„Páskahátíð Gyðinga,” Barnavinur, apríl 2026, 46–48.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, apríl 2026
Páskahátíð Gyðinga
Móse fór til faraós og bað hann að láta ísraelsku þrælana lausa. Faraó neitaði því. Drottinn sendi plágur til Egyptalands, en faraó sagði samt nei.
Drottinn sagði að hann myndi senda eina plágu í viðbót. Frumburður hverrar fjölskyldu í Egyptalandi myndi deyja. Drottinn lofaði að ef Ísraelsmenn fylgdu fyrirmælum hans, myndi plágan fara framhjá þeim.
Drottinn bauð hverri fjölskyldu Ísraelsmanna að fórna lýtalausu karlkyns lambi og maka blóði lambsins fyrir ofan dyrnar hjá þeim.
Plágan kom. Allir frumburðir í Egyptalandi dóu, þar á meðal elsti sonur faraós. Frumburðir Ísraelsmanna voru óhultir, því þeir höfðu hlýtt Drottni.
Faraó sagði Móse og Ísraelsmönnum að yfirgefa Egyptaland. En faraó var reiður. Hann og her hans veittu þeim eftirför.
Ísraelsmenn tjölduðu við Rauðahafið. Þegar þeir sáu Egyptana koma, urðu þeir óttaslegnir. Móse sagði að Drottinn myndi vernda þá.
Móse lyfti staf sínum og Drottinn klauf hafið. Ísraelsmenn fóru yfir á þurru landi.
Þegar allir Ísraelsmenn voru öruggir hinu megin hafsins, lét Drottinn vatnið falla niður og drekkti hernum. Ísraelsmenn voru loks frjálsir.
Litasíða
Jesús Kristur var uppreistur fyrir mig.
Myndskreyting: Audrey Day Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.
Hvað getið þið gert til að minnast Jesú Krists þessa páska og allt árið um kring?
©2026 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in the USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, April 2026. Icelandic.. 20062 190