Komast nær Jesú Kristi
BYU-trúarsamkoma með Dallin H. Oaks forseta
Þriðjudagur, 10. febrúar 2026
Kæru bræður og systur, það er ánægjulegt að vera meðal ykkar. Þið eruð áheyrendur sem Drottinn elskar innilega og hann þráir að þið snúið öll aftur í návist hans.
Frá þjónustu minni sem BYU-forseti árið 1971, hef ég talað til margra BYU-áheyrenda, en aldrei áður sem aðalleiðtogi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Sem núverandi leiðtogi ykkar, hef ég beðið um innblástur varðandi það sem ég ætti að segja við ykkur og við hinn stærri áheyrendahóp sem hlustar með hjálp núverandi tækni.
Þið eruð að fagna 150 ára afmæli BYU-háskóla. Ég var forseti BYU-háskóla þegar við héldum upp á 100 ára afmælið. Sama ár flutti Spencer W. Kimball forseti sína sögulegu „Annarrar aldar ræðu.“ Önnur öldin sú er nú hálfnuð. Hvert er þróunarstig BYU-háskóla nú þegar hann hefur keppt að því að takast á við þessar spámannlegu áskoranir? Hvert er þróunarstig ykkar eftir aukna upplifun af ykkar hluta annarrar aldar? Til að styrkja andleg áhrif sem ég hef áður deilt með háskólaforystu ykkar, trúi ég því staðfastlega að það séu örlög Brigham Young háskóla að ná því þróunarstigi sem fyrrverandi og núverandi spámenn vissu að hann gæti náð. Með helgun og leiðtogastarfi þessa samfélags, verður BYU hinn mikli háskóli Drottins – ekki að hætti heimsins, heldur að hætti Drottins.
Nú ávarpa ég BYU-áheyrendur, en það sem ég hef að segja á við um alla sem fylgja orðum spámanns.
I. Inngangur
Ég vil þakka þeim mörgu vinum og meðlimum sem hafa beðist fyrir og lýst yfir stuðningi við mig í minni nýju köllun. Tíðar tilvísanir í „möttul“ embættisins sem fluttist yfir á mig, hefur hvatt mig til þess að byrja á nokkrum athugasemdum um þýðingu þess hugtaks.
Orðið möttull er notað í Biblíunni til að lýsa skikkju Elía spámanns, sem fallið hafði af honum yfir á Elísa, sem tákn um flutning hins spámannlega valds. Hugtakið möttull kom fram í sögu hinnar endurreistu kirkju í mörgum frásögnum um samkomuna í Nauvoo um hver ætti að taka við af hinum myrta Joseph Smith. Margir viðstaddir skráðu þá upplifun sína að „möttull Josephs“ hafi fallið yfir Brigham Young. Sú upplifun tók á sig margar myndir. Sumir upplifðu það sjónrænt, aðrir heyrðu rödd Josephs, margir upplifðu tilfinningu – hvert okkar hlýtur opinberun á mismunandi hátt.
Þegar Russell M. Nelson var kallaður sem spámaður okkar, upplifði ég álíka hluti. Ég hafði setið við hlið þessa postula á fundum Tólfpostulasveitarinnar í 34 ár, en þegar „möttull“ spámanns féll yfir Nelson forseta, fannst mér spámannlegar gjafir hans margfaldast. Við höfum öll orðið vitni að djúpstæðri leiðtogahæfni hans.
Við dauða Nelsons forseta upplifði ég aðra merkingu orðsins „möttull.“ Hvað áhorfendur varðar, er hann táknrænn fyrir flutning prestdæmisvalds. Sá einstaklingur sem hlýtur þetta valdsumboð upplifir þetta allt öðruvísi og afar raunverulega. Nokkrum mínútum eftir að ég frétti af andláti forseta okkar, fann ég hina þungu ábyrgð koma yfir mig, ásamt mikilvægum hugboðum um það sem af mér var krafist að gera núna.
Sem leiðtogi ykkar, bið ég fyrir því sem himneskur faðir óskar hverju okkar – sem er að vera eða verða virkir meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og halda áfram á sáttmálsveginum inn í eilífðirnar. Við þörfnumst bæna hvers annars. Ég skynja jákvæð áhrif bæna ykkar. Ég er þakklátur og ég elska ykkur.
