Doctrine and Covenants 2025
30. júní–6. júlí: „Engin vopn, sem smíðuð verða gegn yður, skulu verða sigursæl“: Kenning og sáttmálar 71–75


„30. júní–6. júlí: ‚Engin vopn, sem smíðuð verða gegn yður, skulu verða sigursæl‘: Kenning og sáttmálar 71–75,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Kenning og sáttmálar 71–75,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

trúboðar ganga yfir akra

Ég mun minnast sáttmálans, eftir Enrique Manuel Garcia

30. júní–6. júlí: „Engin vopn, sem smíðuð verða gegn yður, skulu verða sigursæl“

Kenning og sáttmálar 71–75

Joseph Smith tókst á við gagnrýnendur allt frá unglingsaldri – jafnvel óvini – er hann reyndi að vinna verk Guðs. Það hlýtur þó að hafa verið einkar átakanlegt þegar Ezra Booth tók að ávíta kirkjuna seinni hluta ársins 1831, því í hans tilfelli var um að ræða áður trúfastan meðlim. Ezra hafði séð Joseph nota kraft Guðs til að lækna konu. Honum hafði verið boðið að vera í samfylgd Josephs í fyrsta könnunarleiðangri um land Síonar í Missouri. Hann hafði þó frá þeim tíma horfið frá trú sinni og reynt að draga úr trúverðugleika spámannsins með bréfaskriftum í fréttablað í Ohio. Sá gjörningur virtist bera árangur því „[óvinsamlegar] öldur, [höfðu] risið … gegn kirkjunni“ á svæðinu (Kenning og sáttmálar, kaflafyrirsögn). Hvað eiga trúaðir að gera í slíku tilviki? Þótt ekkert eitt svar eigi við um allar aðstæður, virðist það þó oft vera svo – þar á meðal í þessu tilviki árið 1831 – að hluti af svari Drottins sé að lýsa yfir sannleikanum og leiðrétta ósannindi með því að „boða [fagnaðarerindið]“ (vers 1). Verk Drottins mun vissulega alltaf hafa gagnrýnendur, en þegar uppi er staðið, þá munu „engin vopn, sem smíðuð verða gegn [því], verða sigursæl“ (vers 9).

Sjá „Ezra Booth and Isaac Morley,“ í Revelations in Context 134.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju

Kenning og sáttmálar 71

trúarskólatákn
Andinn mun leiða mig er ég boða fagnaðarerindi frelsarans.

Það getur verið óskemmtilegt þegar fólk gagnrýnir eða hæðist að trú ykkar á frelsarann, fagnaðarerindi hans eða kirkju hans. Hvað gerið þið þegar það gerist? Eitthvað svipað gerðist í Ohio árið 1831 (sjá kaflafyrirsögn Kenningar og sáttmála 71). Hvernig bauð Drottinn spámanninum og Sidney Rigdon að takast á við það í Kenningu og sáttmálum 71? Kannski gætuð þið skrifað niður þær leiðbeiningar sem Drottinn veitti þeim og blessanirnar sem hann lofaði.

Auk þess að lesa kafla 71, þá gætuð þið einnig kannað það hvernig frelsarinn brást við gagnrýnendum sínum meðan á jarðneskri þjónustu hans stóð. Hér eru nokkur dæmi: Matteus 22:15–22; 26:59–64; Jóhannes 10:37–38. Hvað lærið þið af honum? Hvaða viðbótar innsæi fáið þið frá Matteusi 18:15; Efesusbréfi 4:31–32; 2. Tímóteusasbréfi 3:12; Jakobsbréfi 1:19?

Hvernig gæti leiðsögn hans átt við í þeim aðstæðum sem þið standið frammi fyrir í dag? Þið gætuð hugleitt leiðir til að leiðrétta ósannindi með ykkar eigin orðum. Þið gætuð til að mynda byrjað á því að tjá virðingu fyrir skoðunum hins aðilans og síðan gætuð þið miðlað því sem þið trúið varðandi Jesú Krist og kenningar hans, á auðmjúkan og vinsamlega hátt. Til að búa ykkur undir þessar aðstæður, gætuð þið kannski æft þessa nálgun með vinum og fjölskyldumeðlimum.

