirsýn

Fyrir mörgum árum miðlaði Russell M. Nelson forseti, þessum dýrmæta skilningi: „Ef við horfum á alla hluti út frá eilífu sjónarhorni, mun það létta byrði okkar umtalsvert.“

Holly og Trey Porter.

Ég og eiginkona mín, Jill, urðum nýlega vitni að þessum sannleika í trúföstu lífi Holly og Rick Porter, en 12 ára sonur þeirra, Trey, lést í hörmulegum eldsvoða. Með illa brenndar hendur og fætur, eftir hetjulega baráttu við að bjarga kærum syni sínum, bar Holly síðar vitni á sakramentissamkomu deildarinnar um þann mikla frið og þá miklu gleði sem Drottinn hafði úthellt yfir fjölskyldu hennar í angist þeirra og notaði orð eins og kraftaverk, ótrúlegt og undursamlegt.

Læknandi hendur lagðar saman

Ólýsanlegur friður kom í stað óbærilegrar sorgar þessarar hjartfólgnu móður, ásamt þessari hugsun: „Hendur mínar eru ekki hendurnar sem frelsa. Þær hendur eru frelsarans! Í stað þess að líta á örin mín sem áminningu um það sem ég gat ekki gert, þá minnist ég öranna sem frelsari minn ber.“

Vitnisburður Hollyar uppfyllir loforð spámanns okkar: „Þegar þið hugsið himneskt munuð þið sjá raunir og mótlæti í nýju ljósi.“

Öldungur D. Todd Christofferson sagði: „Ég trúi að áskorunin um að sigrast á og vaxa af mótlæti, hafi höfðað til okkar þegar Guð kynnti endurlausnaráætlun sína í fortilverunni. Við ættum að takast á við þá áskorun í vitneskju um að himneskur faðir muni styrkja okkur. Það er þó nauðsynlegt að við leitum til hans. Án Guðs ala myrkar upplifanir þjáninga og mótlætis örvæntingu, uppgjöf og jafnvel biturð.“

Guðlegar reglur

Til að forðast myrkur óánægju og finna þess í stað aukinn frið, von og jafnvel gleði í erfiðleikum lífsins, þá býð ykkur ég þrjár guðlegar reglur.

Fyrsta – sterkari trú fæst með því að hafa Jesú Krist í fyrirrúmi Hann segir: „Beinið öllum hugsunum yðar til mín. Efist ekki, óttist ekki.“ Nelson forseti kenndi:

„Eilíft líf [okkar] er háð trú [okkar] á [Krist] og friðþægingu hans.“

„Þegar ég hef glímt við ákafan sársauka, eftir meiðsl sem ég varð fyrir nýlega, hef ég fundið jafnvel enn dýpra þakklæti fyrir Jesú Krist og óskiljanlega gjöf friðþægingar hans. Hugleiðið hana! Frelsarinn leið ‚alls kyns sársauka, þrengingar og freistingar‘ svo hann gæti huggað okkur, læknað okkur, bjargað okkur á erfiðleikatímum.“

Hann hélt áfram: „Meiðsli mín hafa knúið mig til að íhuga aftur og aftur ‚mikilleik hins heilaga Ísraels.‘ Í bataferli mínu, hefur Drottinn sýnt guðlegan kraft sinn á friðsælan og óyggjandi hátt.“

„Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir,“ hvetur Drottinn okkur „Ég hef sigrað heiminn.“

Annað – Bjartari von fæst með því að sjá fyrir sér eilíf örlög okkar. Systir Linda Reeves ræddi um þann kraft sem felst í því að „hafa skýra sýn á [hinum] undursamlegu fyrirheitnu [blessunum] … á degi hverjum“ og bar vitni: „Ég veit ekki af hverju raunir okkar eru svo miklar, en það er mín tilfinning … að launin verði svo mikil, … svo gleðirík og utan okkar skilnings, að á degi umbunar munum við segja við okkar miskunnsama og kærleiksríka föður: ‚Er þetta allt sem krafist var?‘ … Hverju skipta þjáningar okkar hér, … ef slíkar raunir leiða … til þess að við verðum [fullgild] til eilífs lífs … í ríki Guðs?“

