Til styrktar ungmennum
Viljið þið vera hamingjusamari? Reynið þakklæti
Til styrktar ungmennum, febrúar 2026


Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, febrúar 2026

Viljið þið vera hamingjusamari? Reynið þakklæti

Þegar líf ykkar er fullt af breytingum getur þakklæti hjálpað ykkur að einblína á hið jákvæða og vera vongóð.

manneskja undir regnskýjum og manneskja umkringd fuglum, fiðrildum og blómum

Myndskreyting: Maggie Stephenson

Þið munuð aldrei verða hamingjusamari en sem nemur þakklæti ykkar.“

Líkt og þessi tilvitnun í öldung Gary B. Sabin, af hinum Sjötíu, sýnir að þakklæti ykkar hefur bein áhrif á það hversu hamingjusöm þið eruð. Það er skiljanlegt – þegar þið eruð þakklát þá einblínið þið á hið jákvæða í stað þess neikvæða.

Samt fer lífið ekki alltaf eins og ætlað var. Óvæntar breytingar gætu valdið ykkur meiri streitu, sorg eða vonbrigðum en hamingju. En þegar hlutirnir eru erfiðir, getur þakklæti hjálpað okkur að halda í vonina. Reynið þessar þrjár leiðir til að færa aukið þakklæti inn í líf ykkar.

1. Leitið hins góða

Oft er erfiðast að finna til þakklætis þegar manni finnst vanta eitthvað. Hvaða blessunum gætuð þið samt litið framhjá með því að einblína á það sem þið hafið ekki frekar en það sem þið hafið?

Þegar þið leitið hins góða í lífi ykkar, verður með tímanum auðveldara að finna það.

2. Tjáið gefandanum þakklæti

Þegar þið teljið blessanir ykkar, gleymið þá ekki hvaðan þær koma.

Að þakka himneskum föður fyrir gjafir hans – þar með talið gjöf sonar hans – getur aukið elsku ykkar til hans og trú á hann. D. Todd Christofferson forseti, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, útskýrði einnig: „Að finna fyrir og tjá Guði þakklæti, er í raun það sem fyllir tilbeiðslu gleðilegri endurnýjun“ færir ykkur gleði og styrk og stuðlar að öryggi vitnisburðar ykkar.

3. Einblínið á áætlun himnesks föður

Að vera þakklátur merkir augljóslega ekki að leiða hjá sér erfiðleika lífsins eða vera stöðugt hamingjusamur. Jafnvel Jesús Kristur fann fyrir og viðurkenndi sársauka (sjá Alma 7:11; Kenning og sáttmálar 19:18–19). Depurð er hluti af lífinu.

Hvað sem öllu líður, þá breytist eitt aldrei: Miskunnaráætlun himnesks föður. Öll depurð og sárindi sem þið upplifið í lífinu munu verða leiðrétt vegna Jesú Krists og friðþægingar hans (sjá Opinberunarbókin 21:4).

Öldungur Dieter F. Uchtdorf, í Tólfpostulasveitinni, sagði: „Að vera þakklát á ógæfutímum merkir ekki að við séum ánægð með aðstæður okkar. Það merkir að með auga trúar sjáum við lengra núverandi áskorunum okkar.“