Jesús Kristur er það besta sem enn er í vændum
Gleðin sem Jesús Kristur býður stendur ykkur ávallt til boða.
Hugsið um tíma þegar þið hélduð að heimurinn væri að enda. Nei, í alvöru! Hafið þið gengið í gegnum eitthvað svo erfitt að þið hélduð að þið mynduð ekki lifa það af?
Allt í lagi, kannski hélduð þið ekki að heimurinn væri að enda. En fannst ykkur eins og ykkar heimur væri að enda? Þetta gæti hafa verið allt frá því að falla á mikilvægu prófi, til þess að besti vinur ykkar flytti eða að ástvinur létist óvænt.
Sama hvernig þið tókust á við þessi fyrri áföll, lítið á ykkur sjálf núna: þið lifðuð af! Það sem er enn betra, spámenn og postular minna okkur á að við getum gert meira en bara að lifa af núverandi og framtíðar erfiðleika. Við getum fundið gleði í hringiðu þeirra.
„Hið besta er enn í vændum“
Frelsarinn þjáðist meira en við fáum ímyndað okkur í Getsemane og á krossinum. Það væri vægast sagt erfitt að bera sársauka, sjúkdóma og syndir alls heimsins (sjá Alma 7:11–13). Hann sigraðist þó á þessu öllu.
Öldungur Patrick Kearon í Tólfpostulasveitinni kenndi: „Já, við íhugum þjáningarnar og óréttlætið sem frelsari okkar þoldi vegna synda okkar og það gefur tilefni til réttsýnnar hugleiðingar. En stundum festumst við þar – í garðinum, við krossinn, inni í gröfinni. Við látum bregðast að líta upp til þeirrar gleði að gröfinni var lokið upp, að dauðinn var sigraður!“
Sökum Jesú Krists, þurfum við ekki að vera föst í eigin þjáningum. Við getum haldið áfram og jafnvel horft til framtíðar með gleði og trú.
Þótt lífið geti virst erfiðara en við höldum að við þolum, hafið þá í huga það sem Russell M. Nelson forseti kenndi nýlega: „Það besta er enn í vændum!“ Hve yndislegt, hughreystandi loforð! Nelson forseti þekkir mikið til þess sársauka og þeirrar hjartasorgar sem heimurinn upplifir á hverjum degi. Hann getur samt sagt að „það besta er enn í vændum!“
Hvernig myndi viðhorf ykkar breytast ef þið vissuð í raun að það besta ætti eftir að koma? Hvernig myndi það breyta því hvernig þið takist á við áskoranir lífsins?
Hafa Krist í myndinni
Framtíðarviðburður sem Nelson forseti hefur boðið okkur að líta gleðilega til er síðari koma Jesú Krists.
Áður en þið bendið á að „menn munu falla“ (Lúkas 21:26) og tortíming sem rignir yfir hina ranglátu hljómar í raun ekki eins og „það besta [sé] enn í vændum,“ þá skulum við útskýra nokkuð: Það er síðari koma Jesú Krists. Við missum af aðalatriðinu ef við tökum hann út úr myndinni. Hann er það „besta“ sem enn er í vændum – hann er ástæða gleði okkar! Eins og Nelson forseti sagði: „Það besta er enn í vændum … því frelsarinn kemur aftur!“
Lítum til dæmis á Nefítana. Þótt þeir væru í allt annarri heimsálfu, þá upplifðu þeir hamfarir líkum síðari komunni þegar frelsarinn dó: dauða, eyðileggingu, náttúruhamfarir. Heilu borgirnar sukku í sjóinn (sjá 3. Nefí 8).
En eftir allt þetta umrót, vissu þeir sem trúðu á frelsarann að hörmungarnar voru tákn um dauða frelsarans. Á sama augnabliki og þeir ræddu um Jesú Krist og táknin sem þeir höfðu séð, birtist frelsarinn þeim (sjá 3. Nefí 11:1–11).
Hugsið ykkur hversu mikla gleði Nefítarnir upplifðu! Eftir slíka hræðilega eyðileggingu, þjónaði frelsarinn þeim og læknaði þá. Eftir allan óttann og skelfinguna, fögnuðu Nefítarnir og lofuðu Guð fyrir að fá að hitta frelsara sinn (sjá 3. Nefí 11:14–17).
Frelsarinn mun ef til vill ekki heimsækja ykkur í þessu lífi eins og hann heimsótti Nefítana. Þið getið þó kynnst honum með því að lesa ritningarnar, meðtaka sakramentið, halda sáttmála og fleira. Hann getur hjálpað ykkur að finna gleði nú og í framtíðinni, hverjar sem aðstæður ykkar eru.
Á meðan við bíðum …
Síðari koma frelsarans gæti orðið á ykkar líftíma, eða ekki. Hvort heldur er, þá er gleði í Jesú Kristi núna.
Nelson forseti kenndi eftirfarandi hvetjandi sannleika sem hjálpar er við væntum endurkomu frelsarans: „Kæru bræður og systur, það er þó svo margt dásamlegt framundan. Á komandi tíð, munum við sjá stærstu birtingarmyndir um kraft frelsarans, sem heimurinn hefur nokkru sinni séð. Frá þessum tíma, fram að endurkomu hans í ‚mætti og mikilli dýrð,‘ mun hann úthella yfir hina heilögu óteljandi forréttindum, blessunum og kraftaverkum.“
Við getum, með öðrum orðum, fundið frið og gleði í Kristi einmitt núna, fram að endurkomu hans og eilíflega. Jesús Kristur er ljósið við enda hverra gangna. Hann er gleðin í persónulegum erfiðleikum. Hann er hughreysting frá ótta. Hann er lausnari ykkar. Þegar þið einblínið á hann, þá getið þið fundið frið og gleði hér, nú og alltaf.