Safn
Finna styrk og líkn í Jesú Kristi: Hannah Miller


3:25

Finna styrk og líkn í Jesú Kristi: Hannah Miller

Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna

Sunnudagur, 8. mars 2026

Systir mín hringdi og sagði mér að ég yrði að koma heim svo ég gæti hitt pabba minn áður en hann andaðist. Fjölskylda okkar tókst á við þann dag í föstu fyrir kraftaverki og um leið og við slitum föstu okkar, kvöddum við pabba minn og hann kvaddi fljótlega eftir það. Jafnvel á þeirri stundu vissi ég að kraftaverkið var það að hann fékk líkn frá jarðneskum veikindum sínum og áskorunum. Ég hugsa líka um sársaukann sem það færði fjölskyldu okkar. En Drottinn var fljótur að veita okkur líkn. Oftast var það í hlutverki kærra vina og fjölskyldu sem veitti svo mikla huggun og félagskap á meðan á þessum mjög svo erfiða tíma stóð fyrir okkur.

Og þegar ég hugsaði um þessa reynslu, las ég − ég var að lesa ritningagrein í Mormónsbók. Það er í Orðum Mormóns, og versum 17 og 18, þar er talað um Benjamín konung sem stóð frammi fyrir því erfiða verkefni að skapa frið í samfélagi. Ég er svo hrifin af því sem segir þar. Þar segir: „Benjamín konungur var heilagur maður, og hann ríkti yfir fólki sínu í réttlæti, margir heilagir menn voru í landinu.“ Seinna segir svo: „Með hjálp þessara manna, og með því að leggja fram alla sína lífs- og sálarkrafta, og einnig með hjálp spámannanna, tókst Benjamín konungi því að koma aftur á friði í landinu.

Og ég hugsa um þetta setningarbrot „Með hjálp þessara manna“ og hve oft ég hef staðið frammi fyrir áskorunum í lífi mínu sem ég hefði ekki getað tekist á við án aðstoðar helgra manna og kvenna sem sitja þar við hlið mér, syrgja með mér, hugga mig er við stöndum sem vitni um Guð. Stundum virðast bænir okkar tilgangslausar. Það er eins og þeim sé ekki svarað, jafnvel að Drottinn heyri þær ekki. En ég vil bera vitnisburð um að það er hlustað á þessar bænir og þeim er svarað á fullkominn hátt. Vegna þess að Drottinn ann ykkur þá er honum annt um bænir ykkar, honum er umhugað um það sem hvílir á huga ykkar og hjörtum og það sem kemur í veg fyrir svefn á næturnar. Þessi svör munu koma. Þau munu gera það.