II. Kenningarleg atriði fyrir Síðari daga heilaga
Russell M. Nelson forseti hefur varað við því að „á komandi tíð verður … ekki mögulegt að komast af andlega, án þess að njóta stöðugrar handleiðslu, huggunar og áhrifa heilags anda.“ Ein af mögum ástæðum þess að þið þarfnist stöðugra áhrifa heilags anda, er sú að þið lifið á tíma þegar óvinurinn hefur náð svo mikum árangri í því að dylja sannleikann, að þið munuð láta blekkjast, ef þið hafið ekki heilagan anda. Margar hindranir eru framundan. Truflanirnar verða margar. Jafnvel virkir meðlimir kunna stundum að hafa áhyggjur af einhverjum sögulegum, kenningarlegum eða félagslegum málefnum sem tengjast kirkjunni. Ég vil hjálpa öllum meðlimum okkar að sigrast á efasemdum nútíðar eða framtíðar. Hverjar sem efasemdirnar eru, þá er leiðin til að sigrast á þeim að komast nær frelsara okkar, Jesú Kristi. Hann hefur ítrekað kennt okkur að hann er vegurinn.
Ég miðla fjórum hugboðum sem munu færa okkur nær frelsara okkar:
-
Fyrsta: Styrkja trú okkar á hann.
-
Annað: Auka auðmýkt okkar
-
Þriðja: Leita hjálpar annarra.
-
Fjórða: Vera þolinmóð.
Í fyrsta lagi þurfum við að einbeita okkur að því að þróa trú á Guð og hlutverk sonar hans, Jesú Krists. Sterk trú krefst meira en sterkrar þrár; hún merkir að reyna daglega, eitt skref í einu, með bæn og ritningarnámi. Við getum aukið staðfestu okkar við reglurnar í fyrsta trúaratriðinu, þar sem segir: „Vér trúum á Guð, hinn eilífa föður, og á son hans, Jesú Krist, og á heilagan anda.“ Þessar reglur tryggja trú okkar á Guð og munu halda okkur fast að sannleika fagnaðarerindisins og fordæmi frelsarans um þjónustu við samferðafólk okkar.
III. Auðmýkt
Í öðru lagi, færir aukin auðmýkt okkur nær Jesú Kristi. Þetta mun hjálpa okkur að sigrast á spurningum um kenningu Drottins. Þegar við erum auðmjúk, getum við betur heyrt rödd Drottins. Við þurfum öll aðstoðarfólk til að kenna okkur auðmýkt. Ég miðla persónulegri reynslu sem kom mér aftur inn á veg auðmýktar. Á fyrsta ári mínu sem prófessor við lagadeild Chicago-háskóla, dó velþekktur kennari og deildarforsetinn bað mig að kenna í nokkrar vikur, þar til hægt væri að finna afleysingakennara. Lögfræðiefnið var nokkuð sem ég var ekki mjög kunnugur, svo ég lagði mikið á mig og var upp með mér yfir að hafa lokið verkefninu. Að því loknu, gaf nemandi mér nokkuð sem ég hélt að yrði hrós. Hann sagði: „HerraOaks, ég var í bekknum sem þú kenndir fyrir prófessorinn og ég verð að segja þér að ég var mjög hrifinn. Þú munt verða góður kennari einhvern daginn.“
Hvers vegna hjálpaði þessi reynsla mér? Ég hafði of mikla trú á getu minni sem kennara og þessi nemandi veitti mér skilning sem hefur blessað mig fram á þennan dag.
Ezra Taft Benson forseti veitti okkur góða kennslu um auðmýkt. Það gerði hann að hluta í eftirminnilegri kennslu sinni um dramb. Hann kenndi: „Mótefnið við drambi er auðmýkt – hógværð og lítillæti.“ „Auðmýkt fellur að vilja Guðs – að óttast dóma hans og þörfum þeirra sem umhverfis eru.“ „Við skulum velja að vera auðmjúk,“ bauð hann. Ég bæti við: Lítum til þarfa annarra og auðmýkt fylgir í kjölfarið.
Auðmýkt er meistaradyggð, líkt og trú á Guð, til að hjálpa okkur að læra aðrar dyggðir, nauðsynlegar okkur til að geta orðið það sem himneskur faðir og hans eingetni sonur sköpuðu okkur til að verða.
