„Liberty-fangelsið,“ Barnavinur, ágúst 2025, 26–28.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, ágúst 2025
Liberty-fangelsið
Mörgum í Missouri líkaði ekki við hina heilögu. Ríkisstjórinn sendi hermenn til að reka þá í burtu.
Hermennirnir handtóku Joseph Smith og aðra leiðtoga kirkjunnar. Kvöld eitt hlógu verðirnir að því slæma sem þeir höfðu gert hinum heilögu.
Joseph stóð upp og hrópaði: „Þögn!“ Hann talaði með krafti Guðs. Verðirnir báðust afsökunar og hættu að tala.
Síðar voru Joseph og vinir hans settir í fangelsi í bæ sem hét Liberty. Fangelsið var kalt, lítið og dimmt. Þeir höfðu aðeins skítugan hálm til að sofa á. Maturinn sem þeim var gefinn gerði þá veika.
Joseph hafði áhyggjur af hinum heilögu. Hann gat þó ekkert gert þeim til hjálpar.
Joseph baðst mikið fyrir. Hann spurði hvort Guð hefði gleymt honum og kirkjumeðlimunum.
Guð bænheyrði Joseph. Hann sagði: „Sonur minn, friður sé með sál þinni.“ Guð sagði Joseph að áskoranir hans yrðu ekki varanlegar og yrðu honum til góðs. Hann lofaði að vera með Joseph „alltaf og að eilífu“ (Kenning og sáttmálar 121:7, 46).
Litasíða
Ég get verið öðrum ljós
Myndskreyting: Corey Egbert
Hvernig eruð þið öðrum góð fyrirmynd?
© 2025 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, August 2025. Icelandic. 19642 190