2025
Jane Manning ferðast til Nauvoo
Október 2025


„Jane Manning ferðast til Nauvoo,“ Barnavinur, október 2025, 26–28.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, október 2025

Jane Manning ferðast til Nauvoo

Maður skírir Jane Manning utandyra

Þar sem Jane Manning bjó, komu sumir illa fram við hana vegna húðlitar hennar. Dag einn heyrði hún trúboða kenna. Stuttu síðar skírðist hún.

Jane og fjölskylda hennar standandi á ströndinni nálægt báti

Fjölskylda Jane skírðist einnig. Þau vildu öll vera með hinum heilögu í Nauvoo. Þau hófu því ferð sína.

Jane og fjölskylda hennar bera töskur og horfa á bát fara niður eftir á

Fjölskylda Jane langaði að ferðast með báti hluta ferðarinnar, en þau áttu ekki næga peninga. Þau urðu því að ganga 1.300 kílómetra.

Jane og fjölskylda hennar ganga í slitnum skóm og forugum fötum

Þau þurftu að fara yfir djúpan læk og sofa úti í kuldanum. Þau voru þó ákveðin í að ná til Nauvoo. Þau hughreystu hvert annað með því að syngja á göngu sinni.

Jane vefur mannsfæti í sárabindi

Jane og fjölskylda hennar gengu, þar til skórnir þeirra urðu útslitnir og fætur þeirra sárir. Þegar þau þó báðu til Guðs um hjálp, læknaði hann fætur þeirra.

Hópur fólks fylgist með Jane með konu sem heldur á veiku barni

Þau hjálpuðu fólkinu sem þau mættu á ferð sinni. Þau hjálpuðu jafnvel við að lækna veikt barn vegna trúar þeirra.

Jane faðmar Emmu Smith með Joseph Smith brosandi

Að lokum komust Jane og fjölskylda hennar til Nauvoo! Þegar Joseph heyrði allt sem þau höfðu gengið í gegnum, sagði hann við Jane: „Guð blessi ykkur. Þið eruð núna meðal vina.“

Litasíða

Jesú Kristur vill að ég elski alla.

PDF-litasíða af tveimur börnum sem sitja saman á stól

Myndskreyting: Corey Egbert

Hvernig getið þið sýnt öðrum elsku?