2025
Hjálp frá fullkominni uppsprettu
Febrúar 2025


Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, febrúar 2025

Hjálp frá fullkominni uppsprettu

Jesús Kristur mun hjálpa ykkur þegar þið komið til hans, hverjir sem erfiðleikar ykkar eru.

Jesús Kristur

Forskriftin, eftir Jeanette Bourup

Á einum eða öðrum tíma þörfnumst við öll einhverrar hjálpar. Stundum mikillar hjálpar. Sannleikurinn er sá að lífið gengur yfirleitt miklu betur ef þið reynið ekki að takast á við það einsömul.

Jesús Kristur er ykkar fullkomna uppspretta hjálpar, vonar og styrks. Hann getur líka hjálpað við að breyta ykkur til hins betra – jafnvel á þann hátt sem þið tölduð ómögulegt.

Breyting í hjarta

Hafið þið einhvern tíma beðið þess að Guð mildaði hjarta óvina ykkar? Ef svo er, þá eruð þið í góðum félagsskap (sjá 3. Nefí 12:44; Moróní 7:48). Þótt þið eigið enga óvini í merkingu Mormónsbókar (þið vitið, vopnaða óvini reiðubúna til árásar), hafið þið sennilega beðið þess að Guð mildaði hjarta einhvers sem ekki kom vel fram við ykkur.

En hefur ykkur nokkru sinni dottið í hug að biðja Guð um að milda hjarta ykkar sjálfra? Ef til vill eigið þið erfitt með að fyrirgefa einhverjum. Eða missið stöðugt stjórn á skapi ykkar, jafnvel þótt þið viljið það ekki. Eða þið viljið sýna systkinum ykkar meiri góðvild, þrátt fyrir að þau skaprauni ykkur stundum.

„[Jesús Kristur] mun breyta hjarta ykkar og lífi. Smám saman munið þið vaxa og verða líkari honum. Sáttmálssamband ykkar við hann mun færa ykkur aukinn aðgang að krafti hans“ (Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum [2022], 8, skáletrað hér).

Er þetta ekki dásamlegt loforð? Sama hvað þið glímið við, jafnvel ykkar eigið hjarta, þá getur Jesús Kristur hjálpað. Hvernig getið þið komið til hans í dag?

drengur