Í ræðu hér í BYU fyrir mörgum árum, skilgreindi Spencer W. Kimball forseti auðmýkt sem „námfýsi.“ Hann útskýrði:
„Auðmýkt er námfýsi – hæfileiki til að skilja að allar dyggðir og hæfileikar eru ekki fyrir hendi í manni sjálfum. … Auðmýkt er aldrei ásakandi eða þrætugjörn. … Auðmýkt er iðrandi og reynir ekki að réttlæta eigin heimskupör. Hún er að fyrirgefa öðrum í þeirri vitneskju að um einhverskonar mistök geti verið að ræða eða [sem við sjálf höfum gert]. … Auðmýkt leitar sér ekki vinsældar og frægðar; gerir engar kröfur um heiður.“
Auðmýkt er eitt af þeim kröftugu boðorðum sem okkur hafa verið gefin til leiðsagnar í okkar jarðneska ferðalagi. Hún býr okkur undir tilnefndan fund við frelsara okkar og lausnara, Jesú Krist. Gætið þess að láta ekki trufla ykkur. Minnist dæmisögunnar um meyjarnar tíu – við viljum vera meðal hinna fimm auðmjúku sem fengu inngöngu í návist Drottins.
Drottinn elskar öll börn sín og þráir endurkomu þeirra, en við þekkjum öll dæmi um heimkomna trúboða sem hafa gert hlé á andlegum vexti sínum með óvirknitímabilum. Við vitum af ungu fólki sem hefur stefnt andlegum vexti sínum í hættu, með því að aðskilja sig frá kenningum kirkjunnar, eins og það sem lætur í ljós litla löngun til að giftast eða eignast börn. Til eru líka fullorðnir meðlimir sem ekki sækjast eftir því að gera sáttmála, eins og menn sem búa sig ekki undir vígslu til Melkísedeksprestdæmisins.
Þau sem upplifa dvínandi trú og virkni í hinni endurreistu kirkju, eru spámannlegum leiðtogum ykkar mikið áhyggjuefni. Við elskum ykkur, unga sem aldna, karla og konur. Það gerir Drottinn líka! Guð er óþreytandi í kærleiksríkri leit sinni að hverju ykkar. Haldið boðorðin og verið trú sáttmálunum, sem svo mörg ykkar hafið gert, til að leiða ykkur á sáttmálsveginum. Látið aldrei veraldlegan lærdóm takmarka sjóndeildarhring ykkar.
Við erum þakklát fyrir að vita að til eru tvær aðferðir til að öðlast nauðsynlega þekkingu: (1) uppgötvanir mannsins sem afhjúpast með vísindalegri aðferð og (2) sannleikurinn sem afhjúpast með andlegri aðferð, sem hefst með trú á Guð og byggist á ritningunum, innblásinni kennslu og persónulegri opinberun. Það er engin endanlegur munur á þekkingu sem fæst með þessum ólíku aðferðum, því Guð, okkar almáttugi eilífi faðir, þekkir allan sannleika og hvetur okkur til að læra með báðum aðferðum.
Þau sem ekki trúa á Guð og hafna formlega „hefðbundnu trúarsiðferði“ og reiða sig eingöngu á „sannreyndar vísindalegar staðreyndir“ uppfylla lýsingu Mormónsbókar á þeim sem „lifa án Guðs í heiminum.“
Öldungur Richard L. Evans var með gott svar fyrir þau sem fara úr jafnvægi vegna vísindalegra sannana sem virðast stangast á við það sem við túlkum úr ritningunum:
„Það kann að virðast misræmi að einhverju leyti,“ sagði hann. „Hafið ekki áhyggjur af því. Eilífðin er langur tími. Ég ber mikla virðingu fyrir lærdómi, námsárangri og háskólaumhverfinu. … Ég ber mikla virðingu fyrir vísindum og vísindamönnum og leitinni að sannleikanum. En munið þetta: vísindi þegar öllu er á botninn hvolft (jafnvel þótt þau eru sönn, endanleg og staðreyndir) eru einfaldlega uppgötvun mannsins á nokkru því sem Guð veit nú þegar og hefur stjórn á í skipulagi alheimsins. … Guð hefur ekki sagt okkur allt sem hann veit. Við trúum á áframhaldandi opinberanir. Verið þolinmóð. Vertu auðmjúk og yfirveguð í öllu.“
Auðmýkt og traust á Drottin eru meðul gegn slíkum frávikum. Eins og Mormónsbók kennir: „[Drottinn] blessar þá og veitir þeim gengi, sem setja traust sitt á hann.“ Þeim er einkar nauðsynlegt að setja traust sitt á Drottin, sem ranglega vega og meta boðorð Guðs og kenningar spámanna hans út frá nýjustu niðurstöðum og visku manna.
IV. Leita hjálpar annarra vel upplýstra trúaðra
Þriðja leiðin til að nálgast frelsara okkar er að vera í samfélagi annarra trúaða. Þar má nefna samræður við traust samstarfsfólk, staðarmeðlimi kirkjunnar og aðra trúfasta vini.
