Safn
Byggja upp tilfinningalega þrautseigju: Mitzi Semo


3:26

Byggja upp tilfinningalega þrautseigju: Mitzi Semo

Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna

Sunnudagur, 8. mars 2026

Þegar ég var ung móðir var elsti sonur okkar ársgamall og ég fékk símtal þegar ég var í vinnunni, frá vinnustað eiginmanns míns. Og þeir sögðu: „Maðurinn þinn hefur slasast mjög illa. Þú þarft að koma strax á spítalann.“ Ég man að ég fór í bílinn og reyndi að ræsa hann en áttaði mig þá á að ég skalf svo mikið. Ég hafði mun meiri áhyggjur en ég hélt að ég hefði. Ég sat þar og þurfti bara að fara með bæn. Svo upplifði ég yfirþyrmandi tilfinningu friðar og hlýju og ég vissi að allt yrði í lagi. Þegar ég kom svo á spítalann, sagði læknirinn: „Við vitum ekki hvort maðurinn þinn lifir þetta af.“ Þá man ég eftir þeirri tilfinningu sem ég fann fyrir í bílnum og það var ekki eins og Drottinn væri að segja við mig: „Engar áhyggjur, maðurinn þinn verður jafnhraustur og áður,“ en ég vissi samt að allt yrði í lagi með mig og það yrði allt í lagi, hver sem niðurstaðan yrði.

Þegar ég hugsa svo um að hafa tilfinningalega þrautseigju, hugsa ég um friðinn sem frelsarinn veitir okkur og hjálpar okkur að finna. Burtséð frá niðurstöðunni og aðstæðunum sem fyrir hendi eru, þá vitið þið að hann er til staðar og hann mun hjálpa ykkur í gegnum þetta allt. Þannig leið mér í allri þessari þrekraun. Það var ekki auðvelt. Við fórum í gegnum ár mikilla erfiðleika, bæði líkamlega og andlega, en við komumst í gegnum það og við lærðum mikið.

Ég myndi segja að við eigum ekki öll eftir að upplifa sömu reynslu í lífinu. En ég veit að fyrir mig, á þeim tíma, þurfti ég að snúa mér til Drottins og rækta samband við hann. Með því að gera það, leið mér eins og ég gæti raunverulega komist í gegnum þetta. Og þá byggðist mitt tilfinningalega þolgæði á undirstöðu fagnaðarerindisins og undirstöðu Jesú Krists. Svo, hvenær sem var í framtíðinni, þegar eitthvað annað gerðist, mundi ég eftir þessu.

Ég verð líka að segja að hvern sunnudag, þegar ég meðtek sakramentið, þegar okkur er boðið að hafa frelsarann í huga, þá minnist ég þeirra upplifana sem ég átti með honum. Það hefur líka byggt upp mína tilfinningalegu þrautseigju, því sú minning hjálpar mér að skilja hver ég er sem barn Guðs og að ég hef tilgang hér og að ég er hér til að hjálpa honum að byggja upp ríki hans. Hversu góð eða slæm sem framtíð okkar verður, þið vitið, þá veit ég bara að ég mun hafa frelsarann og get alltaf snúið mér til hans. Ég legg traust mitt á þetta samband og þaðan kemur mín tilfinningalega þrautseigja.