2025
Joseph Smith fær gulltöflurnar
Febrúar 2025


„Joseph Smith fær gulltöflurnar,“ Barnavinur, febrúar 2025, 26–28.

„Ég get verið vitni um að Mormónsbók sé sönn,“ Barnavinur, febrúar 2025, 48.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, febrúar 2025

Joseph Smith fær gulltöflurnar

Þið getið lesið þessa sögu í Joseph Smith – Saga 1:28–60.

Joseph Smith horfir út um glugga

Þremur árum eftir Fyrstu sýnina, leið Joseph Smith illa yfir nokkrum mistökum sem hann hafði gert. Hann bað til himnesks föður út af þessu.

Joseph Smith krýpur í bæn

Meðan Joseph baðst fyrir, fylltist herbergið ljósi. Hann sá engil standa í loftinu. Nafn engilsins var Moróní.

Engillinn Moróní vitjar Josephs Smith í herbergi hans

Moróní sagði að til væri bók gerð úr gullsíðum eða töflum. Hún væri grafin í hæð einni nærri heimili Josephs. Bókin fjallaði um fólk sem bjó í Ameríku fyrir löngu síðan. Moróní sagði að Guð myndi hjálpa Joseph að þýða bókina.

Joseph Smith gægist ofan í gryfjuna til að skoða gulltöflurnar

Joseph fór upp á hæðina og fann gulltöflurnar undir þungum steini. Moróni kom og sagði Joseph ekki vera tilbúinn að taka þær strax.

Engillinn Moróní talar við Joseph Smith

Þegar Joseph varð eldri hitti Moróní hann á hæðinni og fékk honum töflurnar. Moróní sagði Joseph að gæta þeirra vel.

Joseph Smith talar við fjölskyldu sína

Joseph hóf að þýða töflurnar yfir á ensku. Hann notaði sérstök verkfæri frá Guði sér til hjálpar. Bókin var gefin út árið 1830 sem Mormónsbók. Hún kennir um Jesú Krist og fagnaðarerindi hans.

Litasíða

Ég get verið vitni um að Mormónsbók sé sönn

Litasíða af stúlku faðma Mormónsbók að sér

Myndskreyting: Corey Egbert

Hvernig getið þið hjálpað öðrum að læra um Jesú Krist í Mormónsbók?