Safn
Vera staðföst og halda ró í mótlæti, særindum eða prófraunum: Eme Martin


3:32

Vera staðföst og halda ró í mótlæti, særindum eða prófraunum: Eme Martin

Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna

Sunnudagur, 8. mars 2026

Ég hef lært á minni litlu lífsleið að leyfa Drottni að leiða mig, ganga við hlið mér, að leyfa honum að leiðbeina mér. Einkum á erfiðum tímum, að hafa hann sem akkeri mitt, styrk minn. Það er ekki alltaf auðvelt. Stundum vilja hjörtu okkar herða sig. Okkur finnst við réttlættar þegar við höfum verið særðar. Besta leiðin til að sækja fram er samt að leyfa honum trúfastlega að elska okkur.

Ég hugsa til tíma þegar ég, í þjónustu ríkisins, reyndi að vera eins og ég best gat, en það var ekki vel tekið á móti því. Og það var ekki aðeins að það var ekki tekið vel á móti því, heldur upplifði ég mikla dómhörku og illa meðferð, að því marki að það fékk mig til að íhuga: „Held ég áfram að þjóna? Er þetta staður fyrir mig?“ Mér leið virkilega eins og ég væri að brotna andlega og ég þurfti að taka ákvörðun. Leyfi ég Drottni að elska mig eða finn ég huggun annarsstaðar?

Með íhugun skildi ég að ég þarfnaðist Drottins og þráði að hafa hann og blessanir hans í lífi mínu, meira en ég gerði það ekki. Að ég þráði blessun hins vikulega sakramentis og fyllingu þess fyrir sál mína. Að geta fengið aðgang að musterinu og sáttmálum þess. Þegar ég svo einbeitti mér að því, hjálpaði það mér að fyrirgefa. Það hjálpaði mér að horfa framhjá ófullkomleika hinnar illu meðferðar og átta mig á að ég væri hér í mikilvægari tilgangi. Að ég væri hér til að taka á móti blessunum og vonandi verða öðrum til blessunar. Að láta þetta ekki verða að hrösunarhellu, heldur stiklusteini í trú minni. Þegar ég því baðst fyrir og treysti Drottni, fann ég styrk til að sleppa takinu á sársaukanum, að halda ekki í eða ala á hatrinu sem reyndi að festa rætur í anda mínum – heldur að leyfa Drottni að liðsinna mér og veita mér styrk til að sækja trúfastlega fram.

Systur, hann þekkir ykkur. Drottinn er meðvitaður og honum er annt um ykkur. Hann þekkir ykkur með nafni, hann þekkir sorgir ykkar, gleði ykkar og hann vill elska ykkur. Hann vill að þið takið á móti honum. Hann er meðvitaður um þær byrðar sem þið berið. Hann elskar ykkur og vill að þið finnið þá elsku frá sér. Það er nágranni, það er systir, það er vinur sem býður blessanir slíks liðsinnis og stuðnings. Opnið ykkur fyrir þeim. Leyfið þeim að umvefja ykkur elskuríkum örmum sínum með þjónustu sinni.