2025
Hinir heilögu fara vestur
Desember 2025 – Barnavinur


„Hinir heilögu fara vestur,“ Barnavinur, desember 2025, 26–28.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2025

Hinir heilögu fara vestur

Brigham Young horfir á er fólk vinnur að byggingu hins ófullgerða Nauvoo-musteris

Eftir að Joseph Smith dó leiddu Brigham Young og hinir postularnir kirkjuna. Brigham vissi að hinir heilögu yrðu að yfirgefa Nauvoo, því þar var ekki öruggt. Drottinn vildi þó að þeir lykju fyrst við byggingu musterisins.

Brigham Young býður fólk velkomið í musterið

Þegar musterið var tilbúið, gerðu þúsundir heilagra sáttmála við Drottin og innsigluðust sem fjölskyldur.

Heilagir ganga í gegnum snjóstorm

Nú var komið að því að hefja ferðina vestur. Kalt var í veðri og fólkið var veikt og hungrað.

Fjölskyldur að hjálpa öðrum með mat og ábreiður í kuldanum

Brigham baðst fyrir um hjálp. Drottinn sagði að þau ættu að hjálpa hvert öðru og hann myndi blessa þau og hjálpa þeim.

Fjölskylda krýpur við gröf

Ferðin var enn mjög erfið. Sumir dóu. Vegna musterissáttmála sinna, vissu hinir heilögu þó að þeir myndu sjá fjölskyldumeðlimi sína aftur.

Brigham Young í vagni með útsýni yfir Saltvatnsdalinn

Hinir fyrstu heilögu komu í Saltvatnsdalinn árið 1847. Hér gætu þeir tilbeðið Drottin og unnið verk hans í friði.

Myndir af musterum og trúboðum með heiminn sem bakgrunn

Í áranna rás komu fleiri heilagir og byggðu fleiri musteri. Trúboðar ferðuðust um víða veröld til að kenna fagnaðarerindi Jesú Krists. Kirkja frelsarans hélt áfram að vaxa og blessaði börn himnesks föður hvarvetna.

Litasíða

Hann er ljós, líf og von heimsins

PDF–litasíða af Jesúbarninu í jötunni og lambinu

Myndskreyting: Corey Egbert

Hvað gerið þið um jólin til að minnast Jesú Krists?