2025
Af hverju hefur Drottinn kirkju?
Til styrktar ungmennum, október 2025


Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, október 2025

Af hverju hefur Drottinn kirkju?

stúlkur

Tilgangur kirkju Krists er að „gera einstaklingum og fjölskyldum mögulegt að aðstoða Guð við að framfylgja verki sáluhjálpar og upphafningar.“ Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hjálpar við að „gera börn [Guðs] hæf fyrir æðsta dýrðarstigið, sem er upphafning eða eilíft líf.“

„Frelsarinn … fól [kirkjunni] að framkvæma tilgang sinn – prédika fagnaðarerindi sitt, bjóða helgiathafnir hans og sáttmála og gera krafti hans mögulegt að réttlæta og helga okkur.“

Meðlimir kirkjunnar hafa aðgang að krafti og blessunum Jesú Krists fyrir tilstilli valds og lykla prestdæmisins, sáttmála og helgiathafna, spámannlegrar leiðsagnar, ritninganna og samfélags heilagra.

Kirkjunni hefur líka verið boðið: „Rísið og látið ljós yðar skína, svo að það verði þjóðunum tákn“ (Kenning og sáttmálar 115:5).

Kirkjumeðlimir leitast við að láta ljós sitt skína, með því að lifa eftir fagnaðarerindinu, bjóða öllum að meðtaka fagnaðarerindið, sameina fjölskyldur að eilífu og annast hina fátæku og þurfandi. Þetta er verk Guðs til sáluhjálpar og upphafningar

Heimildir

  1. Almenn handbók: Þjónusta í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 1.3, Gospel Library.

  2. Dallin H. Oaks, „Sannleikur og áætlunin,“ aðalráðstefna, október 2018.

  3. Dale G. Renlund, (aðalráðstefna, október 2024.