Munið að þið þurfið stöðug áhrif heilags anda til að komast af andlega. Ógrynni vangaveltna og rangra upplýsinga í hlaðvörpum og á samfélagsmiðlum umlykja okkur. Sumir mótmæla eða efast um sannleika kenninga kirkjunnar, án þess að þekkja eða jafnvel skilja fyllingu þeirrar kenningar.
Látið ekki sannfærast af röngum eða ónákvæmum upplýsingum. Ræðið áhyggjur ykkar við trúfasta, vel upplýsta vini og farið ætíð með þær til Drottins.
Drottinn hefur sagt okkur afar lítið um suma hluti. Við vitum til dæmis afar lítið um þann andaheim sem kemur í kjölfar jarðlífsins eða jafnvel andaheiminn sem kom á undan honum. Þessi skortur á þekkingu getur verið skaðlegur þegar við reiðum okkur á trú um þessi málefni frá velmeinandi fólki sem kennir umfram það sem Guð hefur kosið að opinbera. Að treysta Guði fyrir því sem við vitum og því sem við vitum ekki, er mikil vernd gegn efasemdum byggðum á röngum hugmyndum, í stað þess sem Guð hefur kosið að opinbera.
Ég ætla að miðla reynslu viturs stikuforseta hér á háskólasvæðinu. Ungur maður í stikunni, sem leit upp til hans, leitaði til hans og bað hann að leiðbeina sér í viðskiptafræði. Eftir nokkrar vikur sagði ungi maðurinn: „Ég ætti að segja þér að ég hef ákveðið að draga mig í hlé frá kirkjunni. Ég trúi ekki lengur.“ Hinn undrandi stikuforseti tók þegar í stað að miðla djúpstæðum vitnisburði sínum um fagnaðarerindið, sem hafði veitt honum svo mikla gleði, frið og innblástur. Ungi maðurinn sat agndofa, starði á hann með tárvot augu og sagði: „Ég hef ekki heyrt neinn tala þannig í marga mánuði. Ég hef verið að með vinum sem trúa ekki.“ Ég segi ykkur öllum, eins og þessi vitri stikuforseti sagði við þennan unga mann: Leitið vina og kunningja sem reyna að fylgja Drottni, sem þið getið fundið andann með og styrkt trú ykkar með.
Umgangist þá sem trúa. Mikill spámaður Mormónsbókar kenndi þennan sannleika:
„Trúið á Guð. Trúið, að hann sé til og hafi skapað allt, bæði á himni og á jörðu. Trúið, að hans sé öll viska og allt vald, jafnt á himni sem á jörðu; Trúið, að maðurinn geti ekki haft skilning á öllu, sem Drottinn skilur.
Og trúið því enn fremur, að yður sé nauðsyn að iðrast synda yðar og láta af þeim, auðmýkið yður fyrir Guði.“
Verndið ykkur með því að endurnýja sáttmála ykkar vikulega, með því að meðtaka sakramentið og leggja ykkur stöðugt fram við að lifa samkvæmt þessum helgu sáttmálum. Þau sem hafa fengið musterisgjöf ættu að mæta reglulega í musterið. Haldið ykkur á sáttmálsveginum. Þessar einföldu aðferðir munu vernda ykkur og styrkja.
V. Þolinmæði
Við erum öll verk í vinnslu. Við erum öll á mismunandi stöðum á „sáttmálsveginum“, eins og Nelson forseti kallaði hann. Við þurfum að vera þolinmóð við hvert annað og jafnvel við okkur sjálf. „Að sigrast á efa – að leysa árekstra milli hins vaxandi skilnings vísinda og hinna stundum ófullnægjandi trúarbragðakenninga, getur verið langt ferli, rétt eins og að byggja upp trú eða öðlast auðmýkt. Haldið ykkur fast að fyrsta trúaratriðinu, jafnvel þótt eitthvað annað sé óvíst. Og meðan þið bíðið, treystið þá Drottni, sem felur í sér að treysta á tímasetningu hans jafnt sem loforð.
Á meðan við bíðum ættum við að leggja hart að okkur við þjónustu. Jesús kenndi og sýndi endurtekið áhrifamátt þjónustu við aðra.
Kæru bræður og systur, ég ber vitni um Jesú Krist, eins og postulunum er kennt að bera vitni um nafn hans, sem táknar heilagt verk hans, um allan heim. Ég ber vitni um þann sannleika sem kenndur er af hinni endurreistu kirkju. Ég miðla ykkur og ber vitni um sannleika þessa sem ég hef sagt í dag, í nafni Jesú Krists, amen.