Til styrktar ungmennum
Eftir mistök ykkar – jafnvel þau stóru
Til styrktar ungmennum, apríl 2026


Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum apríl 2026

Eftir mistök ykkar – jafnvel þau stóru

Við getum lært margt af Pétri postula um frelsarann, friðþægingu hans og að reyna aftur.

Pétur afneitar Kristi

Afneitun Péturs, eftir Carl Heinrich Bloch

Flest höfum við skapað hið minnsta eina minningu sem við vildum óska að við gætum hreinlega gleymt. Hvort sem það var augnablik hreinnar niðurlægingar, sársaukafullt slys eða rifrildi er þú sagðir eitthvað sem þú vildir að þú gætir tekið til baka, þá er fullt af stundum í lífinu þar sem „endurtekning” eða jafnvel „eyða” hnappur hljómar mjög tælandi.

Beiskur spádómur uppfylltur

Pétur postuli var heillandi persóna í Nýja testamentinu. Hann hafði trú og hugrekki til að ganga á vatni í átt til Jesú, en einungis andartaki síðar yfirtók óttinn hann og hann tók að sökkva og hrópaði á Drottin um hjálp (sjá Matteus 14:28–31). Þótt við þekkjum ekki nákvæmlega ævi Péturs, þá vitum við um eitt tilfelli þegar hann grét beisklega.

Einungis nokkrum klukkustundum áður en Jesús Kristur var handtekinn, spáði hann að Pétur myndi afneita honum þrisvar áður en haninn galaði tvisvar. Pétur neitaði að trúa slíkum spádómi og „kvað enn fastar að: „Þó að ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér“ (Markús 14:31).

Auðvitað rættist spádómur frelsarans. Í þeirri skelfingu og þeim ótta sem umkringdi handtöku frelsarans, brást Pétri hugrekkið. Eftir að hafa þegar neitað því að þekkja frelsarann tvisvar og verið undir þrýstingi í þriðja sinn, „[sór Pétur] og sárt við lagði: Ég þekki ekki þennan mann sem þið talið um“ (Markús 14:71).

Þegar haninn galaði tvisvar og Pétur mundi spádóm frelsarans, „gekk [hann] út og grét beisklega“ (Matteus 26:75).

En þar með lýkur ekki sögu hans!

Þar urðu þáttaskil, að eilífu

Af öllu því sem við getum lært í ritningunum, þá sigraðist ótti Péturs aldrei aftur á vitnisburði hans um Jesú Krist. Hann vitnaði hugdjarfur um frelsarann við hvert tækifæri, sama hver persónuleg áhættan var. Munið að Pétur var að kenna fólki sem hafði nýlega krossfest Jesú Krist! Hættan var raunveruleg.

Þegar Pétur læknaði lamaðan mann frá fæðingu og bauð honum: „Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk” (Postulasagan 3:6), var hann handtekinn ásamt Jóhannesi og spurður hvernig hann gerði þetta kraftaverk.

Pétur svaraði djarflega: „Ykkur [sé] öllum kunnugt og öllum Ísraelslýð að í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess er þið krossfestuð en Guð uppvakti frá dauðum, í hans nafni stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum ykkar.

[þetta] er steinninn sem þér, húsasmiðirnir, virtuð einskis, hann er orðinn að hyrningarsteini. Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld sem getur frelsað okkur“ (Postulasagan 4:10–12).

Hve hugrakkt svar! Og skýr sönnun fyrir sannfæringu hans.

Ófullkomnir þjónar, fullkomlega færir um að þjóna

Sérhvert okkar mun syndga í þessu lífi. Þrátt fyrir okkar allra besta, þá munum við af og til ekki standast vonir okkar og ásetning. Líkt og Jeffrey R. Holland forseti (1940–2025), forseti Tólfpostulasveitarinnar, kenndi eitt sinn: „Allt frá upphafi tímans hefur Guð aðeins unnið með ófullkomnu fólki, að frátöldum sínum fullkomna eingetna syni.”

Andlegt verðmæti ykkar skilgreinist ekki af né takmarkast við mistök ykkar – jafnvel ekki þau stóru! Þar sem Pétur iðraðist og Kristur fyrirgaf honum, kom afneitun Péturs á Kristi ekki í veg fyrir að hann gæti vitnað síðar, kennt og snúið fólki til trúar af miklum krafti. Ritningarnar eru fullar af dæmum um aðra lærisveina sem syndguðu, iðruðust og héldu áfram í trú á Krist.

Satan mun alltaf reyna að sannfæra ykkur um að mistök ykkar hlaðast upp og að þið munið aldrei geta sigrast á þeim. Hunsið lygar hans!

Systir Tamara W. Runia, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Stúlknafélagsins, kenndi: „Þið þurfið að heyra þetta, svo ég segi þessi orð upphátt: Þið eruð ekki röddin í huga ykkar eða mistökin sem þið hafið gert. Þið gætuð líka þurft að segja þetta upphátt. Segið við Satan: ‚Ekki í dag.‘ Segið skilið við hann.

Finnið aðdráttaraflið, hina guðlegu sorg sem snýr ykkur frelsara ykkar og skynjið náð hans koma inn í líf ykkar og þeirra sem þið elskið. Ég lofa því að um leið og við færum honum sundurkramið hjarta af hugrekki, mun hann samstundis koma.”

Jesús Kristur

Kristur huggari, eftir Carl Bloch

Bjartir dagar ykkar framundan

Þegar þið ígrundið betur friðþægingu frelsarans á þessum páskum, hafið þá hugfast að sá eiginleiki að geta iðrast og reyna aftur, er ein mesta gjöfin sem þið getið nokkru sinni hlotið. Vegna Jesú Krists, er hægt að fyrirgefa verstu mistök ykkar og kasta þeim síðan af eins og þungum hlekkjum.

„Frelsarinn er ætíð bjartari en myrkur smánarinnar,” kenndi systir Runia.

Vegna Jesú Krists, getur vonin alltaf skinið bjart fram á við er þið einblínið á hann.