Sjá einnig Topics and Questions, „Helping Others with Questions,“ Gospel Library; Dallin H. Oaks, „Elska aðra og lifa með ólíkum skoðunum,“ aðalráðstefna, október 2014; Jörg Klebingat, „Hughraustur lærisveinn á síðari dögum,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

Kenning og sáttmálar 72

Drottinn blessar mig fyrir tilstuðlan þjónustu leiðtoga eins og biskupa.

Þegar Newel K. Whitney var kallaður til að þjóna sem biskup, voru skyldur hans örlítið frábrugðnar biskupa okkar tíma. Whitney biskup hafði t.d. yfirumsjón með helgun eigna og leyfi til að setjast að í landi Síonar í Missouri. Þegar þið svo lesið um köllun hans í Kenningu og sáttmálum 72, gætuð þið séð nokkra samsvörun í því sem biskupar gera á okkar tíma – hið minnst andann, ef ekki smáatriði skyldna þeirra.

Hvernig gerið þið til að mynda biskupi „grein fyrir“ ábyrgð ykkar? (vers 5). Á okkar tíma getur „forðabúr Drottins“ verið framlög, þjónusta og hæfileikar deildarmeðlima (sjá vers 10, 12). Hvernig getið þið lagt til í forðabúrið?

Hvernig hefur Drottinn blessað ykkur og fjölskyldu ykkar í gegnum þjónustu biskups?

Sjá einnig Quentin L. Cook, „Biskupar – hirðar yfir hjörð Drottins,“ aðalráðstefna, apríl 2021.

Kenning og sáttmálar 73

Ég fæ mörg tækifæri til að miðla fagnaðarerindi frelsarans.

Þegar Joseph Smith og Sidney Rigdon snéru aftur frá trúboðsþjónustu sinni (sjá Kenning og sáttmálar 71), sagði Drottinn þeim að halda áfram með þýðingu þeirra á Biblíunni (sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Þýðing Josephs Smith (ÞJS),“ Gospel Library). Það þýddi samt ekki að hann vildi að þeir hættu að miðla fagnaðarerindinu. Það er eftir allt, hluti af lífi lærisveins.

Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 73, íhugið þá hvernig þið getið boðað fagnaðarerindið eins og „unnt er“ (vers 4) – eða á raunhæfan máta – og gert það að hluta að lífsmáta ykkar, meðal annarra ábyrgðarskyldna.

vinir tala um fagnaðarerindið

Miðlun fagnaðarerindis Jesú Krists getur verið sjálfsögð og eðlileg.

Kenning og sáttmálar 75:1–16

„Vinnið af mætti [ykkar] … kunngjörið sannleikann.“

Opinberunin í kafla 75 var stíluð á fólk sem hafði „gefið nöfn [sín] til að fara og boða fagnaðarerindi [frelsarans]“ (vers 2). Ein leið til að nema þessa opinberun er að gera tvo lista: (1) Hvernig miðla skuli fagnaðarerindinu á farsælan hátt og (2) Hvernig Drottinn blessar okkur og styður er við gerum það.

Hver haldið þið að sé merking þess að „halda kyrru fyrir“ eða vera „iðjulaus“ við miðlun fagnaðarerindisins? Hvernig lítur það út að „[vinna] að mætti“ ykkar? (vers 3).

Sjá einnig „Ég fer hvert sem vilt að ég fari,“ Sálmar, nr. 104.

Sjá þessa mánaðar útgáfur tímaritanna Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

barnahluti tákn 02

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Kenning og sáttmálar 71

Ég get varið sannleikann með því að miðla vitnisburði mínum.