Nelson forseti miðlaði þessari sýn: „Íhugið svar Drottins til Josephs Smith, þegar hann sárbað um hjálp í Liberty-fangelsinu. Drottinn kenndi spámanninum að hin ómannúðlega meðferð myndi veita honum reynslu og yrði honum til góðs. ‚Ef þú stenst það vel,‘ lofaði Drottinn, ‚þá mun Guð upphefja þig í upphæðum.‘ Drottinn var að kenna Joseph að hugsa himneskt og sjá fyrir sér eilífa umbun, frekar en að einblína á óbærilega erfiðleika dagsins.“

Viðhorfsbreyting Josephs færði dýpri helgun, eins og kemur fram í þessu bréfi til vinar: „Eftir að hafa verið innilokaður innan veggja fangelsis í fimm mánuði, finnst mér sem hjarta mitt verði alltaf mildara eftir þetta en nokkru sinni fyrr. … Mér finnst sem mér gæti ekki liðið líkt og nú, ef ég hefði ekki þolað ranglætið sem ég hef þolað.“

Þriðja – Meiri máttur hlýst af því að einblína á gleði. Á erfiðustu og þjáningarfyllstu stundum eilífðarinnar, hörfaði frelsarinn ekki undan, heldur tæmdi hinn beiska bikar. Hvernig gerði hann það? Við lærum að „[Kristur] leið með þolinmæði á krossi, … af því að hann vissi hvaða gleði beið hans“ og að vilji hans „innbyrðist í vilja föðurins.“

Kristur í Getsemane.

Orðið „innbyrðist“ snertir mig djúpt. Áhugi minn jókst þegar ég komst að því að á spænsku er „innbyrðist“ þýtt sem „gagntekinn“; á þýsku sem „uppgleyptur“; og á kínversku „umlukinn.“ Þegar því áskoranir lífsins eru sársaukafyllstar og yfirþyrmandi, þá minnist ég loforðs Drottins – að við ættum engar þrengingar að líða nema þær séu innbyrðar [gagnteknar, uppgleyptar og umluktar] eða hverfi í gleði Krists.

Ég sé í svo mörgum ykkar þessa gleði, sem „er æðri [mannlegum] … skilningi,“ jafnvel þótt hinir beisku bikarar ykkar hafi enn ekki verið frá ykkur teknir. Þakka ykkur fyrir að halda sáttmála ykkar og standa sem vitni fyrir Guð. Þakka ykkur fyrir að rétta fram höndina og blessa okkur öll, þótt „í hljóðu hjarta [ykkar sé] hulin sorg sem augað fær ei séð.“ Því þegar þið færið öðrum líkn frelsarans, munuð þið finna hana sjálf, kenndi Camille N. Johnson forseti.

Guðleg loforð

Snúið nú aftur með mér á sakramentissamkomuna, þar sem við vorum vitni að kraftaverki fjölskyldu Holly Porter þegar Drottinn liðsinnti þeim. Þegar ég hugleiddi á pallinum hvað ég gæti sagt til að færa þessarri trúföstu fjölskyldu og kærum vinum þeirra huggun, kom þessi hugsun til mín: „Notaðu orð frelsarans.“ Ég mun því ljúka í dag, líkt og þann hvíldardag, með hans orðum, „sem [lækna] hrjáða sál.“

„Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“

„Og ég mun einnig létta byrðarnar, sem lagðar hafa verið á herðar yðar, já, svo að þér finnið ekki fyrir þeim á bökum yðar, jafnvel á meðan þér eruð ánauðug. … [og þér] megið vita með vissu, að ég, Drottinn Guð, vitja fólks míns í þrengingum þess.“

„Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlaus. Ég kem til yðar.“

Vitni mín

Í gleði og lotningu, ber ég vitni um að frelsarinn lifir og loforð hans eru örugg. Sérstaklega ykkur sem eigið erfitt eða sem eruð „[þjáð] á einhvern hátt,“ ber ég vitni um að himneskur faðir heyrir tárvotar bænir ykkar og mun ávallt svara ykkur af fullkominni visku. „Megi þá Guð gefa,“ líkt og hann hefur gert fyrir fjölskyldu okkar á stundum mikillar neyðar, „að byrðar ykkar verði léttar,“ munu jafnvel „[innbyrðast í gleði] Krists.“ Í hinu heilaga nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Markús 10:52; leturbreyting hér.

  2. Markús 8:25.

  3. 2. Korintubréf 12:8; skáletrað hér.

  4. Sjá Sálmarnir 130:5.

  5. 1. Nefí 11:17.

  6. Helaman 12:2; sjá einnig 2 Ne 26:24.

  7. Sjá Abraham 2:8.

  8. Kenning og sáttálar 121:7.

  9. 2. Nefí 2:2.

  10. Orson F. Whitney, í Teachings of Presidents of the Church: Spencer W. Kimball (2006), 16.

  11. 2. Korintubréfið 12:9-10

  12. Sjá Abraham 3:25–26.

  13. Hebreabréfið 5:8; 2:10.

  14. 1. Nefí 20:10; leturbreyting hér.

  15. Sjá 2. Nefí 4:19–35.

  16. Persónulegt samtal við öldung Russell M. Nelson, apríl 2011.

  17. Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!,“ aðalráðstefna, okt. 2023.

  18. D. Todd Christofferson, „Hinn fágandi eldur þrenginga,“ Líahóna, mars 2022, 7; leturbreyting hér.

  19. Sjá Russell M. Nelson, „Lát Guð ríkja,“ aðalráðstefna, október 2020.

  20. Kenning og sáttmálar 6:36.

  21. Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!.“

  22. Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!.“ Jeffrey R. Holland forseti kenndi: „Þegar þið eigið í baráttu, þegar ykkur er hafnað, þegar hrækt er á ykkur, ykkur vísað út og þið niðurlægð, standið þið með því besta lífi sem þessi heimur hefur nokkru sinni þekkt, hinu eina hreina og fullkomna lífi sem lifað hefur verið. Þið hafið ástæðu til að standa upprétt og vera þakklát fyrir að hinn lifandi sonur hins lifandi Guðs veit allt um sorgir ykkar og þrengingar“ („Missionary Work and the Atonement,“ Ensign, mars 2001, 15).

  23. Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!,“ sjá einnig Alma 7:11–12.

  24. Jóhannes 16:33.

  25. Sjá 2. Nefí 31:20; Eter 12:4; Moróní 7:48.

  26. Linda S. Reeves, „Verðug okkar fyrirheitnu blessana,“ aðalráðstefna, okt. 2015.

  27. Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!.“

  28. Joseph Smith, Bréf til Presendia Huntington Buell, 15 mars, 1839, josephsmithpapers.org.

  29. Sjá Russell M. Nelson, „Gleði og andleg þrautseigja,“ aðalráðstefna, október 2016.

  30. Sjá Markús 14:35–41.

  31. Hebreabréfið 12:2.

  32. Mósía 15:7

  33. Alma 31:38; sjá einnig Sálmarnir 30:5; Jóhannes 15:10–11; 1. Þessaloníkubréf 1:6; Þýðing Josephs Smith, Jakobsbréfið 1:2 (í Jakobsbréfið 1:2, neðanmálstilvísun a); 2. Nefí 2:25; 9:18; Alma 26:6–7, 11, 27, 37; 28:8; 33:23; 36:20–21; Kenning og sáttmálar 109:76; HDP Móse 5:10–11.