  • Þið getið notað kaflafyrirsögn Kenningar og sáttmála 71 eða „Kafla 25: Joseph Smith og Sidney Rigdon fara í trúboð“ (í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 96 eða samsvarandi myndband í Gospel Library), til að kenna börnum ykkar um aðstæðurnar sem innblésu kafla 71. Hjálpið þeim því næst að uppgötva í versi 1 hvað Drottinn vildi að Joseph og Sindey gerðu varðandi þær „óvinsamlegu öldur“ sem risu gagnvart kirkjunni. Hvernig sagðist hann myndu hjálpa þeim? Hvernig getum við verið eins og Joseph og Sidney?

    0:45

    Chapter 25: Joseph Smith and Sidney Rigdon Go on a Mission: December 1831–January 1832

  • Þið gætuð einnig sungið söng sem hvetur börn ykkar til að vera sönn frelsaranum, eins og „Velja rétta veginn“ (Barnasöngbókin, 82). Hjálpið börnum ykkar að æfa hvernig þau geta miðlað því sem þau vita um Jesú Krist.

Kenning og sáttmálar 72:2

Drottinn hefur kallað biskup til að hjálpa mér.

  • Ef þið lesið saman Kenningu og sáttmála 72:2 gæti það skapað tækifæri til að ræða hvers vegna Drottinn gefur okkur biskupa (sjá einnig „Kafla 17: Fyrsti biskup kirkjunnar,“ í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 64–66 eða samsvarandi myndbandi á Gospel Library). Þið og börn ykkar gætuð fundið myndir eða hluti sem tákna ábyrgð biskups. Myndin og verkefnasíðan aftast í þessum lexíudrögum veita nokkrar hugmyndir. Þið gætuð síðan talað saman um biskupa sem þið hafið þekkt og hvernig Drottinn hefur blessað fjölskyldur ykkar í gegnum þjónustu þeirra.

    1:45

    Chapter 17: The First Bishops of the Church: February and December 1831

Kennið ávallt um Jesú Krist. „Sama hvað þið eruð að kenna, munið að þið eru í raun að kenna um Jesú Krist og hvernig á að verða eins og hann“ (Kenna að hætti frelsarans, 6). Þegar þið kennið til dæmis börnum ykkar um biskupa, leggið þá áherslu á að þeir séu fulltrúar Jesú Krists, kallaðir af honum til að framkvæma verk hans (sjá 1. Pétursbréf 2:25).

matur og birgðir í forðabúri Drottins

Drottinn biður biskupa að annast þá sem eru þurfandi.

Kenning og sáttmálar 75:3

Ég get lagt mitt besta fram fyrir Drottin.

  • Til að ræða mismuninn á því að „halda kyrru fyrir“ og „[vinna] af mætti [okkar],“ þá gætuð þið kannski valið nokkur þjónustuverk eða heimilisverk og boðið börnum ykkar að framkvæma þau af hálfum hug eða af öllum mætti sínum. Þegar þið lesið „hvorki haldið kyrru fyrir“ í Kenningu og sáttmálum 75:3, gætu börn ykkar sýnt hvernig þau myndu framkvæma verkin af hálfum hug. Þegar þið lesið „vinnið af mætti [ykkar],“ gætu þau sýnt hvernig þau leggja sig öll fram. Hvers vegna er mikilvægt að við leggjum okkar af mörkum fyrir Drottin?

  • Í boðskap sínum „Tvær reglur fyrir öll efnahagskerfi“ (aðalráðstefna, október 2009), sagði Dieter F. Uchtdorf forseti tvær sögur um iðjusemi. Kannski gætuð þið miðlað þeim bönum ykkar og rætt um það hvernig tilfinning fylgir því að hafa unnið vel og gert okkar besta.

Sjá þessa mánaðar útgáfu tímaritsins Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

biskup veitir pilti ráðgjöf

Bera kennsl á hina mildu miskunn í lífi ykkar, eftir Keith Larson

verkefnasíða fyrir börn