  34. „Á sama hátt og frelsarinn býður frið sem er „æðri öllum skilningi‘ [Filippíbréfið 4:7], þá býður hann líka svo djúpa og mikla gleði, að hún er æðri mannlegri röksemd eða skilningi. Það virðist til að mynda ekki mögulegt að finna gleði þegar barnið manns þjáist af ólæknandi sjúkdómi eða þegar við missum atvinnuna eða þegar maki okkar er ótrúr. Það er samt einmitt slíka gleði sem frelsarinn býður okkur. Gleði hans er varanleg og fullvissandi um að ‚þrengingar munu aðeins vara örskamma stund‘ [Kenning og sáttmálar 121:7] og verða okkur til farsældar“ (Russell M. Nelson, „Gleði og andleg þrautsegja,“ aðalráðstefna, okt. 2016).

  35. Sjá Mósía 24:14; Alma 33:23. Á síðasta ári hittum við Jill Paulu, fallega unga konu frá Gvatemala sem átti í mikilli baráttu við krabbamein. Svar hennar við spurningu minni um líðan hennar, skildi eftir ógleymanlega minningu í huga okkar og hjarta: „Ég er þakklát,“ svaraði þessi auðmjúki unglingur næstum því hvíslandi, „að Drottinn gaf mér þetta en ekki systur minni.“ Þá, þó að henni liði ekki vel, fóru hún, systir hennar, Saría og faðir þeirra og heimsóttu tvær aldraðar ekkjur, sem höfðu sínar eigin miklu persónulegu þarfir og áskoranir, til hirðisþjónustu.

  36. „Lord, I Would Follow Thee,“ Hymns, nr. 220.

  37. Sjá Camille N. Johnson, „Jesús Kristur er líkn,“ aðalráðstefna, apríl 2023; sjá einnig Lúkas 23:34, 43; Jóhannes 19:26–27. Öldungur Neal A. Maxwell miðlaði þessu dásamlega innsæi og hvatti til þess að: „Sé ekki þrengt að okkur sjálfum á einhverjum tilteknum krossi, í augnablikinu, þá ættum við vera við fætur einhvers annars – full samkenndar, veitandi andlega hvatningu“ („Endure It Well,“ Ensign, maí 1990, 34).

  38. Sjá Alma 7:12.

  39. Sjá Dallin H. Oaks, „Kenningar Jesú Krists,“ aðalráðstefna, apríl 2023.

  40. Jakob 2:8; sjá einnig Neil L. Andersen, „Hjartasár,“ aðalráðstefna, okt. 2018.

  41. Matteus 11:28; sjá einnig Matteus 28:20: „Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“

  42. Mósía 24:14.

  43. Jóhannes 14:18.

  44. „Guðs barnið eitt ég er,“ Barnasöngbókin, 112; sjá einnig Kenning og sáttmálar 98:3.

  45. 3. Nefí 17:7; sjá einnig Alma 36:3, 27.

  46. Sjá 2. Mósebók 2:24; 3:7; Mósía 34:12.

  47. Sjá 2. Nefí 2:24; Mósía 4:9; Jesaja 55:9. „Sumar blessanir koma fljótt, aðrar seint og enn aðrar koma ekki fyrr en á himnum; en hvað varðar þá sem taka á móti fagnaðarerindi Jesú Krists, þá munu þær koma“ (Jeffrey R. Holland, „An High Priest of Good Things to Come,“ Ensign, nóv. 1999, 38).

  48. Alma 33:23.

  49. Alma 31:38; sjá einnig Sálmarnir 30:5; Jóhannes 15:10–11; 1. Þessaloníkubréf 1:6; Þýðing Josephs Smith, Jakobsbréfið 1:2 (í Jakobsbréfið 1:2, neðanmálstilvísun a); 2. Nefí 2:25; 9:18; Alma 26:6–7, 11, 27, 37; 28:8; 33:23; 36:20–21; Kenning og sáttmálar 109:76; HDP Móse 5:10–11.